Fréttablaðið - 18.08.2012, Blaðsíða 16
18. ágúst 2012 LAUGARDAGUR
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
3
7
6
6
KLETTHÁLSI 11 og BREIÐHÖFÐA (Bílakjarninn)
VIÐ ERUM Á TVEIMUR STÖÐUM:
ISUZU D-Max
Nýskr. 07/06, ekinn 127 þús.
Dísil, sjálfskiptur.
Verð áður: 2.380 þús. kr. Rnr. 150889
NISSAN Navara 4wd SE
Nýskr. 09/06, ekinn 83 þús.
Dísil, 6 gírar.
Verð áður: 2.490 þús. kr. Rnr. 140555
RENAULT Megane Sport Tourer
Nýskr. 09/09, ekinn 65 þús.
Bensín, 5 gírar.
Verð áður: 2.190 þús. kr. Rnr. 150760
TILBOÐSVERÐ 1.490 þús. kr.
TILBOÐSVERÐ 2.490 þús. kr.
TILBOÐSVERÐ 1.690 þús. kr.
TILBOÐSVERÐ 1.590 þús. kr.
525 8000 - www.bilaland.is
GERÐU FRÁBÆR KAUP!
GERÐU FRÁBÆR KAUP!
GERÐU FRÁBÆR KAUP!
GERÐU FRÁBÆR KAUP!
GERÐU FRÁBÆR KAUP!
GERÐU FRÁBÆR KAUP!
GERÐU FRÁBÆR KAUP!
GERÐU FRÁBÆR KAUP!
M.BENZ M ML350
Nýskr. 08/06, ekinn 113 þús.
Bensín, sjálfskiptur.
Verð áður: 4.390 þús. kr. Rnr. 130263
FORD Explorer XLT 4wd Sport
Nýskr. 01/06, ekinn 70 þús.
Bensín, sjálfskiptur.
Verð áður: 2.220 þús. kr. Rnr. 101824
CHEVROLET Cruze LT
Nýskr. 06/10, ekinn 31 þús.
Bensín, sjálfskiptur.
Verð áður: 2.990 þús. kr. Rnr. 141288
TOYOTA Land Cruiser 150 VX 35
Nýskr. 12/10, ekinn 32 þús.
Dísil, sjálfskiptur.
Verð áður: 11.900 þús. kr. Rnr. 151250
RENAULT Laguna Berline dísil
Nýskr. 12/04, ekinn 155 þús.
Dísil, 6 gírar.
Verð áður: 1.190 þús. kr. Rnr. 141068
TILBOÐSVERÐ 3.890 þús. kr.
TILBOÐSVERÐ 1.290 þús. kr.
TILBOÐSVERÐ 9.900 þús. kr.
TILBOÐSVERÐ 690 þús. kr.
Hér sýnum við aðeins brot
af þeim bílum sem við erum
með á tilboði í ágúst. Endilega
kynntu þér tilboðsbílana á
www.bilaland.is
Skilgreiningar skipta máli og einnig frá hvaða hlið menn
horfa á vandamál sem við er að
etja. Undanfarin ár hefur verið
tíðrætt um skuldavandann, bæði
heima á Íslandi og erlendis.
Skuldavanda má hins vegar skil-
greina líka sem eignavanda. Skuld
eins er eign annars, í samræmi við
reglur hins tvöfalda bókhalds.
Ef skipt er um sjónarhól og horft
er á efnahagsvanda dagsins í dag
sem eignavanda gætu áherslur og
lausnir breyst að einhverju leyti.
Skuldavandi kallar á að finna leið-
ir til þess að skuldarinn greiði
skuldir sínar, eða þá einhver annar
fyrir hans hönd ef hann er ekki
borgunarmaður sjálfur. Við eigna-
vanda er brugðist við á annan hátt.
Hugmyndafræði áhættuleysis
Ein af syndum nútíma fjármála-
kerfis er hugmyndafræði áhættu-
leysis fjármagnseigenda. Að hægt
sé að „hedga“ sig í bak og fyrir
þannig að sá sem stundar lána-
starfsemi er í raun alltaf stikkfrí
– án áhættu – og geti ávaxtað sitt
pund sama hvað.
Á Íslandi kristallast þessi hug-
myndafræði í verðtryggingunni.
Hún leyfði, og beinlínis hvatti
til, ábyrgðarlausrar hegðunar
fjármálafyrirtækja á fasteigna-
lánamarkaði og ýtti undir mestu
fasteignabólu Íslandssögunnar. Í
kjölfar hruns er mottóið fyrst og
fremst það að þær skuldir skuli
innheimtast. Skiptir þá engu máli
hvort ábyrgðarlaust var lánað,
að verðtryggingarhlutinn hefur
vaxið fram úr hófi vegna þess
að ábyrgðarleysi lánveitendanna
sprengdi upp verðbólguna, að vext-
ir umfram verðbólgu voru alltaf
fullrausnarlegir og allt uppleggið
var byggt á sandi.
