Fréttablaðið - 25.08.2012, Blaðsíða 70
25. ágúst 2012 LAUGARDAGUR38
timamot@frettabladid.is
Innilegar þakkir færum við þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts
og útfarar elskulegrar eiginkonu, móður,
ömmu, dóttur og systur,
SIGRÍÐAR KRISTÍNAR
BJARNADÓTTUR
Grænumýri 9, Akureyri.
Stefán Sigurðsson
Sigurður Stefánsson
Ester Stefánsdóttir
Bjarni Gestsson Ester Kristjánsdóttir
systkini og barnabörn.
Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, stjúpfaðir,
afi og langafi,
ÓLAFUR BEN SNORRASON
Laxalæk 36, 800 Selfossi,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
þriðjudaginn 21. ágúst. Útförin fer fram frá
Selfosskirkju fimmtudaginn 30. ágúst kl.
15.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent
á að láta MND-félagið njóta þess.
Irena Halina Kolodziej
Unnur Ben Ólafsdóttir Viðar Bergsson
Ólöf Þóra Ólafsdóttir
María Ben Ólafsdóttir Óskar Einarsson
Einar Ólafsson
Guðný Ólafsdóttir Gunnar Jökull Guðmundsson
Sara Rós Kolodziej
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við
andlát og útför elskulegrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
ÁLFHEIÐAR ÁRMANNSDÓTTUR
frá Skógum,
Lindasíðu 4, Akureyri.
Anna Soffía Sverrisdóttir
Sverrir Brynjar Sverrisson Elín Sigurðardóttir
Þóra Sverrisdóttir
Þorsteinn Berg
Sólrún Sverrisdóttir Óskar Steingrímsson
ömmubörn og langömmubörn.
Við þökkum innilega samúð og vinarhug við
andlát og útför móður okkar, tengdamóður,
vinkonu, ömmu og langömmu,
JÓNÍNU MARGRÉTAR
PÉTURSDÓTTUR
Bólstaðarhlíð 45, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 13E á
LSH og á hjúkrunarheimilinu Sóltúni.
Hörður Halldórsson Þórgunnur Skúladóttir
Gunnlaugur Halldórsson
Bryndís Halldórsdóttir Hany Hadaya
Matthías Bjarnason
barnabörn og langömmubörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
STEFANÍA KRISTÍN JÓNSDÓTTIR
skurðhjúkrunarfræðingur,
Skriðuseli 4, Reykjavík,
lést á Landspítalanum Fossvogi
sunnudaginn 19. ágúst. Útför hennar
fer fram frá Seljakirkju þriðjudaginn
28. ágúst kl. 13.00.
Gylfi Eiríksson
Sigríður Gylfadóttir Hannes Hauksson
Sverrir Jón Gylfason Sandra Rós Pétursdóttir
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför móður minnar,
ömmu og langömmu,
HELGU M. PÁLSDÓTTUR
Lindasíðu, Akureyri.
Sérstakar þakkir fá Heimahlynning Akureyri
og starfsfólk Lerkihlíðar Dvalarheimilinu Hlíð.
Gunnhildur Ásgeirsdóttir Þorgrímur G. Jörgensson
Helga Margrét Helgadóttir Ómar Örn Magnússon
Sara Helgadóttir Birgir Örn Guðjónsson
Ástkær bróðir okkar, frændi og vinur,
STEINGRÍMUR EGILSSON
frá Mið-Grund Skagafirði,
Ægisgötu 6, Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju
mánudaginn 27. ágúst kl. 13.30.
Oddný Egilsdóttir
Gottskálk Egilsson
Lilja Egilsdóttir
frændfólk og vinir.
Miðhraun 22 b, 210 Garðabæ, Sími 571 0400 granit@granit.is
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og bróðir,
INGÓLFUR INGÓLFSSON
Reynigrund 22, Akranesi,
lést á Sjúkrahúsi Akraness 23. ágúst. Útförin
fer fram frá Akraneskirkju miðvikudaginn 29.
ágúst kl. 10.30. Þeim sem vilja minnast hins
látna er bent á Krabbameinsfélag Íslands.
Ragnheiður Björg Björnsdóttir
Ingólfur Ingólfsson Fjóla Jóhannesdóttir
Berglind Ingólfsdóttir Hreggviður Ársælsson
Arnar Ingólfsson
afabörn og systkini.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærrar
móður minnar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
BRANDDÍSAR INGIBJARGAR
GUÐMUNDSDÓTTUR
frá Bæ.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á deildum
11B og 11G á Landspítalanum við Hringbraut.
Guðmundur Grétar Bjarnason Guðný S. Elíasdóttir
Elías Bjarni Guðmundsson Sigríður M. Þorfinnsdóttir
Gunnar Ingi Guðmundsson Dýrleif Ólafsdóttir
Margrét Ólöf Guðmundsdóttir Harald Helgheim
og langömmubörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
HANNES JÓNSSON
flugvirki,
Marbakkabraut 30, Kópavogi,
lést fimmtudaginn 23. ágúst. Útför hans fer
fram frá Kópavogskirkju föstudaginn
31. ágúst kl. 13.00.
Sigrún Sveinsdóttir
Sveinn Stefán Hannesson Helga Kristinsdóttir
Arnar Hannesson Sigurlaug Þorsteinsdóttir
Einar Hannesson Ása Rún Björnsdóttir
og barnabörn.
„Appelsínuguli liturinn er einkennis-
litur UN Women og á að minna okkur
á réttindabaráttuna fyrir betra lífi
kvenna,“ segir Inga Dóra Pétursdótt-
ir, framkvæmdastýra UN Women á
Íslandi. Samtökin halda appelsínu-
gulan dag 25. hvers mánaðar í fimm
mánuði sem á að vekja almenning
til vitundar um ofbeldi gegn konum
í heiminum og þörfina á að berjast
gegn því. „Verslanir við Laugaveg-
inn ætla að gera miðbæinn svolítið
appelsínugulan í dag með því að vera
með þann lit í gluggunum. Svo hvetj-
um við líka alla til að klæðast app-
elsínugulu og sýna þannig stuðning
sinn í verki á táknrænan hátt,“ segir
Inga Dóra og biður fólk að senda sér
myndir.
„Ofbeldi gegn konum er eitt helsta
mannréttindabrot allra tíma,“ segir
Inga Dóra. Hún tekur fram að sjónum
sé sérstaklega beint að Afganistan
nú, í tilefni þess að UN Women hefur
nýverið fordæmt ofbeldi gegn stúlk-
um og konum þar. „Svo er íslensk-
ur fókus á Afganistan líka. World
Economic Forum hefur þrívegis valið
Ísland þann stað sem best er að vera
kona á en Afganistan þann versta,
enda var komið árið 2009 þegar lög
um afnám ofbeldis gegn konum voru
samþykkt í Afganistan. Í þeim er
kveðið á um að það sé refsivert að
kaupa og selja konur, að selja konur í
vændi, kveikja í þeim og brenna með
sýru, að nauðga þeim og gifta stúlkur
undir sextán ára aldri.“
Tvær ungar stúlkur, Sahar Gul og
Lal Bibi, hafa nýlega vakið viðbrögð
í Afganistan og umræðu í alþjóða-
samfélaginu er þær bentu á að þessi
umræddu lög væru ekki virt, að sögn
Ingu Dóru. „Önnur þessara stelpna
var þrettán ára þegar hún var seld
í hjónaband til ofbeldisfulls eigin-
manns og ofbeldisfullrar tengdafjöl-
skyldu. Hún var pyntuð og henni var
nauðgað og haldið í gíslingu. Fjöl-
skylda hennar fékk hana loks lausa og
með hennar hjálp og mannréttinda-
samtaka er hún búin að leggja fram
kæru á hendur tengdafjölskyldunni
en ekki er búið að dæma í málinu.
Það er okkar allra að fylgjast með
svona málum. Að stelpur undir átján
ára aldri skuli stíga fram og bjóða
kerfinu og kúguninni birginn vekur
manni von og við verðum að sýna
þeim samstöðu,“ segir hún og bendir
á meiri upplýsingar á síðunni www.
unwomen.is.
Inga Dóra segir myndir af Íslend-
ingum, íklæddum rétta litnum, hafa
farið héðan á allar landsskrifstof-
ur UN Women, átján talsins, síðast
þegar appelsínuguli dagurinn var.
„Þær vöktu athygli,“ segir hún „sem
sannar að við getum sameinast um að
sýna lit.“ gun@frettabladid.is
INGA DÓRA PÉTURSDÓTTIR: STÝRIR APPELSÍNUGULA DEGINUM Á ÍSLANDI Í DAG
Sameinumst um að sýna lit
FRAMKVÆMDASTÝRA UN WOMEN „Að stelpur undir átján ára aldri skuli stíga fram og bjóða
kerfinu og kúguninni birginn vekur manni von og við verðum að sýna þeim samstöðu,“ segir
Inga Dóra. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Ofbeldi gegn konum
er eitt helsta mann-
réttindabrot allra tíma.
GEIRLAUGUR MAGNÚSSON SKÁLD (1944-2005) var fæddur þennan dag.
„brosti framan í morguninn/ elskaði náungann/ fylltist ofsagleði/ hló við sólinni.“
Merkisatburðir
1609 Galileo Galilei sýnir
nokkrum feneyskum kaup-
mönnum stjörnukíki sem
hann notaði til að skoða
tungl Júpíters og afsanna
þannig jarðmiðjukenninguna.
1718 Borgin New Orleans er
stofnuð í Louisiana.
1944 Bandamenn frelsa
París í síðari heimsstyrjöld-
inni.
1960 Sumarólympíuleikar
eru settir í Róm.
1970 Stífla var sprengd í Miðkvísl í Laxá í Suður-Þingeyjar-
sýslu í mótmælaskyni við stækkun Laxárvirkjunar.