Fréttablaðið - 25.08.2012, Page 78
25. ágúst 2012 LAUGARDAGUR46
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
BAKÞANKAR
Tinnu Rósar
Steinsdóttur
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Ok! Þá
sjáumst við á
barnum eftir
smá!
Gott plan! Ég
þarf bara aðeins
og fiffa mig til!
Sjáumst eftir
smá!
Þú ert sein!
I know! Ég varð
aðeins að plokka
augabrúnirnar!
Ég kenni þeim mikla
óstöðugleika sem fylgir
unglingsárunum um
þetta.
Áhugavert. Ég kenni því
um að Jeremy sé enn einu
sinni að reyna að gera mig
gjörsamlega brjálaðan.
Bíddu aðeins. Mér
líst ekkert á þetta! Ókeypis
flugur
Líffræði
101
Sko, svona er vanda-
málið í hnotskurn.
…Í hverju?
Hnotskurn. Það þýðir
að ég er að gera langa
sögu stutta.
Allavega, málið er að...
uu...umm...hmm...
Árans, ég er búinn
að gleyma því sem
ég ætlaði að segja.
Kannski
þarftu stærri
hnotu.
LÁRÉTT
2. mylsna, 6. kúgun, 8. kvikmynda-
hús, 9. rangl, 11. berist til, 12. þjaka,
14. splæs, 16. persónufornafn, 17.
aur, 18. hrópa, 20. ekki heldur, 21.
flokka.
LÓÐRÉTT
1. rusl, 3. í röð, 4. land, 5. samtín-
ingur, 7. kálsoð, 10. ílát, 13. gifti, 15.
felldi tár, 16. persónufornafn, 19. til.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. sáld, 6. ok, 8. bíó, 9. ráf,
11. bt, 12. plaga, 14. stang, 16. þú, 17.
for, 18. æpa, 20. né, 21. raða.
LÓÐRÉTT: 1. sorp, 3. áb, 4. líbanon,
5. dót, 7. kálsúpa, 10. fat, 13. gaf, 15.
grét, 16. þær, 19. að.
Erlendur blaðamaður greip mig á rölti niður Laugaveginn á dögunum. Hún var
að skrifa grein fyrir bandarískt tímarit um
stefnumótamenningu Íslendinga og bað um
álit. Ég jós úr viskubrunni mínum í dágóð-
an tíma og bölvaði því að riddaramennskan
væri steindauð hérlendis. Þegar hún spurði
mig af hverju ég héldi að það væri var ég
þó alveg mát. Sú spurning hefur blundað í
mér síðan. Hvað drap riddaramennskuna?
Er hún dauð? Kalla breyttir tímar kannski
á öðruvísi riddaramennsku? Umræðan um
það hve framarlega Ísland stendur varðandi
réttindi samkynhneigðra, transfólks og
annarra minni samfélagshópa hefur minnt
mig á það hvað kvenréttindabaráttan hefur
náð góðum árangri hérlendis. Er það mögu-
lega hún sem drap riddaramennskuna?
ÉG Á oft erfitt með að átta mig á hversu
langt ég vil að baráttan fyrir jafnrétti
kynjanna gangi. Ég er ekki tilbúin að fórna
því að mega vera hjálparlaus í vissum hlut-
um bara vegna þess að ég er kona. Einu
sinni reyndi ég til dæmis að hengja
upp mynd heima hjá mér. Útkoman
var gat í veggnum á stærð við ham-
arshaus.
UM daginn var eitt dekkið á
bílnum mínum loftlítið. Eftir að
hafa horft á það hugsi í dágóðan
tíma hélt ég á næstu bensínstöð.
Á leiðinni þangað ímyndaði ég
mér að dekkið myndi allt í einu
hætta að snúast og bíllinn þyrfti að keyra
á þremur dekkjum. Það myndi augljóslega
ekki ganga upp. Líklegast myndi hann þá
snarstansa á miðri leið með þeim afleiðing-
um að honum myndi hvolfa og taka nokkrar
veltur niður Ártúnsbrekkuna og ég stór-
slasast í kjölfarið – það gæti gerst! Kannski
hefði ég átt að fá dráttarbíl.
ÉG KOMST þó á bensínstöðina heilu og
höldnu. Þegar ég loksins fann loftdæluna
stóð ég við hana í smá stund, sneri upp á
hárlokk og þóttist lesa leiðbeiningarnar (en
var í raun að fylgjast með andahóp handan
götunnar) þar til myndarlegur herramað-
ur kom loksins upp að mér og bauð fram
aðstoð sína. Hann vippaði sér niður á hnén
og reddaði hlutunum á nokkrum sekúndum.
EFTIR AÐ hann hafði yfirfarið öll dekkin á
bílnum þakkaði ég fyrir mig og keyrði burt
sæl og glöð. Ég var samt örlítið pirruð á því
hvað hefði tekið hann langan tíma að koma
mér til hjálpar. Ég velti því fyrir mér hvort
kvenréttindabaráttan sé virkilega svo langt
leidd að eðlilegt þyki að lítil, ljóshærð stelpa
geti pumpað í dekkið á bílnum sínum sjálf?
ÉG VIL að skoðanir mínar séu teknar alvar-
lega og að mér séu veitt sömu laun fyrir
sama starf og karlmaður. Ég hef þó engan
áhuga á að borga á fyrsta stefnumóti eða
geta skipt um ljósaperu og svo sannarlega
hef ég engan áhuga á að kunna að pumpa í
dekkið á bílnum mínum. Ég meinaða!
Ósjálfbjarga og elska það
NÝ
KILJA