Nei, skuldarinn skal borga. Með
margföldum margföldurum vaxta,
vaxtavaxta og verðtryggingar.
Dugi það ekki til skal húsið tekið.
Dugi það ekki til, skal allt annað
tekið. Dugi það ekki til, er kallað
eftir ríkisstyrk. Kapítalismi og
frjálst markaðshagkerfi á ekki að
virka svona.
Bjargvættirnir afskriftir, verðbólga
og skattar
Eignavandi eins og við er að glíma
í dag – fyrst og fremst tengdur
peningalegum eignum – hefur við
eðlilegt markaðsástand þrjár leið-
ir til lausnar: í gegnum afskriftir,
með aukinni verðbólgu og/eða í
gegnum skattkerfið.
Afskriftir geta farið fram með
ýmsum hætti, allt frá samningum
milli aðila að gjaldþroti skuldara.
Millilausnir með aðkomu stjórn-
valda eins og 110% leiðin er til-
brigði við samningaleið. Ef bók-
færð peningaleg eign í formi lána
eða skuldabréfa stenst ekki, þá
er eðlilegt að afskrifa. Það verða
fyrirtækin, heimilin og einstak-
lingarnir að gera í sínu bókhaldi,
og sama á við um fjármálafyrir-
tækin. Ennþá er hins vegar haldið
á bókunum „eignum“ sem engan
veginn standa undir sér.
Við aukna peningaprentun,
hvort heldur sem á vegum hins
opinbera eða prívatsins, er við
því að búast að sá hluti hennar
sem ekki byggir á undirliggjandi
verðmæta- eða virðisauka hag-
kerfisins valdi verðbólgu. Verð-
bólga er í reynd ekkert annað en
eðlileg afleiðing efnahagslegrar
framúrkeyrslu án innstæðu. Hin
séríslenska skilyrðislausa verð-
trygging – trygging án nokkurs
fyrirvara – hefur ýtt undir, og ýtir
enn, undir hömluleysi umfram
efni í lánveitingum. Sérstaklega
var þetta áberandi í innrás bank-
anna á húsnæðislánamarkaðinn
fyrir hrun. Markaðsmódel þeirr-
ar innrásar beinlínis byggði á
samspili verðtryggingar og fast-
eignaverðs – aukin lán leiddu til
hærra verðs sem hækkaði höfuð-
stól veittra lána.
Í kjölfar hrunsins er verðtrygg-
ingin ein af ástæðum þess að ekki
hefur verið þorandi að leyfa hag-
kerfinu að leiðrétta sig sjálft. Það
myndi opinbera það að kerfið er
fullkomlega ósjálfbært. Það er
sorglegt að ekki sé til staðar póli-
tískt hugrekki á Alþingi til að
afnema verðtryggingu, eins ein-
falt mál og það nú er í núverandi
umhverfi gjaldeyrishafta. Ekki
þarf meira til en lagasetningu
sem bannar verðtryggingu (eða
takmarkar hana verulega) og inn-
kalla í kjölfarið öll verðtryggð
skuldabréf í skiptum fyrir óverð-
tryggð (eða fyrir beinharða pen-
inga, fersk prentaða).
Skattkerfinu má líka beita –
með mun róttækari hætti en hing-
að til hefur verið gert – til þess
að leiðrétta þá skekkju sem er í
hagkerfinu eftir hrun. Ákvörð-
unin um 100% tryggingu allra
innstæðna með pólitískri yfir-
lýsingu í miðju hruni var hugs-
anlega bæði skiljanleg og að ein-
hverju leyti réttlætanleg. Hins
vegar hefði í kjölfarið mátt beita
einskiptiskattlagningu á móti til
að greiða fyrir kostnaðinn vegna
tryggingarinnar og til að greiða
annan kostnað vegna hrunsins –
bæði augljósan og þann sem átti
eftir að koma í ljós. Innstæðu-
skattur, stórtækur eignaskattur
og skuldabréfaskattur hefðu getað
komið til greina. Slík einskiptis-
skattlagning hefði verið bæði
skiljanleg og ásættanleg strax í
kjölfar hrunsins.
Er tíminn runninn út?
En tíminn er líkast til að renna út
hvað varðar róttækar aðgerðir í
efnahagsmálum. Kreppan er búin
segja stjórnvöld og stjórnarand-
staðan tekur hálfgildings undir
og heldur því fram að hún væri
ennþá meira búin ef hún væri við
völd…!
En áfram lifa þær í kerfinu,
ósjálfbæru peningaeignirnar
í íslenskum krónum í höndum
aflands krónueigenda, jöklabréfa-
eigenda, eigenda ríkisskulda-
bréfa, lífeyrissjóða og húsnæð-
isbréfa. Einblínt er á dagsgengi
krónunnar í viðjum hafta og
ímyndað sér að þessar froðu-
eignir séu sambærilegar við pen-
ingaeignir í alvöru gjaldmiðlum.
