Fréttablaðið - 18.08.2012, Blaðsíða 20
18. ágúst 2012 LAUGARDAGUR20
S
ystkinin Sölvi og Elsa
María Blöndal munu
ef að líkum lætur hefja
rúnt sinn um viðburði
menningarnætur á
Óðinstorgi í dag. Þar
mun eldri systir þeirra, Margrét
Kristín, sem flestir kalla Möggu
Stínu, koma fram á farandtónleik-
um sem haldnir verða til heiðurs
lagahöfundinum Ingibjörgu Þor-
bergs, í tilefni þess að hún verð-
ur 85 ára á þessu ári. „Ég ætla
að syngja Man ég þinn koss, sem
er mjög þekkt í hennar flutningi,
og lagið Nú ertu þriggja ára, sem
er mjög fallegt lag,“ segir Magga
Stína, gefur okkur smá tóndæmi
og rifjar lagið upp fyrir viðstödd-
um. Magga Stína getur svo sleg-
ið tvær flugur í einu höggi og séð
yngri systkini sín bæði tvö spila á
sama sviðinu, sem þau hafa reynd-
ar aldrei gert áður.
Undir hatti tónleikaraðarinnar
Undiröldunnar, sem haldin hefur
verið í Kaldalóni í Hörpu í vetur,
verður í þetta sinn blásið til tón-
leika á útisviði við Hörpu á milli
klukkan 17 og 19.30. Þar koma
nokkur nýleg bönd fram, þar á
meðal Dream Central Station,
sem Elsa María syngur með, og
Halleluwah, nýjasta gæluverk-
efnið hans Sölva. „Við spiluðum
einmitt í Hörpu á Undiröldunni í
vetur og það var mögnuð reynsla.
Hljóðkerfið er æðislegt, allt öðru-
vísi en litlar rokkhljómsveitir eiga
að venjast, sem eru vanar að spila
á börum þar sem allir eru fullir og
kerfið lélegt. Með Undiröldunni
hefur það sem er under ground
verið dregið upp á yfirborðið, sem
er frábært, því undiröldumúsík-
senan á Íslandi er stór og öflug,“
segir Elsa María.
Systkini eins og einbirni
Þau systkinin hafa öll verið áber-
andi í íslenskri tónlistarsenu, en
tilheyra ólíkum stefnum. Með
flokkunarmiða á lofti mætti tengja
Elsu Maríu við rokk, Sölva við
rapp og Möggu Stínu við nýbylgju,
en það er þó alltof mikil einföldun
til að vera réttlætanlegt. Þau passa
líka illa í flokka, þegar betur er að
gáð.
Sölvi: „Margir verða voðalega
hissa þegar þeir heyra að við
séum systkini. Það skýrist kannski
af því að það er svo langt á milli
okkar. Við erum fjögur systkini og
það eru sjö ár á milli okkar allra.
Mamma segir stundum að við
séum öll eins og einbirni. Við sem
eldri erum segjum þá alltaf: „Sér-
staklega Elsa!“.
Elsa María: „Þau vilja meina að
ég sé dekurbarnið í fjölskyldunni.
Það er náttúrlega haugalygi …“
Magga Stína: „Ég kalla þau tvö
nú stundum dekurtvistinn. Þetta
segi ég sem annað tveggja þján-
ingarfullra eldri systkina.“
Elsa María: „Við eigum líka
eldri bróður, Hauk. Hann fór ekki
út í tónlist, heldur er hann doktor
í eðlisfræði.“
Magga Stína: „Hann er lista-
maður á því sviði!“
Djúp ást á Zeppelin
Foreldrar systkinanna fjögurra
eru Sólveig Hauksdóttir, leikkona
og kennari með meiru, og Harald-
ur S. Blöndal, prentmyndasmiður
og kennari til margra ára. Þrátt
fyrir að foreldrarnir hafi sjálfir
ekki lagt fyrir sig tónlistina var
hún alltumlykjandi í æsku systk-
inanna. Móðir þeirra gerði til-
raunir til að senda þau öll í hljóð-
færanám og faðirinn er forfallinn
músíkáhugamaður.
