Fréttablaðið - 25.08.2012, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 25.08.2012, Blaðsíða 4
25. ágúst 2012 LAUGARDAGUR4 GENGIÐ 24.08.2012 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 210,5519 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 120,18 120,76 190,38 191,30 150,45 151,29 20,199 20,317 20,571 20,693 18,241 18,347 1,5297 1,5387 182,53 183,61 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SAMGÖNGUR Strætó mun hefja reglubundinn akstur um mest- allt norðaustanvert landið eftir áramót. Þá verður hægt að taka strætó frá Akureyri til Siglufjarð- ar, Húsavíkur, Þorlákshafnar og Egilsstaða. Forsvarsmenn Strætó hafa nú þegar gert samninga um fyrir- komulagið við tilheyrandi sveit- arfélög og segir Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs., að aksturinn muni hefjast um og eftir áramót, en daglegar ferðir á milli Akureyrar og Reykjavíkur hefjast 2. september næstkomandi, eins og greint hefur verið frá. „Það verður enn frekari útbreiðsla á strætisvagnakerfinu með því að taka inn allt Norður- land eystra, Siglufjörð og byggðina austan Akureyrar,“ segir Reynir. „Þá sitja Austfirðirnir og Vestfirð- ir eftir.“ Enn frekara samstarf við sveit- arfélögin á Suðurnesjum er einn- ig í undirbúningi. Samtök sveitar- félaganna hafa óskað eftir svipuðu samstarfi við Strætó og hefur tíðk- ast á Suðurlandi og segir Reynir að takmarkið sé að gera bæjarfélögin eins samtengd og kostur er. Um áramótin mun Strætó keyra til um 40 bæjarfélaga utan höfuð- borgarsvæðisins á Suðurlandi, Suðurnesjum, Vesturlandi og aust- anverðu Norðurlandi. Aðspurður hvernig vagnarnir muni ráða við ófærð á vegum að vetri til segir Reynir það vera í skoðun. „Þessir vagnar eru engin torfæru tröll,“ segir hann. „Strætó- arnir okkar þola þó meira rok held- ur en stór rúta sem er upphækkuð, en hún gæti verið duglegri í snjó. Það eru alltaf kostir og gallar.“ Þá bætir Reynir við að öryggismál farþega verði þó alltaf í forgrunni og því sé nú unnið að veðurviðmið- unum vegna aks tursins úti á landi. Akstursleiðum utan höfuðborg- arsvæðisins er skipt upp í ellefu kílómetra belti í loftlínu og fer far- gjaldið eftir því hversu mörg belti farið er yfir. Hvert tekur til sín 350 krónur miðað við hæsta gjald- flokk. Því kostar fargjald á milli Reykjavíkur og Akureyrar 7.700 krónur, þar sem farið er yfir 22 belti á leiðinni. sunna@frettabladid.is Strætó býður ferðir til fjörutíu kaupstaða Um áramótin hefst reglubundinn akstur Strætó um allt norðaustanvert landið. Hægt verður að taka strætó frá Reykjavík til Egilsstaða. Akstur til Leifsstöðvar í skoðun. Aust- og Vestfirðir einu byggðu landshlutarnir sem eru undanskildir. FER VÍÐA Eftir áramót verða Vestfirðir og Austfirðir einu landshlutarnir sem Strætó keyrir ekki til, að hálendinu undanskildu. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Strætóarnir okkar þola þó meira rok heldur en stór rúta sem er upp- hækkuð, en hún gæti verið duglegri í snjó. Það eru alltaf kostir og gallar. REYNIR JÓNSSON FRAMKVÆMDASTJÓRI STRÆTÓ BS Verið er að skoða hvenær hægt verði að hefja akstur Strætó til Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. „Það er vilji fyrir því að tengja saman Reykjavík og Leifsstöð, en það eru áhöld um hvernig við tengjum hana í þetta,“ segir Reynir. „Akstur þangað fer eftir komu og brott- farartíma flugvéla og hagast því öðru vísi ef flugi seinkar. En þetta er í sérstakri skoðun og fer ekki inn í þetta næsta framkvæmdastig okkar.“ Strætó í Leifsstöð ÞÝSKALAND, AP Angela Merkel Þýskalandskanslari ítrekaði í gær að hún teldi að Grikkland ætti ekki að yfirgefa evrusvæð- ið, þrátt fyrir alvarlegan skulda- vanda sem hefur valdið evru- svæðinu öllu verulegu tjóni. Antonis Samaras, forsætis- ráðherra Grikklands, heimsótti hana í gær og reyndi að sann- færa hana um að veita Grikkj- um lengri frest til að ráða bót á vanda sínum. Hún lofaði engu, en sagðist ætla að bíða þangað til þriggja manna nefnd frá seðlabanka Evrópusambandsins, fram- kvæmdastjórn þess og frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum lyki rannsókn sinni á ríkisfjármál- um Grikklands í byrjun septem- ber. - gb Samaras á Evrópuferðalagi: Biður Merkel um lengri frest SAMARAS OG MERKEL Samaras ætlar í dag að hitta Francois Hollande Frakk- landsforseta. NORDICPHOTOS/AFP RÚSSLAND Iraida Spasskaja, systir rússneska stórmeistarans Boris Spasskí, segist sannfærð um að hann hafi ekki flúið til Moskvu í síðustu viku heldur hafi honum verið rænt þegar eiginkona hans brá sér af heimili þeirra. Spasskí sagðist sjálfur í viðtali við rússneska dagblaðið Komso- moskaja Pravda hafa flúið til Moskvu frá París, þar sem honum hafi verið haldið í einangrun á sterkum lyfjum og án síma- eða netsambands. Spasskí fékk heilablóðfall fyrir tveim- ur árum, var lengi á sjúkra- húsi en naut síðan umönnun- ar hjúkrunar- fólks og lækna á heimili sínu þar í borg. Iraida segist hafa heimsótt bróður sinn nýverið og hafi hann þá unað sér vel. „Ég held að honum hafi verið rænt af einhverju fólki sem vill nota nafn hans sér til framdrátt- ar,“ er haft eftir henni á skák- fréttasíðunni Chess-News. Á sama fréttavef er rætt við Rimmu Bilunovu, fulltrúa rúss- neska skáksambandsins, sem segir að Spasskí sé í Moskvu og njóti þar góðrar umönnunar. „Spasskí á við fjölskylduvanda- mál að stríða og systir hans styð- ur eiginkonu hans, Marinu. Það voru mistök að senda Boris til Frakklands eftir heilablóðfallið.“ - gb Systir rússneska skákmeistarans Boris Spasskí segir honum hafa verið rænt: Sagður plataður til Moskvu BORIS SPASSKÍ DANMÖRK Danskur fríkirkju- prestur, sem árið 2007 lét yfir- völd ekki vita af kynferðisofbeldi gegn 12 ára stúlku, óskar þess nú að hafa gert meira í málinu en að boða málsaðila á sáttafund. Ofbeldismaðurinn, sem er 24 ára, braut aftur gegn ungum stúlkum, sex og átta ára, árið 2010. Þau brot voru kærð og var maðurinn í síðustu viku dæmdur til meðferðar. Á sáttafundinum sem prestur- inn hélt árið 2007 voru ofbeldis- maðurinn, foreldrar hans og for- eldrar stúlkunnar. Presturinn kveðst hvorki hafa hvatt málsað- ila til að leita til yfirvalda né gert það sjálfur. - ibs Prestur iðrast aðgerðaleysi: Þagði um kyn- ferðisofbeldi UMHVERFISMÁL Niðurstöður liggja nú fyrir úr efnagreiningum á þrávirka efninu hexaklórben- seni (HCB) í flugeldum. Eftir að ljóst var að efnið hefði fundist í flugeldum í nágrannalönd- um okkar og að efnið mældist í andrúmslofti á nýársnótt 2011, var ákveðið að taka sýnishorn hjá öllum innflytjendum flugelda og láta greina efnið. Fengin voru til greiningar flug- eldar og skotkökur frá níu inn- flytjendum. HCB mældist ekki í verulegu magni í sjö af níu þeirra. Tvö sýnishorn innihéldu hins vegar HCB yfir leyfilegum mörkum og hefur innflytjendum verið gert að gera viðeigandi ráð- stafanir. - shá HCB mælt í flugeldum: Eitur í aðeins tveimur sýnum FLUGELDAR Handbók á vef ráðuneytis Innanríkisráðuneytið hefur gefið út á vefnum Handbók um reikningsskil og fjármál sveitarfélaga. Fram kemur á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga að í handbókinni sé að finna yfirlit um öll lög og reglugerðir er varði reikningsskil og fjármál sveitarfélaga, auk annars efnis sem tengist fjár- málum sveitarfélaganna. SVEITARSTJÓRNARMÁL VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 31° 31° 24° 19° 24° 23° 18° 18° 27° 21° 34° 27° 30° 20° 23° 19° 19° Á MORGUN víða 8-13 m/s FIMMTUDAGUR Stíf S-átt vestanlands. 8 9 9 10 8 10 7 7 6 5 8 3 14 7 9 7 5 47 5 6 5 7 7 8 79 8 11 7 6 6 SÍÐSUMAR Vætu- samt næstu daga og heldur kaldara en verið hefur. Rigning S- og V-til í dag og á morgun. Úrkoma N-til að- faranótt mánudags en léttir til þegar líður á daginn. Hiti 5-13 stig næstu daga, mildast SV- lands. Snjólaug Ólafsdóttir veður- fréttamaður UMHVERFISMÁL Svandís Svavars- dóttir umhverfisráðherra veitti á miðvikudag landgræðsluverðlaun- in. Að þessu sinni voru þrír verð- launagripir afhentir. Arnór Benediktsson og Ingi- finna Jónsdóttir á Hvanná II á Jökuldal hlutu verðlaun fyrir að breyta illa förnu landi í nytjaland og Benedikt Arnórsson og Guðrún Agnarsdóttir á Hofteigi á Jökuldal fyrir uppgræðslu. Þá hlutu „Ung- menni í Öræfum“ verðlaun, en í því verkefni geta krakkar frá 10 ára aldri sinnt landgræðslu. - kóp Landgræðsluverðlaun afhent: Verðlaun fyrir uppgræðslu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.