Fréttablaðið - 25.08.2012, Blaðsíða 83

Fréttablaðið - 25.08.2012, Blaðsíða 83
LAUGARDAGUR 25. ágúst 2012 51 HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Sunnudagur 26. ágúst 2012 ➜ Leiklist 21.00 Ferðaleikhúsið að Baldursgötu 37 sýnir nýja uppfærslu á Light Nights. Þjóðsögur og margvíslegt íslenskt efni er á dagskránni sem er flutt á ensku. Aðgangseyrir er kr. 2.000 og 1.500 fyrir börn 6 til 16 ára. ➜ Opið Hús 13.00 Bærinn Krókur á Garðaholti í Garðabæ er opinn á sunnudögum í sumar. Krókur er lítill bárujárnsklæddur burstabær. Hann er staðsettur ská á móti samkomuhúsinu á Garðaholti og stutt frá Garðakirkju. Aðgangur er ókeypis. ➜ Dansleikir 20.00 Dansleikur Félags eldri borgara í Reykjavík verður haldinn að félags- heimili þeirra Stangarhyl 4. Danshljóm- sveitin Klassík leikur létta danstónlist. Aðgangseyrir fyrir félaga FEB í Reykjavík er kr. 1.500 en kr. 1.800 fyrir aðra gesti. ➜ Tónlist 14.00 Owls of the Swamp frá Ástr- alíu, Elliot Rayman frá Bandaríkjunum og hljómsveitin The Friday Night Idols koma fram í verslun 12 Tóna við Skóla- vörðustíg. 16.00 Hljómsveitin Melchior heldur stutta og kósý tónleika á Gljúfrasteini. Aðgangseyrir er kr. 1.000. 17.00 Lokatónleikar Classical Concert Company Reykjavík í Kaldalóni Hörpu. Fjölmargir listamenn flytja íslenskar ein- söngsperlur og þjóðlög. 20.00 Melodica Festival verður haldin á Café Rosenberg. Ýmsir flytjendur. 21.00 Hljómsveitirnar Grísalappalísa og Skelkur í bringu halda tónleika á Hemma og Valda. Grísalappalísa er ný hljómsveit sem þarna spilar á sínum fystu tónleikum. Aðgangur er ókeypis. 22.00 10 manna brasssveitin The What Cheer? Brigade frá Providence í Banda- ríkjunum spilar á Faktorý. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is Niður með puntið! Bíó ★★★★ ★ Leikstjórn: Mark Andrews, Brenda Chapman Leikarar: Kelly Macdonald, Billy Connolly, Emma Thompson, Robbie Coltrane, Julie Walters, Kevin McKidd, Craig Ferguson Disney-samsteypan hefur smjaðrað fyrir kóngafólki lengur en elstu menn muna. Óraunhæfar prinsessufant- asíur ungra stúlkna eiga nær undan- tekningarlaust rætur sínar að rekja að einhverju eða öllu leyti til barnaefnis sem merkt er Disney, þó vissulega eigi það oft og tíðum lengri sögu. Nýjasta afurð fyrirtækisins (og dótturfélagsins Pixar) er hin tölvu- teiknaða Brave, og segir hún frá ungri prinsessu í Skotlandi til forna. En hér hefur verið hrist rækilega upp í formúlunni og hin konungborna aðalpersóna er bæði óhefluð og upp- reisnargjörn. Hún gefur skít í „dömu- fræði“ móður sinnar, kærir sig ekki um neinn af vonbiðlum sínum, og eyðir mestöllum tíma sínum í bog- fimi og hangs. Hún biður norn um að leggja álög á móður sína, rétt til þess að mýkja hana upp, en ekki vill betur til en svo að þeirri gömlu er breytt í skógarbjörn. Brave er mikið sjónarspil eins og flest sem frá Pixar kemur, og þó söguþráðurinn virki ófrumlegur við fyrstu sýn er nálgunin augljóslega óhefðbundin séu