Sölvi: „Pabbi eignaðist fyrsta
geislaspilarann á Íslandi.“
Elsa María: „Ertu að meina
það?! Djö#%”# töffari! Ég er allt-
af að komast að einhverju nýju …“
Magga Stína: „Það tók svona
hálftíma fyrir þennan geislaspil-
ara að opnast, lokast og byrja að
spila.“
Sölvi: „Ég lét sérstaklega kaupa
fyrir mig geisladisk í útlöndum
sem hét Pet Shop Boys, til að geta
spilað í honum. Annars man ég
best eftir vínylnum.
Rolling Stones, Canned Heat og
auðvitað Led Zeppelin. Þeir höfðu
stórkostleg áhrif á mig og urðu
þess valdandi að ég fór að læra á
hljóðfæri.“
Magga Stína: „Þeir höfðu líka
mikil áhrif á mig. Fyrsta platan
sem ég eignaðist var með þeim.“
Elsa María: Ég hef líka djúpar
tilfinningar til Led Zeppelin. En
þetta er að sumu leyti öðruvísi
með mig, því mitt tónlistaruppeldi
fór að mestu leyti í gegnum Sölva
og Möggu Stínu. Ég fór í gegnum
allan skalann, hlustaði á pönk 7, 8,
9 ára gömul og svo tók hiphop við.
Ég fékk það beint í æð frá Sölva
sem unglingur. Ég tók Beastie
Boys alveg inn að hjartanu.“
Sölvi: „Svo fann Elsa sína hillu
og síðan fór það sem hún hefur
verið að hlusta á að hafa áhrif á
mig. Hún kynnti mig fyrir böndum
eins og Suicide og Silver Apples.“
Uppskeruhátíð í haust
Í september er fyrsta plata Dream
Central Station væntanleg, en það
er hljómsveit Elsu Maríu og Hall-
bergs Daða Hallbergssonar, sem
gerði garðinn frægan með hljóm-
sveitinni Jakobínurínu. „Það er
Hallberg sem semur músíkina.
Hann fékk mig til að syngja þrjú
lög á plötunni, sem endaði með
því að ég söng alla plötuna með
honum, en það eru svo fjórir aðrir
strákar með okkur í bandinu. Þetta
er villt rokk og ról og við spilum
inn á fegurðina í myrkrinu. Við
Hallberg vinnum vel saman, ég
skil hann, hann skilur mig og
okkur þykir gaman að búa til
skandal.“
Haustið verður viðburðaríkt hjá
Elsu, því ekki aðeins kemur plat-
an hennar út í september, heldur
mun hún þá jafnframt taka þátt í
gerð bíómyndarinnar The Secret
Life of Walter Mitty, sem Ben
Stiller fer með aðalhlutverkið í.
Elsa er útskrifuð úr fatahönnun
við Listaháskóla Íslands. Reynsla
hennar þaðan mun líkast til nýt-
ast henni í næsta verkefni. „Það
kom upp í fangið á mér, fyrir fal-
lega tilviljun, að ég fékk stöðu sem
aðstoðarmanneskja í búningadeild
í bíómyndinni. Það er mjög gaman,
því það hefur löngum blundað með
mér áhugi á búningahönnun. Ég er
að vinna með Helgu Stefánsdótt-
ur og er þegar búin að læra heilan
helling. Þetta verður mikill skóli.“
Megas var erfiðasta verkið
Það má búast við því að við fáum
að heyra ýmislegt nýtt úr smiðju
Sölva og Möggu Stínu næstu mán-
uðina, nú þegar Sölvi er aftur kom-
inn á stjá og Magga Stína er tiltölu-
lega útskrifuð úr tónsmíðum við
Listaháskóla Íslands. Elsa María
segist hins vegar ekki hafa lagt
sig eftir því að semja tónlist, enda
kunni hún því ágætlega að túlka
lög annarra. Þá kemur vangavelta
frá stóru systur:
Magga Stína: „Já, en hvenær býr
maður til tónlist? Ég hef reynslu af
því að búa til mína eigin tónlist en
ekki síður af því að túlka tónlist
annarra. Það er náttúrulega bara
sköpun í sjálfu sér. Það að nálgast
hluti sem aðrir hafa gert er ekki
lítill vandi. Maður ber svo mikla
virðingu fyrir sköpunarverki ann-
arra.“
Hún hefur heldur ekki ráðist á
garðinn þar sem hann er lægstur
í þeim efnum, gaf meðal annars
út heila plötu með sinni túlkun af
lögum Megasar árið 2006, en þar
af voru þrjú óútgefin. Sú plata
opnaði eyru undirskrifaðrar fyrir
ljóðum Megasar, sem skila sér svo
fallega í gegnum mjúka rödd og
túlkun söngkonunnar.
