Fréttablaðið - 25.08.2012, Blaðsíða 84
25. ágúst 2012 LAUGARDAGUR52 52
popp@frettabladid.is
Julian Assange, stofnandi
Wikileaks, hefur verið
áberandi upp á síðkastið.
Hverjir myndu leika hvern
í kvikmynd um ævi þessa
umdeilda manns?
Ali, Nixon, J. Edgar, The Queen og
nú síðast The Iron Lady eru dæmi
um Hollywood-myndir sem fjalla
um þekkt fólk. Orðrómur hefur
verið uppi um að nokkrir framleið-
endur séu að undirbúa kvikmyndir
um vefsíðuna Wikileaks og fólkið í
kringum hana. Af nógu er af taka
þegar lífshlaup forsprakkans Juli-
ans Assange er annars vegar. Hann
hefur verið mikið í fréttum und-
anfarið, enda vill hann sig hvergi
hreyfa úr sendiráði Ekvadors í
London af ótta við framsal til Sví-
þjóðar þar sem hann hefur verið
kærður fyrir nauðgun. Þaðan óttast
hann að verða framseldur til Banda-
ríkjanna þar sem hann gæti fengið
þungan fangelsisdóm.
Hverjir myndu leika hvern ef
gerð yrði Hollywoodmynd um Ass-
ange? Að sjálfsögðu myndu Íslend-
ingar koma við sögu, þar á meðal
Kristinn Hrafnsson, talsmað-
ur Wikileaks, Birgitta Jónsdóttir
alþingismaður, sem hefur starfað
sem sjálfboðaliði fyrir Wikileaks,
og innanríkisráðherrann Ögmundur
Jónasson sem hefur þurft að tjá sig
um málefni Birgittu og Wikileaks.
Baltasar Kormákur hlýtur að
vera efstur á blaði þegar kemur
að leikstjórn, enda er hann þegar
reyndur úr Hollywood og veit
nákvæmlega hvað til þarf til að
mynd sem þessi slái í gegn. - fb
Persónur og leikendur í
kvikmynd um Assange
JAFNALDRAR Þó nokkur líkindi eru með Assange og enska leikaranum Paul Bett-
any, auk þess sem þeir eru jafnaldrar, eða 41 árs. NORDICPHOTOS/GETTY
SILFURREFIR Gráhærði hjartaknúsarinn ætti auðvelt með að
bregða sér í hlutverk talsmanns Wikileaks.
ÍSLANDSVINIR Eiginkona Pauls Bettany er vel kunnug Íslandi
eftir að hafa leikið í Noah.
HARÐJAXLAR Líkindin með harðjaxlinum Keitel og Ögmundi, sem kallar heldur ekki
allt ömmu sína, eru augljós.
★★★ ★★
Dætrasynir
Á ferð og flugi
Útgefandi: Blokkin
Stundargaman
Dætrasona
Dætrasynir er tríó skipað Baldri Ragnarssyni sem einnig er meðlimur í Skálm-
öld, Ljótu hálfvitunum og Innvortis, Lofti S. Loftssyni úr hljómsveitinni Hraun
og Flosa Þorgeirssyni úr ofursveitinni Ham. Þeir semja allt efni fyrstu plötunnar
sinnar, Á ferð og flugi, nema lokalagið sem er ný útgáfa af Gullinu á Raufarhöfn,
en það er gamall erlendur rokk-slagari með texta eftir Þorstein Eggertsson sem
Lúdó og Stefán gerðu vinsælan einhvern tíma á síðustu öld.
Tónlist Dætrasona er léttleikandi sambland af kántrí, rokkabillýi og poppi.
Textarnir, sem fjalla flestir um kvennafar, eru mjög húmorískir og skemmti-
legir. Platan ber nafn með rentu. Dætrasynir eltast við stelpur úti um allt
land; Brú í Hrútafirði, Stykkishólmur, Heimaey, Bolungarvík, Staðastaður,
Hallormsstaðaskógur og meira að segja Öskjuvatn eru allt sögusvið texta, að
ógleymdri Sundahöfninni.
Þetta er létt og hress plata. Lögin eru mörg ágæt, en önnur eru síðri.
Dætrasynir eru greinilega fyrst og fremst að hugsa um að skemmta sjálfum
sér (og öðrum), og það tekst ágætlega, þó að platan risti ekki djúpt. Ekki
frekar en annað stundargaman. Trausti Júlíusson
Niðurstaða: Dætrasynir skemmta sjálfum sér – og öðrum.
ÓVINIR Á TÖKUSTAÐ Áströlsku leikararnir Hugh Jackman og Russell Crowe eru ekki góðir vinir ef marka má fréttir.
Leikararnir vinna saman við gerð Les Miserables og rífast víst eins og hundur og köttur. „Þeir neita að vera í sama herbergi og
það er martröð að vera í kringum þá,“ hafði Star Magazine eftir heimildarmanni.
