Fréttablaðið - 18.08.2012, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 18.08.2012, Blaðsíða 38
18. ágúst 2012 LAUGARDAGUR38 Það er orðinn árviss viðburður að Arsenal selji fyrirliða og einn sinn heitast elskaða leikmann í aðdraganda tímabilsins. Í fyrra var það Cesc Fabregas og nú Robin van Persie. Dagsetningin, 15. ágúst, var sú sama en munurinn er sá að Arsene Wenger virðist hafa reynt að fylla í skarðið í tíma. Lukas Podolski og Olivier Giroud munu skora mörk en kaupin á Santi Cazorla eru síst minna spennandi. Vondu fréttirnar eru þær að Alex Song virðist á förum auk þess sem óvíst er hvenær Jack Wilshere verður klár í slaginn. Upp- haf tímabilsins gæti því reynst Lund- únaliðinu erfitt en stuðningsmönnum liðsins er vafalítið ofarlega í huga hörmunarbyrjun liðsins á síðustu leiktíð. Tottenham býður í ár upp á fram- haldsmyndina „André Villas-Boas í enska boltanum“. Portúgalski stjórinn var rekinn vandræðalega snemma frá Chelsea í fyrra og mátti svo horfa upp á eftirmann sinn og aðstoðarstjóra skrá sig í sögubækur félagsins og hjörtu stuðningsmanna. Hversu langan tíma Villas-Boas fær með Tottenham skal ósagt látið en forverar hans af meginlandinu, ef Martin Jol er settur innan sviga, hafa ekki notið mikillar þolinmæði. Liðið hefur skemmtilega blöndu enskra og erlendra leikmanna en vantar sárlega heimsklassa fram- herja í viðbót við Jermain Defoe. Fólk ætti ekki að láta sér bregða þó Gylfi Þór Sigurðsson verði í auka- hlutverki til að byrja með enda sam- keppnin á miðju Tottenham hörð þó óhjákvæmileg brottför Luka Modric mýki hana. Stuðningsmenn Liverpool horfa enn eitt haustið bjartsýnisaugum á tímabilið. Nýr ungur stjóri er í brúnni, Luis Suarez , búinn að semja til enn lengri tíma og menn hættir að eyða orku í að þvertaka fyrir að kaupin á Andy Carroll hafi verið mis- tök. Stjórinn Brendan Rodgers hefur fengið tvo fyrrum liðsmenn sína með í ævintýrið og engin launung að Liverpool hefur á að skipa flottu byrjunarliði. Frammistaða Stevens Gerrard á EM gaf fögur fyrirheit og endurkoma hins áður hataða en síðar dáða Lucas á miðjunni er ekki síður til þess að auka á eftirvæntinguna. Árangur Liverpool á síðustu leik- tíð getur ekki orðið verri og aldrei að vita nema spennandi tími sé fram undan undir stjórn ungs knatt- spyrnustjóra með hugmyndafræði um hvernig eigi að spila fótbolta. M anchester City land- aði sínum fyrsta Englandsmeistara- titli í 44 ár með drama tískasta mögu lega hætti í maí. Tvö mörk í viðbótartíma tryggðu liðinu sigur í lokaumferð sem seint verður leikin eftir. Meistaratitillinn vannst á markatölu þar sem 6-1 útisig- ur á erkifjandanum og nágrannanum United gerði gæfumuninn. Almennt er talið erfiðara fyrir lið að verja titil heldur en að vinna hann en því gæti verið öfugt farið hjá City. Þrátt fyrir að liðið hafi farið lítinn á leikmannamarkaðnum samanborið við undanfarin ár er leikmannahópur félagsins án nokkurs vafa sá sterkasti í deildinni. Með tveimur stórum titlum á tveimur árum hefur skapast sigurhefð á Etihad-leikvanginum sem hefur aðeins aukið sjálfstraust og trú stjarnanna í ljósbláa búningnum. Mikilvægi fyrirliðans Vincents Kompany varð augljóst á síðustu leik- tíð er hann var frá vegna meiðsla. Liðið má illa við fjarveru hans og ef Roberto Mancini þarf að styrkja liðið á einhverj- um vígstöðvum er það í hjarta varnar- innar. Fá veikleikamerki er að finna á sóknarleik liðsins þar sem Sergio