Fréttablaðið - 25.08.2012, Blaðsíða 31
25. ágúst 2012 LAUGARDAGUR
Þ
egar brunað er í hlað í
Útvík í Skagafirði er
átöppun að hefjast í
brugghúsinu á bænum.
Þó vélar vinni verk-
ið er eigandinn, Árni
Hafstað, á hjólum í kringum þær,
velur flöskur úr stæðum á gólfinu
og raðar þeim eftir kúnstarinn-
ar reglum til að allt gangi smurt.
Hann segir átöppunarferlið svona
snúningasamt meðan það sé að fara
í gang en síðan hægist um.
„Við keyptum notaða vél til að
minnka stofnkostnað og eins og þið
sjáið kannski einangruðum við tank-
ana með eigin höndum, kerfið býður
upp á aðeins meiri vinnu en annars
væri, fyrir vikið,“ segir Árni móður
og bætir við örlítið afsakandi: „Við
fengum ekki kúlulán og reynum að
gera sem mest sjálf. Vorum búin að
standsetja húsið þegar að fjárfestum
kom og síðan var haft að leiðarljósi
að hafa allt eins ódýrt og hægt væri,
án þess að það kæmi niður á gæðum
framleiðslunnar.“
Vildum hafa þetta sem hobbý
Árni er uppalinn í Útvík og tók þar
við búi af foreldrum sínum. Hann
og Birgitte eru með hvorki meira
né minna en sextíu kýr í fjósi. Svo
er hann menntaður heyrnar- og tal-
meinafræðingur og kveðst ferðast
um annað kastið og sinna heyrnar-
mælingum. En hvað kemur rótgrón-
um bónda með sérhæft starf utan
heimilis til að fara út í ölgerð?
„Það byrjaði þannig að ég og
Jóhann Axel Guðmundsson, aðal-
bruggarinn hjá okkur, skelltum
okkur saman á námskeið í Dan-
mörku til að læra bruggun öls alveg
frá grunni. Það var gert okkur til
fróðleiks og skemmtunar. Síðan
ákvað ég að kaupa græjur. Við vild-
um helst hafa þetta sem hobbý en
komumst að því að það væri ekki
hægt nema ólöglega. Það þurfti að
útvega alls konar leyfi og þá kom
upp sú staða að grunnkostnaðurinn
var sá sami hvort sem við vorum að
framleiða 20 lítra eða 200.000 lítra.
Þá fórum við að huga að því hvað
væri hægt að gera. Við vildum ekki
fara út í eitthvað rosa stórt, en samt
hafa þetta „alvöru“, þannig að hér
yrði til að minnsta kosti eitt starf.“
Ekki býst Árni sjálfur þó við að
verða í því starfi. „Ég ætlaði að hafa
Það er hrífandi að
horfa á öl verða til
Brugghús hefur verið rekið í Útvík í Skagafirði í hálft annað ár. Það nefnist
Gæðingur-Öl. Gunnþóra Gunnarsdóttir rann á lyktina á leið um Skagafjörð
og hitti Árna Hafstað og Birgitte Bærendtsen, stórbændur á staðnum.
HLUTI FJÖLSKYLDUNNAR Birgitte heldur á dótturinni April sem er „aðstoðarframkvæmdastjóri eða rúmlega það“ eftir því sem
faðir hennar segir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þrjár ólíkar tegundir Gæðings eru til sölu í vínbúðum landsins, misjafn-
lega humlaðar:
Lager 5,0% Gæðingur, Stout 5,6% Gæðingur og Pale Ale 4,6% Gæðingur.
Muninum á létthumluðum bjór og sterkhumluðum lýsir Árni svo: „Pale
Ale má líkja við það ef lítill kettlingur pissar í glasið þitt en India Pale Ale er
eins og það sé 13 vetra högni. Hann er meira alvöru. Er það ekki það sem
maður vill?“
Kettlingur eða högni?
þetta sem hobbý því það er svo hríf-
andi að horfa á hvernig ölið verður
til. Fljótlega réð ég Jóa sem brugg-
ara. Hann á ekki í fyrirtækinu en
hefur áhuga og gerir það sem gera
þarf. Skrapp bara núna í ræktina og
því er hann ekki á staðnum.“
Fyrst á landinu með ósíaðan bjór
Þá er komið að því að fræðast aðeins
um ölgerðina sjálfa. Árni kveðst
sjóða um þúsund lítra í einu og segir
það taka um þrjá tíma en hversu
lengi þarf lögnin að vera í gerjun?
„Svona mánuð, annars er það svolít-
ið misjafnt eftir tegundum.“
En á hvern hátt skyldi Gæðingur
skera sig frá öðrum bjórtegundum?