hin femínísku gler- augu sett upp. Það er nánast eins og Disney-bákninu finnist það skulda heiminum afsökunarbeiðni vegna prinsessusnobbsins í gegnum tíðina, og viti menn, hin rytjulega og ódann- aða Merida sem hér er fylgst með er langflottasta kvenpersóna sem sést hefur í teiknimynd lengi. Húmorinn er ekki langt undan og oftar en ekki er hann á kostnað kelt- neskra staðalímynda. Hér eru flestir rauðbirknir, uppstökkir og illa tenntir, kumpánlegir en helst til háværir. Sagan um bjarndýrið fær kannski helst til mikið pláss miðað við hversu seint hún fer af stað. Til að byrja með hélt ég að hún yrði nokkurra mínútna útúrdúr frá Meridu og vonbiðlunum, en smám saman tekur hún alfarið yfir. Skemmtilegt fyrir þau yngstu en við stóru börnin viljum frekar meira af berrössuðum Skotum á fylleríi. Brave er samt glæsileg. Vinsældir bleiku puntprinsessunnar er sam- félagsmein sem hefur fylgt okkur allt of lengi. Skemmtilega kaldhæðnislegt væri ef Disney ætti á endanum þátt í að frelsa okkur frá því. Er ég kannski of bjartsýnn? Haukur Viðar Alfreðsson Niðurstaða: Fyndin, flott og femínísk skemmtun fyrir unga sem aldna. Laugardagur 25. ágúst 2012 ➜ Tónleikar 21.00 Söngkonan Jussanam da Silva heldur tónleika með Agnari Má Magnússyni í Tónlistarskóla Árnesinga á Selfossi. ➜ Leiklist 21.00 Ferðaleikhúsið að Baldursgötu 37 sýnir nýja uppfærslu á Light Nights. Þjóðsögur og margvíslegt íslenskt efni er á dagskránni sem er flutt á ensku. Aðgangseyrir er kr. 2.000 og 1.500 fyrir börn 6 til 16 ára. ➜ Sýningar 14.00 Jóna Hlíf Halldórsdóttir opnar myndlistarsýninguna Info í nýju hús- næði Flóru í Hafnarstræti 90 á Akureyri. 23.00 Árleg flugeldasýning verður haldin á Jökulsárlóni. Aðgangseyrir er kr. 1.000 og rennur hann óskiptur til Björgunarfélags Hornafjarðar. Sætaferðir verða frá Höfn. ➜ Hátíðir 14.00 Beikonhátíð verður haldin á Skólavörðustígnum. Allir velkomnir og þátttaka ókeypis. Beikonsmakk í boði, ýmis beikonlist og almenn beikon-gleði. Hátíðin stendur til klukkan 17. ➜ Tónlist 11.30 Agnar Már Magnússon spilar á flygil í Hörpu í tilefni af Jazzhátíð Reykjavíkur. 14.00 Xenia Kriisin frá Svíþjóð, hin bandaríska The Anatomy of Frank og Myrra Rós koma fram í verslun 12 Tóna við Skólavörðustíg. Tónleikarnir eru haldnir í tilefni af tónlistarhátíðinni Mel- odica Acoustic Festival. 17.00 Lilja Guðmundsdóttir sópran, Fjölnir Ólafsson baritón, Ásta María Kjartansdóttir sellóleikari og Ingileif Bryndís Þórsdóttir flytja íslenskar ein- söngsperlur í Kaldalóni Hörpu. 20.00 Melodica Festival verður haldið á Café Rosenberg. Ýmsir flytjendur. 21.00 Eivör heldur útgáfutónleika á Græna Hattinum, Akureyri. 22.00 Andrea Gylfadóttir og Bíóbandið halda tónleika á Ob-La-Dí-Ob-La-Da Frakkastíg 8. Aðgangseyrir er kr. 1.500. 23.00 Hljómsveitin Árstíðir og banda- ríski tónlistarmaðurinn Kyle Woolard halda tónleika á Bar 11 við Hverfisgötu 18 í Reykjavík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.