Fréttablaðið - 18.06.2012, Síða 46

Fréttablaðið - 18.06.2012, Síða 46
18. júní 2012 MÁNUDAGUR26 GOTT Á GRILLIÐ „Ég hef alltaf verið kennd við Barbí,“ segir hin tvítuga Ingibjörg Austmann Þorbjörnsdóttir. Ingibjörg ekur um á eldrauðum Volkswagen Golf með einkanúm- erinu Barbí. Hún fékk sér þetta eftirtektarverða bílnúmer í fyrra- sumar og hefur vakið nokkra athygli í umferðinni. „Fólk starir mikið á mig þegar ég er að keyra. Það fyndnasta sem ég hef lent í er samt þegar ég kom að litlum stelpum sem voru að reyna að taka númeraplötuna af bílnum,“ segir hún. Hún hefur verið kölluð Barbí allt sitt líf og vinir hennar nota nafnið í daglegu tali. „Ég hét lengi Barbí í símanum hjá kærastanum mínum,“ bendir hún á og bætir við að nafngiftin sé ekki skrítin þar sem hún sé ljóshærð og hafi leikið sér með Barbie-dúkkur til þrettán ára aldurs. Hún lætur bílnúmerið þó ekki nægja heldur ber húðflúr með sömu áletrun á fætinum. Fyrir utan það að keyra Barbí- bílinn er Ingibjörg nemi í Fjöl- brautaskólanum við Ármúla auk þess sem hún æfir módelfitness af kappi. Á dögunum lenti hún í þriðja sæti í alþjóðlegu keppn- inni WBFF Icelandic Champion- ship sem haldin var í Háskólabíói. „Ég keppi aftur í nóvember og er byrjuð að æfa mig á fullu fyrir það,“ segir Ingibjörg eða Barbí, eins og hún er oftast nefnd, sem stefnir á að ná betri árangri á næsta móti. hallfridur@frettabladid.is INGIBJÖRG AUSTMANN: STELPUR REYNDU AÐ STELA NÚMERAPLÖTUNNI Alltaf verið kölluð Barbí BARBÍBÍLLINN Ingibjörg segir eftirminnilegt þegar ungar stúlkur reyndu að stela Barbí-númerinu af bílnum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN HÚÐFLÚR Það má með sanni segja að Ingibjörg sé Barbí frá toppi til táar. ht.is EM TILBOÐ PHILIPS LED SJÓNVÖRP 3D BLU-RAY SPILARI FYLGIR TÆKJUNUM Philips 40PFL5507T FÆST EINNIG Í 46" Philips 46PFL5507T 299.995 VERÐ FRÁBÆRT VERÐ 249.995 „Ég hef aldrei lent í öðru eins, en ég er nú gamall sjó- maður svo ég er öllu vanur,“ segir leikarinn Damon Younger, sem er búinn að taka þátt í gerð þriggja stuttmynda á síðustu vikunni og fjórum á síðustu þremur vikum. Að meðaltali hefur Damon leikið í tveimur stutt- myndum á ári undan farin ár og gróflega áætlað telur hann þær vera tuttugu til þrjátíu í það heila. „Þetta er algjör undantekning núna en mér finnst þetta alveg ótrúlega skemmtilegt og verð ævinlega glaður þegar fólk hugsar til mín og biður mig um að vera með,“ segir hann. Hlutverkin sem hann leikur í myndun- um fjórum eru öll mjög ólík en Damon segist ganga ágætlega að svissa á milli karaktera. „Það getur alveg verið erfitt að vera til dæmis í næturtöku og sofa í þrjá tíma áður en maður mætir aftur í vinn- una sem einhver allt annar karakter. Þetta er samt bara það sem ég geri, þetta er vinnan mín,“ segir Damon. Sjaldnast er leikurum greitt fyrir leik sinn í stuttmyndum en Damon segir það ekki koma að sök. „Þetta er fín æfing, maður fær að vera á setti, drekka vont kaffi og borða Ballerina-kexkökur. Ég vil vanda mig í öllu sem ég geri og vinn ötullega að því að gera sjálfan mig að betri einstaklingi og leikara, svo þetta er frábært tækifæri til þess.“ Uppáhaldsstuttmynd- in sem hann hefur leikið í hingað til segir hann vera myndina Heart to heart eftir Veru Sölvadóttur, sem hægt er að nálgast ókeypis á síðunni icelandiccinema. com. Leikarinn vinsæli segist nú ætla að hvíla sig á stuttmyndum um sinn og leyfa fleirum að komast að. „Nú ætla ég bara að vera blankur og njóta lífs- ins, hjálpa mömmu og pabba, reyna að vera duglegur og sjá hvað gerist næst,“ segir Damon hress í bragði og augljóslega spenntur fyrir að sjá hvert lífið leiðir hann næst. - trs Stuttmyndakóngur vikunnar BRJÁLUÐ VIKA Stórleikarinn Damon Younger lék í þrem stutt- myndum í síðustu viku en hann hefur leikið í á milli 20 og 30 stuttmyndum á ferlinum. „Mér finnst best að setja lambafilet á grillið, hægsteikja niður fituna þangað til hún verður þunn skorpa. Með því steiki ég sætar kartöflur með rósmaríni og hvítlauk og ber fram með ruccola-salati með fetaosti og vínberjum.“ Haukur M. Hrafnsson kvikmyndagerðar- maður og leikstjóranemi. Framleiðslufyrirtækið True North hélt partí fyrir tökulið kvikmynd- arinnar Oblivion á Kex Hosteli á laugardagskvöld. Til stóð að Tom Cruise mætti í partíið, en allt kom fyrir ekki en spenntir gestirnir skemmtu sér þó konunglega án stórstjörnunnar. Um 250 manns mættu í partíið og var staðurinn lokaður almenn- ingi á meðan. Mikil öryggisgæsla var við húsið og mátti sjá vígalega öryggisverði spóka sig á Skúlagöt- unni. Þótt Tom Cruise hafi ekki mætt í partíið sat hann ekki aðgerðalaus í höfuðborginni. Fyrr um daginn sást til hans ásamt eiginkonunni, leikkonunni Katie Holmes, á rölt- inu í Þingholtunum. Þá snæddu þau kvöldverð á veitingastaðnum Sushi Samba á laugardagskvöld, sam- kvæmt heimildum Fréttablaðsins. Í gær hélt tökulið Oblivion í Mývatnssveit, en tökur á mynd- inni hefjast í vikunni. Síðar í mán- uðinum verður svo kvikmyndað við Drekavatn á Jökulheimaleið. Cruise og Holmes dvöldu á Hil- ton hóteli Nordica um helgina, en hann hefur eflaust verið á meðal fyrstu manna norður í land þar sem hann er einn af framleiðend- um Oblivion. - afb Tom Cruise mætti ekki í eigið partí SÖDD OG SÆL Tom Cruise og Katie Holmes snæddu kvöldverð á veitingastaðnum Sushi Samba á laugardagskvöld.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.