Elsa María: „Ég heyri þetta oft,
að fólk hafi lært að taka á móti
Megasi með þessari plötu.“
Magga Stína: „Mikið þykir mér
vænt um að heyra þetta. Þetta
var eitt erfiðasta verk sem ég hef
unnið. Megas var heimilisvinur hjá
okkur og svo kynntist ég honum
upp á nýtt þegar ég varð fullorð-
in. Það var mikið tilfinningalegt
ferli að fara í gegnum þessa plötu.“
Dökkt og sjúkt en samt hresst
Undanfarin ár hefur Sölvi verið
búsettur í Stokkhólmi, eða allt frá
því að hljómsveitin hans, Quarashi,
lagði upp laupana árið 2005. Hann
er hagfræðingur og fær launin sín
greidd frá seðlabanka Svíþjóðar,
sem styrkir hann til doktorsnáms.
„Ég hélt ég væri hættur í tónlist,
því ég lagði hana alveg til hliðar
þegar ég flutti til Svíþjóðar. Þegar
Quarashi kom svo saman aftur á
síðasta ári, og við héldum meðal
annars tíu þúsund manna tónleika
á Hellu, þá gerðist eitthvað. Frá
því að strákurinn minn fæddist
svo fyrir fimm mánuðum fóru mér
að detta alls konar lög í hug aftur.“
Áður en Sölvi stofnaði Quarashi,
þegar hann var 21 árs, hafði hann
spilað með þó nokkrum pönksveit-
um. „Ég spilaði hundrað sinnum í
Norðurkjallara MH, en ég fann mig
samt aldrei í hljómsveitum, fyrr en
ég fékk að ráða öllu! Ég er auðvitað
að ýkja … En sannleikurinn liggur
þarna inni á milli línanna.“
Magga Stína: Sölvi er magnað-
ur maníubolti. Svona kjarnorku-
sprengjusmiður. Hann er fæddur
leiðtogi og alltaf á leiðinni eitt-
hvert. Þess vegna er svo lógískt
hvernig tónlist hann hefur alltaf
verið í. Hún er eins og beint fram-
hald af hans innsta kjarna.“
Elsa María: „Þannig upplifi ég
hann líka. Það er engin leið að
stöðva hann.“
Hið nýja verkefni hans, Halle-
luwah, vinnur hann með Agli
„Tiny“ Thorarensen, félaga sínum
úr Quarashi. Þeir hafa gefið frá
sér eitt lag, K2R. „Við Tiny vinnum
vel saman. Hann semur textana,
skapar konseptið og ég kem með
hljóðheiminn. Konseptið er svolítið
dökkt og sjúkt, en samt hresst. Ef
þetta væri bíómynd værum við að
tala um „early“ Tarantino.“
Magga Stína: „Svona falleg-
ur dúkkuleikur og svo allt í einu
sagar einhver af sér höndina?“
Sölvi: „Já, eða Reykjavíkur-
nætur ársins 2012, kannski,
svona fyrst við vorum að tala um
Megas.“
Margir verða voðalega hissa þegar þeir heyra að við séum
systkini. Það skýrist kannski af því að það er svo langt á
milli okkar. Við erum fjögur systkini og það eru sjö ár á
milli okkar allra. Mamma segir stundum að við séum öll
eins og einbirni.
Undir hvers annars áhrifum
Systkinin Margrét Kristín, Sölvi og Elsa María Blöndal eru líkari inn við beinið en kann að virðast við fyrstu sýn. Þessu komst
Hólmfríður Helga Sigurðardóttir að þegar hún saup á kaffi með þeim á einu heitasta síðkvöldi sumarsins 2012.
ÓFLOKKANLEG TÓNLISTARSYSTKINI Þau Elsa María, Magga Stína og Sölvi tilheyra ólíkum tónlistarsenum, en eru þó öll undir
sömu áhrifunum þegar vel er að gáð. Led Zeppelin og önnur bönd sem voru á fóninum heima hafa haft mikil áhrif á þau öll, en
þau eru ekki síður undir áhrifum af hvert öðru. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON