Fréttablaðið - 18.06.2012, Qupperneq 42
18. júní 2012 MÁNUDAGUR22
Litlir tappar
eru varasamir
... fyrir litla tappa
Ung börn, sérstaklega yngri en 3 ára, eiga það til að setja hluti
upp í munninn. Skrúftappi á Fjörmjólk, D-vítamínbættri mjólk og á
Stoðmjólk er af þeirri stærð að hann gæti verið varasamur
ungum börnum.
Við viljum biðja forráðamenn smábarna að hafa þetta hugfast.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
52
46
4
FÓTBOLTI Íslenska kvennalands-
liðið í knattspyrnu lagði Unverja-
land 3-0 að velli í undankeppni
Evrópumótsins á laugardaginn.
Með sigrinum er Ísland komið í
toppsæti riðilsins þegar þremur
leikjum er ólokið.
„Við náðum oft flottu spili og
komumst í góðar stöður til að
gefa fyrir en það hefur stundum
vantað að klára færin betur. Við
hefðum getað skorað fleiri mörk í
dag, kannski var eitt löglegt mark
dæmt af okkur en við skoruðum
þrjú og verðum að vera ánægð
með það,“ sagði Sigurður Ragn-
ar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari
Íslands, en illa hefur gengið að
skora í undanförnum leikjum.
Íslenska liðið fékk óskabyrjun
þegar Margrét Lára skoraði af
stuttu færi eftir sjö mínútna leik.
Fanndís Friðriksdóttir fékk tvö
góð færi til að bæta við forystuna
en brást bogalistin sem hefði getað
reynst dýrkeypt. Framherji Ung-
verja slapp einn í gegn en Þóra
Björg Helgadóttir í marki Íslands
bjargaði vel. Þá skoruðu Ungverj-
ar mark sem virtist fullkomlega
löglegt en dómaraþríeykið, sem
átti ekki sinn besta dag, dæmdi
markið af. Hólmfríður Magnús-
dóttir skoraði baráttumark rétt
fyrir hlé og Ísland með tveggja
marka forskot í hálfleik.
Íslensku stelpurnar voru mun
betri aðilinn í síðari hálfleik en
bættu þó aðeins við einu marki
fyrir utan það sem ranglega var
dæmt af. Það gerði hin 17 ára
Sandra María Jessen með sinni
fyrstu snertingu eftir að hafa
komið inn á sem varamaður.
„Ég er í fyrsta lagi ánægð með
að hafa fengið að spila, markið var
bara bónus. Þetta fer í reynslu-
bankann,” segir Sandra María en
svo skemmtilega vill til að Mar-
grét Lára Viðarsdóttir skoraði, líkt
og Sandra María, í sínum fyrsta
landsleik sem einnig var gegn
Ungverjalandi árið 2003. Síðan
hefur Magrét Lára spilað 80 lands-
leiki og skorað 63 mörk.
„Það hlýtur að boða gott að
skora í sínum fyrsta leik gegn
Ungverjalandi. Það gerði það fyrir
mig. Það er frábært að fá Söndru
og Elínu Mettu inn. Þetta eru
ungar stelpur sem öðlast reynslu.
Það er mikilvægt fyrir framhaldið
og eydur breiddina í liðinu,“ segir
Margrét Lára og Sigurður Ragnar
tekur undir með henni.
„Það er gaman að fá inn svona
efnilegar stelpur og geta gefið
þeim tækifæri. Það eru fleiri á
leiðinni næstu árin,“ sagði Sig-
urður Ragnar en Elín Metta og
Sandra eru hluti af stórefnilegum
1995-árgangi í íslenskri kvenna-
knattspyrnu.
Þrátt fyrir að sigur Íslands hafi
verið sannfærandi mátti lítið út af
bregða til að verr hefði farið. Áður
eru nefnd dauðafæri gestanna auk
marksins sem ranglega var dæmt
af.