Tímabundin túristasveifla nappar
Seðlabankann sofandi á verðinum
og ímyndunarveikin nær hámarki
í hærra gervigengi löngu ónýts
gjaldmiðils.
En það kemur að skuldadögum.
Hvaða svigrúm verður til rót-
tækra aðgerða þá?
Eignavandinn
Í þessari grein viljum við vekja athygli á nýstofnuðum sam-
tökum sem bera nafnið Valkost-
ir – Samtök um úrræði við ótíma-
bærum þungunum, og heimasíðu
samtakanna http://www.valkost-
ir.is.
Samtökin voru stofnuð þann
6. apríl í Reykjavík og í stjórn
Valkosta sitja fjórar konur. Við
erum Melkorka Mjöll Kristins-
dóttir lögfræðinemi, Lilja Írena
Guðnadóttir kennari, Þóra Huld
Magnúsdóttir sálfræðingur og
Sunna Kristrún Gunnlaugsdótt-
ir leikskólakennari. Markmið
okkar í samtökunum er að vinna
að því að finna fleiri lausnir
fyrir þungaðar konur en fóstur-
eyðingu og vekja athygli á þeim.
Við viljum með þessu móti reyna
að styðja ófrískar konur í erfiðri
aðstöðu, svo það verði þeim auð-
veldara að ganga með börnin sín.
Margar íslenskar konur virð-
ast standa frammi fyrir ótíma-
bærri þungun ár hvert. Á hverju
ári eru framkvæmdar tæplega
1.000 fóstureyðingar á Íslandi.
Ein af hverjum fimm þungun-
um endar með fóstureyðingu.
Að svona margar konur telji sig
ekki geta gengið með og eignast
börnin sín ætti að vera okkur
öllum umhugsunarefni. Því
miður virðast ekki allar konur fá
þann stuðning sem þær þurfa á
að halda til að geta haldið áfram
meðgöngunni. Og sumar tala
um pressu frá maka, ættingj-
um, vinum og jafnvel félagsráð-
gjafa og/eða læknum um að velja
einn valkost umfram annan – til
dæmis fóstureyðingu frekar en
að eignast barnið eða gefa það til
ættleiðingar. Okkur finnst það
umhugsunarvert að konur séu að
velja fóstureyðingu vegna utan-
aðkomandi þrýstings. Það er ekki
val, ekki frelsi. Og þess vegna
höfum við ákveðið að beina sjón-
um okkar að öðrum valkostum
og öðrum leiðum en fóstureyð-
ingu, í þeim tilgangi að aðstoða
þennan hóp kvenna.
Á heimasíðunni http://www.
valkostir.is er meðal annars
hægt að finna upplýsingar um
hvers konar aðstoð konur eiga
rétt á að fá frá sínu sveitarfé-
lagi, kjósi þær að ganga með og
eignast börnin sín. Upplýsingar
um aðstoð sem hægt er að fá frá
einstaklingum og félagasamtök-
um og upplýsingar um valkostinn
ættleiðingu. Þar að auki höfum
við komið á fót eins konar stuðn-
ingsneti fyrir konur sem þurfa
á aðstoð og ráðgjöf að halda. Sú
ráðgjöf fer fram í gegnum tölvu-
póst, á netfanginu radgjof@val-
kostir.is. Með þessu móti viljum
við reyna að hjálpa öllum þeim
þunguðu konum sem eru í vafa
um hvað þær eiga að gera, veita
þeim upplýsingar um hvaða val-
kostir eru fyrir hendi ef þær
ákveða að klára meðgönguna
og hvers konar aðstoð þær hafi
möguleika á að fá. Það ríkir 100%
trúnaður, og öllum fyrirspurnum
er svarað eins fljótt og auðið er.
Þeir sem hafa áhuga á að
skrá sig í samtökin eða verða
að liði á einhvern hátt, geta sent
okkur línu á netfangið valkost-
ir@valkostir.is. Einnig er hægt
að nálgast okkur á facebook
https://www.facebook.com/gro-
ups/333382636698912/. Allir eru
velkomnir í hópinn sem styðja
markmið hans. Við störfum óháð
pólitískum skoðunum og trúar-
sannfæringu.
Fyrir hönd Valkosta
Samfélagsmál
Þóra Huld
Magnúsdóttir
sálfræðingur
Stjórnmál
Friðrik
Jónsson
ráðgjafi hjá
Alþjóðabankanum
Afskriftir geta farið fram með ýmsum
hætti, allt frá samningum milli aðila
að gjaldþroti skuldara. Millilausnir með
aðkomu stjórnvalda eins og 110% leiðin er tilbrigði
við samningaleið. Ef bókfærð peningaleg eign í formi
lána eða skuldabréfa stenst ekki, þá er eðlilegt að
afskrifa.