„Sko, það hefur ýmislegt breyst í
bjórframleiðslunni í landinu frá
því við byrjuðum,“ segir Árni. „Við
vorum hér fyrst bara með Gæð-
ing lager og Gæðing Stout, sem er
svartur. Síðan bættist Pale Ale við,
ósíaður bjór með botnfalli, ég tel að
við höfum verið fyrst á landinu til
að bjóða upp á þannig bjór. Sumir
héldu að hann væri skemmdur en
þegar fólk þorði að smakka hann
þá mæltist hann vel fyrir. Síðan eru
komnir ósíaðir bjórar hjá Ölgerðinni
og Vífilfelli á markað en við vorum
ein í nokkurn tíma. Þetta er uppá-
haldsbjórinn okkar,“ segir Árni og
réttir fram flösku af Pale Ale. Á
henni stendur: „Ósíaður bjór, skýj-
aður, með botnfalli, hellist varlega.“
Spurður hvort þau hjón gætu sjálf
ræktað kornið í ölið svarar Árni: „Við
getum auðvitað ræktað korn og mal-
tað það, sem er tiltölulega einfalt í
sjálfu sér en krefst bæði töluverðs
pláss og búnaðar. Sennilega yrði
samt erfitt að hafa kornið alltaf eins,
þannig að bjórinn yrði breytilegur.
En það sem gerir vel gerðan bjór sér-
lega góðan eru einkum humlarnir.“
Þrjár tegundir af Gæðingi fást nú
í Ríkinu auk jóla-, þorra- og páskaöls
á réttum árstímum, að sögn Árna.
„Svo eru nokkrar tegundir á barnum
okkar í Reykjavík, Micro bar í Aust-
urstræti 6, við ákváðum að hafa eina
þeirra sem húsöl á krana.“
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
3
8
7
5
KLETTHÁLSI 11 og BREIÐHÖFÐA (Bílakjarninn)
VIÐ ERUM Á TVEIMUR STÖÐUM:
M.BENZ E220 cdi
Nýskr. 02/07, ekinn 236 þús.
Dísil, sjálfskiptur.
Verð áður: 5.320 þús. kr. Rnr. 200146
SUBARU Legacy Wagon
Nýskr. 01/08, ekinn 82 þús.
Bensín, sjálfskiptur.
Verð áður: 2.690 þús. kr. Rnr. 100176
MAZDA Tribute I 4wd
Nýskr. 07/05, ekinn 82 þús.
Bensín, sjálfskiptur.
Verð áður: 2.050 þús. kr. Rnr. 101930
TILBOÐSVERÐ 2.990 þús. kr.
TILBOÐSVERÐ 690 þús. kr.
TILBOÐSVERÐ 2.190 þús. kr.
TILBOÐSVERÐ 1.590 þús. kr.
525 8000 - www.bilaland.is
GERÐU FRÁBÆR KAUP!
GERÐU FRÁBÆR KAUP!
GERÐU FRÁBÆR KAUP!
GERÐU FRÁBÆR KAUP!
GERÐU FRÁBÆR KAUP!
GERÐU FRÁBÆR KAUP!
GERÐU FRÁBÆR KAUP!
GERÐU FRÁBÆR KAUP!
GMC Yukon XL DENALI
Nýskr. 03/03, ekinn 101 þús.
Bensín, sjálfskiptur.
Verð áður: 2.350 þús. kr. Rnr. 102163
SUBARU Impreza 2.0R
Nýskr. 12/07, ekinn 65 þús.
Bensín, 5 gírar.
Verð áður: 1.990 þús. kr. Rnr. 100996
NISSAN Primera Acenta
Nýskr. 06/03, ekinn 125 þús.
Bensín, sjálfskiptur.
Verð áður: 990 þús. kr. Rnr. 150998
VW Jetta Comfortline
Nýskr. 10/07, ekinn 62 þús.
Bensín, 5 gírar.
Verð áður: 1.950 þús. kr. Rnr. 141017
CHRYSLER Pt Cruiser Limited
Árg. 2006, ekinn 46 þús.
Bensín, sjálfskiptur.
Verð áður: 2.480 þús. kr. Rnr. 141025
TILBOÐSVERÐ 1.850 þús. kr.
TILBOÐSVERÐ 1.490 þús. kr.
TILBOÐSVERÐ 1.480 þús. kr.
TILBOÐSVERÐ 1.180 þús. kr.
Hér sýnum við aðeins brot
af þeim bílum sem við erum
með á tilboði í ágúst. Endilega
kynntu þér tilboðsbílana á
www.bilaland.is