Þá hefði átt að vísa Söru Björk
Gunnarsdóttur af velli fyrir
fólskulegt brot um miðjan síðari
hálfleikinn sem hefði sett íslenska
liðið í erfiða stöðu. Sara, sem átti
fínan leik, þykir hörð í horn að
taka og mikilvægt fyrir íslenska
liðið að hún láti ekki reka sig af
velli vegna óskynsamlegra pirr-
ingsbrota. Í ljósi lykilhlutverks
Söru í liðinu væri það á við að
missa tvo leikmenn af velli.
Ísland mætir Búlgaríu ytra á
fimmtudaginn en Búlgarir stein-
lágu gegn Noregi 11-0 um helgina.
Síðustu leikir riðilsins fara fram
um miðjan september þegar Norð-
ur-Írar koma í heimsókn áður en
Norðmenn verða sóttir heim. Sá
leikur verður að öllu eðlilegu
úrslitaleikur um toppsæti riðils-
ins sem gefur sæti í lokakeppni
Evrópumótsins í Svíþjóð 2013. - ktd
Ísland vann sannfærandi sigur á Ungverjum:
Mörkin létu sjá sig
MARKASKORARAR Hólmfríður Magnúsdóttir (til vinstri) og Margrét Lára Viðarsdóttir
voru á skotskónum og fagna hér marki þeirrar fyrrnefndu. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Cristiano Ronaldo skor-
aði bæði mörk Portúgala sem unnu
2-1 sigur á Hollendingum í lokaum-
ferð B-riðils Evrópumótsins í gær.
Rafael van der Vaart hafði komið
Hollendingum yfir snemma leiks
og loks virtist sem Holland, sem
fór leikandi létt í gegnum undan-
keppnina og margir spáðu góðu
gengi, væri búið að finna taktinn.
Cristiano Ronaldo jafnaði metin
um miðjan fyrri hálfleikinn og
mark hans stundarfjórðungi fyrir
leikslok gerði út um vonir Hollend-
inga sem fóru stigalausir í gegnum
keppnina og heitt undir sæti Berts
van Marwijk landsliðsþjálfara sem
nýverið framlengdi samning sinn
við hollenska knattspyrnusam-
bandið.
Þjóðverjar sönnuðu í 2-1 sigri á
Dönum að þeir eru líklegasta liðið
til sigurs á mótinu. Liðið vann alla
þrjá leiki sína í „Dauðariðlinum“
svonefnda. Danir urðu að leggja
Þjóðverja að velli og staðan var 1-1
þar til tíu mínútum fyrir leikslok
þegar Lars Bender tryggði Þjóð-
verjum sanngjarnan sigur.
Afar óvænt úrslit urðu í loka-
umferð A-riðils á laugardaginn.
Grikkir lögðu Rússa að velli 1-0 og
tryggðu sér sæti í átta liða úrslit-
unum á kostnað Rússa. Á sama
tíma töpuðu gestgjafar Póllands
með sama mun gegn Tékkum sem
tryggðu sér efsta sæti riðilsins.
Tékkar mæta Portúgölum í átta
liða úrslitum á fimmtudag og Þjóð-
verjar leika gegn Grikkjum dag-
inn eftir. Mikil spenna er fyrir
leiki dagsins í C-riðli þar sem Ítöl-
um dugar sigur gegn Írum svo
framarlega sem Spánn og Króatía
skilja ekki jöfn 2-2 sem myndi
tryggja báðum þjóðum sæti í átta
liða úrslitunum á kostnað Ítala.
- ktd
Þjóðverjar fara áfram í átta liða úrslit EM með fullt hús stiga eftir sigur á Dönum:
Ronaldo sá um Hollendinga
HETJA OG LEIÐTOGI PORTÚGALA Cristiano Ronaldo fagnaði sigrinum og sæti í átta
liða úrslitunum vel í Kharkiv í gærkvöldi. Ronaldo skoraði bæði mörkin og dreif liðs-
félaga sína, aldrei þessu vant, áfram. NORDICPHOTOS/AFP