„Helsti draumurinn er að gefa út
sjötommu, eða tveggja laga plötu.
Það er útgáfuformið fyrir þessa
tónlist,“ segir Ásmundur Svavar
Sigurðsson í borgfirsku hljóm-
sveitinni Brimsteinar.
Með Ásmundi Svavari í sveit-
inni er bróðir hans Jakob Grétar
en þeir eru frá Varmalæk og spila
einnig með progg-sveitinni Eld-
berg sem gaf út sína fyrstu plötu í
fyrra. Þriðji meðlimurinn er Helgi
Eyleifur Þorvaldsson frá Brekku-
koti.
Brimsteinar spila svokallaða
brim-tónlist og helstu áhrifavald-
ar eru The Ventures, Dick Dale
og The Shadows. Fáar íslenskar
brim-sveitir hafa starfað hér hin
síðari ár. Helst má nefna hljóm-
sveitina Brim með Curver Thor-
oddsen.
Brimsteinar tóku upp tvö ný
myndbönd fyrir skömmu á sólar-
ströndinni Langasandi á Akranesi
og skelltu þeim á síðuna Youtube.
Bæði lögin eru eftir belgíska tón-
listarmanninn Django Reinhardt.
Útlitið á strákunum er undir
áhrifum frá sjöunda áratugnum
þegar brim-tónlist naut mikilla
vinsælda. En hvaðan koma þess-
ir flottu búningar? „Ég vil þakka
Gísla Árnasyni, formanni Karla-
kórsins Heimis fyrir þá. Hann
lánaði okkur þessa jakka,“ segir
Ásmundur Svavar, sem skemmtir
sér vel með Brimsteinum. „Þetta
er gífurlega gaman og mikill létt-
leiki sem fylgir þessu.“ - fb
Sveitamenn spila
brimbrettatónlist
BRIMSTEINAR Ásmundur Svavar, Jakob Grétar og Helgi Eyleifur skipa hljómsveitina
Brimsteina.
„Við höfum enn þá mjög gaman af
þessu,“ segir Gunnar Bjarni, gítar-
leikari Jet Black Joe.
Rokksveitin fagnar tuttugu
ára afmæli sínu með tónleikum
í Íslensku óperunni (Gamla bíói)
31. ágúst. „Hugmyndin með því
að spila í Gamla bíói er að þang-
að kemur frekar fólk sem er ekki
að fara mikið á skemmtistaði eða
böll. Þetta er kannski aðeins annar
markhópur,“ segir Gunnar Bjarni.
„Fólkið sem hlustar á okkur virð-
ist spanna tvær til þrjár kynslóðir
sem grípa annaðhvort í endann eða
upphafið á þessu.“
Flutt verða öll bestu lög Jet
Black Joe ásamt nýju efni sem er
væntanlegt á safnplötu sem kemur
út í október. Gunnar Bjarni lofar
hörkustemningu. Sveitin er í góðu
formi enda hefur hún spilað víða
að undanförnu, meðal annars á
Ísafirði, Hvammstanga, í Reykja-
vík og Vestmannaeyjum.
Jet Black Joe hefur tvisvar sinn-
um fengið sjötíu þúsund króna sekt
fyrir að spila of hátt en Gunnar
Bjarni segist ekki ætla að láta
reglugerðavirki ESB stjórna því
hversu hátt rokktónlist sé spil-
uð. „Þeir sem eru með mjög við-
kvæma heyrn geta bara mætt með
eyrnatappa og fengið sérhönnuð
sæti með öryggisbeltum í Gamla
bíói.“
Miðaverð á tónleikana er 3.900
kr. og að sögn Gunnars Bjarna eru
örfáir miðar eftir. - fb
ESB stjórnar ekki
20 ÁRA Rokkararnir í Jet Black Joe fagna
tuttugu ára afmæli sínu 31. ágúst.
Ungbarnasund
Námskeiðið hefst 5. febrúar nk. í Árbæjarlaug.
Sunddeild Ármanns
Barnasund
Sundnámskeið fyrir börn 2ja-6 ára
hefst laugardaginn 15. janúar nk.
í Árbæjarskóla
Innritun virka daga frá kl. 17:00 og um helgar frá kl. 13:00
í síma 557-6618 (Stella) og Eygló í síma 866-0122
i ið hefst 1 s ptember 2012 í Árbæjarlaug.
Innritun virka daga frá kl. 17.00 og um helgar frá kl. 13.00
í síma 557-6618 Stella, stella.gunnars@gmail.com
stella.gunnarsdottir@reykjavik.is
Sundnámskeið fyrir börn 2ja-6 ára
hefst laugardaginn 15. september nk.
í Árb jarskóla.