Fréttablaðið - 25.08.2012, Síða 38
atvinna Allar atvinnuauglýsingar vikunnar á visir.isSölufulltrúar Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 512 5426Hrannar Helgason hrannar@365.is 512 5441
Starfssvið: Hæfniskröfur:
Forritari fyrir kerfishugbúnað
www.marel.com/jobs
bjorn.thorvaldsson@marel.com
www.marel.com
Framkvæmdastjóra fyrir Heilbrigðissvið
Icepharma leitar að
ÁBYRGÐ OG VERKEFNI
Framkvæmdastjóri Heilbrigðissviðs ber ábyrgð á daglegri stjórnun
og rekstri sviðsins, en þar starfa nú 17 starfsmenn.
Meðal helstu verkefna eru stefnumótun og áætlanagerð, samskipti
við birgja og helstu viðskiptavini, greining tækifæra, daglegur
rekstur og starfsmannastjórnun.
Framkvæmdastjórinn situr í framkvæmdastjórn Icepharma,
en hana skipa 9 manns. Starfið heyrir undir forstjóra Icepharma.
MENNTUN OG HÆFNI
Framkvæmdastjóri Heilbrigðissviðs þarf að hafa víðtæka reynslu
af sölu- og markaðsmálum úr heilbrigðis- eða tæknigeiranum.
Hann þarf að hafa leiðtogahæfileika og færni í starfsmanna-
stjórnun og mannlegum samskiptum. Gerð er krafa um frumkvæði,
fagmennsku, jákvæðni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Háskólamenntun er skilyrði, helst á sviði verkfræði, viðskiptafræði
eða heilbrigðisvísinda. Þá þarf framkvæmdastjóri Heilbrigðissviðs
að hafa gott vald á ensku og einu Norðurlandamáli í ræðu og riti.
Reynsla af samskiptum við opinber fyrirtæki er kostur.
STARFSUMHVERFI
Starf framkvæmdastjóra Heilbrigðissviðs felur í sér fjölbreytt, fagleg
og spennandi verkefni í krefjandi umhverfi. Helstu viðskiptavinir
sviðsins eru Landspítalinn Háskólasjúkrahús, apótek og heilbrigðis-
stofnanir um allt land. Meðal stærstu umboða eru Johnson&Johnson,
Nutricia, Smith&Nephew, Coloplast, Pentax o.fl. Áhersla er lögð á að
bjóða gæðavörur. Heilbrigðissvið rekur einnig þjónustudeild sem sinnir
viðhaldi á tækjum og búnaði.
Icepharma leggur áherslu á gott og hvetjandi starfsumhverfi.
Fyrirtækið er í fremstu röð fyrirtækja í heilbrigðisgeiranum á Íslandi
enda eru flestir birgjar þess leiðandi á sínu sviði í heiminum.
Þekking þeirra og reynsla er okkar styrkur.
UMSÓKNARFRESTUR ER TIL 5. SEPTEMBER 2012
Nánari upplýsingar um starfið veitir
Margrét Guðmundsdóttir, forstjóri Icepharma
Umsóknir og fyrirspurnir skal senda á
netfangið margret@icepharma.is
Icepharma Lynghálsi 13 110 Reykjavík Sími 540 8000 Fax 540 80015 ár2007-2011