Fréttablaðið - 25.08.2012, Page 52
LAUGARDAGUR 25. ágúst 2012 15
STAÐA VALLARSTJÓRA HJÁ
GOLFKLÚBBI NESS – NESKLÚBBNUM
Stjórn Nesklúbbsins óskar eftir að ráða dugmikinn og
jákvæðan einstakling í starf vallarstjóra á Nesvöllinn.
Um heilsárs- og framtíðarstarf er að ræða.
Starfið felur í sér yfirumsjón og vinnu við umhirðu golf-
vallarins og nánasta umhverfi hans, vélakosti klúbbsins og
mannaforráð yfir sumartímann. Viðkomandi aðili kemur
einnig að rekstraráætlunum klúbbsins og hefur umsjón
með nýframkvæmdum ásamt vallarnefnd klúbbsins.
Nesvöllurinn er 9 holu golfvöllur á Seltjarnarnesi og er
Nesklúbburinn 6. fjölmennasti golfklúbbur landsins með
um 650 félagsmenn.
Hæfniskröfur:
- Menntun í golfvallarfræðum
- Vinnuvélaréttindi
- Hæfni til almenns viðhalds á vélum
- Skipulagshæfni, frumkvæði og metnaður til að ná
árangri í starfi
Umsóknir, ásamt ferilskrá, berist til framkvæmdastjóra
Nesklúbbsins eigi síðar en 7. september á netfangið:
nkgolf@nkgolf.is eða með pósti:
Nesklúbburinn
Pósthólf 66
172 Seltjarnarnes
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
www.lyfja.is
Atvinnutækifæri hjá Lyfju hf.
Við leitum að metnaðarfullum og sjálfstæðum lyfjafræðingi í stöðu
lyfsöluleyfishafa.
Í starfinu felst m.a. að bera faglega ábyrgð á rekstri lyfjabúðarinnar, annast
daglegan rekstur og umsýslu, sjá til þess að unnið sé samkvæmt lögum og
reglugerðum um lyfsöluleyfi og samkvæmt þeim rekstrarlegu markmiðum sem
Lyfja setur. Lyfju í Borgarnesi fylgja þrjú útibú: Grundarfjörður, Stykkishólmur
og Búðardalur.
Vinnutíminn er frá kl. 10:00 til 18:00 virka daga og annan hvern laugardag
frá kl. 10:00 til 14:00.
Nánari upplýsingar veitir Hallur Guðjónsson, starfsmannastjóri,
sími 530 3800 eða hallur@lyfja.is
Ráðið verður í stöðuna sem fyrst.
Við leitum að sölu- og afgreiðslufólki í okkar frábæra stafsmannahóp.
Störfin felast í ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum í verslun, afgreiðslu á
kassa, afhendingu lyfja gegn lyfseðli, afgreiðslu á lausasölulyfjum og ráðgjöf
um val og notkun þeirra.
Um er að ræða hlutastörf eftir hádegi í apótekum okkar á höfuðborgarsvæðinu.
Í boði eru líflegir vinnustaðir, gott vinnuumhverfi, samkeppnishæf laun og
möguleiki á starfsþróun.
Við leitum að drífandi starfsfólki með ríka þjónustulund, söluhæfileika, góða
tölvukunnáttu og getu til að vinna undir álagi. Reynsla af verslunarstörfum er
æskileg og reynsla úr apóteki er kostur.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
L
Y
F
6
07
77
0
8.
20
12
Við leitum að sjálfstæðu,
skipulögðu og metnaðar-
fullu starfsfólki sem hefur
áhuga á að ganga til liðs
við framsækið og
spennandi fyrirtæki.
Lyfsöluleyfishafi Lyfja Borgarnesi
Sölu- og afgreiðslufólk á höfuðborgarsvæðinu
Nánari upplýsingar um störfin má finna á heimasíðu okkar, www.lyfja.is og
hjá starfsmannahaldi í síma 530 3800. Farið verður með allar umsóknir
og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Tekið er við umsóknum á vefslóðinni www.lyfja.is
Í samræmi við jafnréttisáætlun Lyfju hf. hvetjum við jafnt karla
sem konur til þess að sækja um stöðu hjá fyrirtækinu.
WWW.ICELAND.ESKIMOS.IS
SKÚTUVOGUR 1B
104 REYKJAVÍK
S. 414 1500
Eskimos Iceland leitar að orkuríkum starfskrafti til að sinna skipulagi ferða og upplifana
fyrir erlenda gesti.
Við leitum að einstaklingi með ríka þjónustulund sem er tilbúinn að leggja mikið á sig
og standa undir þeim væntingum og kröfum sem viðskiptavinirnir gera til okkar.
Viðkomandi þarf að vera skipulagður, hugmyndaríkur, sýna frumkvæði og hafa brennandi
áhuga á ferðamennsku.
Helstu skilyrði:
- Einstök þjónustulund, fáguð framkoma og öguð vinnubrögð
- Mjög góð kunnátta á Word, Excel og Outlook
- Reiprennandi töluð enska og skrifuð er skilyrði - Öll önnur tungumál eru mikill kostur.
Eskimos Iceland tekur á móti og skipuleggur ferðir og upplifanir fyrir nokkur þúsund
erlendra gesta á ári. Við leggjum mikla áherslu á klæðskerasniðnar lausnir og vegna
gríðarlegs fjölda verkefna þurfum við að bæta við teymið okkar. Hjá okkur er alltaf mikið
að gera og fyrir réttan aðila býðst fjölbreytt starf í ferðageiranum.
Umsókn og starfsferilsskrá sendist á STARF@ESKIMOS.IS
FERÐASKRIFSTOFA / FRAMTÍÐARSTARF