Fréttablaðið - 18.06.2012, Síða 36
18. júní 2012 MÁNUDAGUR16
BAKÞANKAR
Jóns
Sigurðar
Eyjólfssonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. svanur, 6. hætta, 8. blund, 9. espa,
11. gyltu, 12. brotthlaup, 14. rabb, 16.
kaupstað, 17. útsæði, 18. angan, 20.
stöðug hreyfing, 21. áfall.
LÓÐRÉTT
1. fnæs, 3. tveir eins, 4. gutlari, 5.
traust, 7. vinsæll, 10. ról, 13. hluti
verkfæris, 15. matur, 16. strit, 19.
skóli.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. álft, 6. vá, 8. lúr, 9. æsa,
11. sú, 12. strok, 14. skraf, 16. bæ, 17.
fræ, 18. ilm, 20. ið, 21. slag.
LÓÐRÉTT: 1. hvæs, 3. ll, 4. fúskari,
5. trú, 7. ástsæll, 10. ark, 13. orf, 15.
fæði, 16. bis, 19. ma.
Líklega telur alvaldið mig tiltölulega tregan nemanda í lífsins skóla því eftir
að hafa upplifað hrunið heima á Íslandi
árið 2008 sit ég nú sama kúrs hér á Spáni
fjórum árum síðar. Reyndar var farið
gríðarlega hratt yfir námsefnið á Íslandi,
þetta var spíttbraut frekar en hraðbraut,
en það gerir ekkert til því nú fæ ég tæki-
færi til að fara yfir allt aftur í hægri
endur sýningu.
ÉG er ekki kominn langt, nú er spánska
útgáfan af Sigurjóni líklegast að stinga
upp í sig snúði. Ég vona bara að ein-
hver skáldmæltur maður, á við hann
Össur, sé viðstaddur svo þessu verði
nú gerð góð skil í rannsóknarskýrsl-
unni sem eflaust verður á kennslu-
skránni.
ÞAÐ sem veldur mér mestum
áhyggjum er að ég er ekki að
skilja þetta, eins og unglingarn-
ir myndu segja. Þetta byrj-
ar alltaf á því að þjóð er að
upplifa mestu hagsældar-
tíma sögu sinnar en svo,
rétt eins og annarlegri
hönd sé veifað, verður
sjóðurinn að skuldum.
Það sem gerist þarna
í millitíðinni er ofar
mínum skilningi. Allt í
einu er eins og bankarnir verði illkynja og
allt sem nálægt þeim er breytist í skratta
og skömm. Allar auðlindirnar, sem skópu
auðinn, eru enn á sínum stað en sjóðurinn
hverfur í svo djúpan vasa að enginn sér
hvar hann endar.
ANNAÐ sem ég á bágt með að skilja er
kokhreysti bankamanna. Í síðasta tíma, til
dæmis, sagði Rodrigo Rato, bankastjóri
Bankia, af sér. Við það tækifæri sagðist
hann vart vita banka sem stæði traust-
ari fótum. Fyrsta verk nýs bankastjóra,
José Ignacio Goirigolzarri, var að biðja
ríkið um tuttugu og fjögurra billjóna evra
endurfjármögnun, eins og það er kallað.
Það var sjálfsagt mál þó búið sé að skera
spænska alþýðu inn að beini í heiftar-
legum niðurskurði og þótt rúmar fimm
milljónir manna og kvenna arki strætin.
MÉR sýnist ég vera nauðbeygður til að
snúa Kalla við í gröfinni og álykta sem
svo að auðurinn lendi hjá stétt fólks sem
kunni ekki með hann að fara. En frekar
en að horfast í augu við þá staðreynd þá
einblínir þetta fólk á leiðir til að viðhalda
stöðu sinni í hægindunum á toppnum og
við höfum séð að þar eru þeim hæg heima-
tökin. Ég vona þó að einhverjir komu vit-
inu fyrir gullkeðjuliðið því ég er ekki að
nenna að sitja þennan kúrs einn ganginn
enn.
Hrunið í hægri endursýningu
Hvað eruð
þið tveir að
bralla?
Ekkert!
OK, inn
með
hann!
Er að reyna!
Fjarstýringin
virkar ekki.
Hann er
kominn alltof
langt í burtu!
Hann bara
heldur
áfram út
í skóginn
og...
og út
á ha...
Einmitt það
sem „ekkert“
venjulega
þýðir!
Vá!
Ég missti
hann.
Ég var ekki
að spila...
Þetta er það magnaðasta
sem ég hef heyrt þig spila
á gítarinn
í langan tíma,
Palli!
Jæja.
Þar fór það!
Má ég prófa
að raða
glösunum?
Auð-
vitað.
Úff! ég er
hræðilegur í
þessu!
Ertu viss um að þú
þurfir engin góð ráð?
L
A
N
D
SM
ÓT HESTAM
AN
N
A
N
A
T
IO
N
AL HORSE SHOW
O
F
IC
E
L
A
N
D
Landsmót
hestamanna
Reykjavík
2012
25.06 – 01.07
Ógleymanleg skemmtun. Bestu gæðingar
landsins etja kappi og helstu kynbótastjörnur
landsins koma fram. Troðfull dagskrá með
landsþekktum skemmtikröftum, kvöldvökum
og fjölskyldustemningu. Á keppnissvæðinu
er glæsilegur barnagarður.
Miðasala á www.landsmot.is
Það styttist í ævintýrið!