Aguero fer fremstur í flokki. Ef Carlos Tevez og Mario Balotelli einbeita sér að því sem þeir fá borgað fyrir er erfitt að sjá nokkuð lið skáka City. Sá enski byrjar að rúlla Keppni í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu hefst á nýjan leik í dag eftir þriggja mánaða sumarfrí. Þrjú lið þykja líklegust til afreka þótt stuðningsmenn Arsenal, Liverpool og Tottenham séu því eflaust ósammála. Kolbeinn Tumi Daðason velti fyrir sér stöðu mála í vinsælustu knattspyrnudeild í heimi. MEISTARAEFNI Belginn Vincent Kompany, fyrirliði Manchester City, lyftir bikarnum eftir ótrúlegan lokadag ensku úrvalsdeildarinnar í maí síðast- liðnum. Liðið hefur farið sér óvenju hægt á leikmannamarkaðnum í sumar en hópurinn er þó sá sterkasti í deildinni. NORDICPHOTOS/AFD MEISTARADEILDARSÆTI? Ítalinn Fabio Borini, nýr framherji hjá Liverpool, og hinn enski Kyle Walker hjá Tottenham verða væntanlega í eldlínunni í vetur. Íslendingaleysi Gylfi Þór Sigurðsson verður fimmtándi Íslendingurinn sem spilar í ensku úrvalsdeildinni frá formlegri stofnun hennar árið 1992. Þegar best lét, tímabilið 2005-2006, spiluðu fimm Íslendingar með liðum í úrvalsdeildinni. Fjórir léku með úrvals- deildarliðum í fyrra en ýmist féllu eða hafa haldið á ný mið. Gylfi Þór stendur því einn fjórmenninganna áfram vaktina fyrir Íslands hönd í vetur. Auk Gylfa Þórs er Brynjar Björn Gunn- arsson á mála hjá nýliðum Reading og reiknað er með því að hann verði í 25-manna leikmannahópnum sem tilkynna þarf fyrir lok mánaðarins. Flest benti til þess að Vesturbæingurinn spilaði með KR í sumar en Brynjar, sem verður 37 ára í október og er í miklu uppáhaldi stuðningsmanna Reading, var beðinn um að vera til halds og trausts í eitt ár til viðbótar. Spilatími kappans verður þó að öllum líkindum af skornum skammti. ÍSLENDINGAR Í ÚRVALSDEILDINNI 89 stig hefðu dugað Manchester United til sig-urs öll keppnistímabilin í ensku úrvalsdeild- inni ef frá er talið það síðasta. Ótrúlegur árangur hjá liði sem glímdi við meiðslavandræði sem aðeins Arsene Wenger kannast við, auk þess sem liðið þótti spila vel undir pari. Tímabilið var það fyrsta bikarlausa frá því 2004-2005 og því tímabil von- brigða hjá félagi sem hefur verið nánast óstöðvandi undanfarna tvo áratugi. Markvarðarstaðan er enn áhyggju- efni hjá United og sömu sögu má segja um bakvarðarstöðurnar þar sem Patrice Evra má muna sinn fífil fegurri og enginn virðist augljós fyrsti kostur hægra megin. Endur- koma Nemanja Vidic eftir átta mánaða fjarveru er fagnaðarefni enda um jafnbesta varnarmann deildarinnar að ræða. Með kaupunum á Robin van Persie stendur liðið vel að vígi sóknarlega enda með fjóra frá- bæra framherja og er þá Dimit- ar Berbatov ótalinn. Shinji Kagawa er kærkomin viðbót í sköpunarferlið á miðjunni en hvort honum tekst að láta til sín taka svo tekið verði eftir á sínu fyrsta tímabili á Old Trafford kemur í ljós. ÍSLENDINGAR Í ÚRVALSDEILDINNI FÉLÖG Þorvaldur Örlygsson Nottingham Forest Guðni Bergsson Tottenham, Bolton Heiðar Helguson Watford, Fulham, Bolton, QPR Jóhann Birnir Guðmundss. Watford Arnar Gunnlaugsson Bolton, Leicester Eiður Smári Guðjohnsen Chelsea, Tottenham, Stoke, Fulham Þórður Guðjónsson Derby Lárus Orri Sigurðsson WBA Hermann Hreiðarsson Crystal Palace, Wimbledon, Ipswich, Charlton, Portsmouth Jóhannes Karl Guðjónsson Aston Villa, Wolves, Burnley Ívar Ingimarsson Reading Brynjar Björn Gunnarsson Reading Grétar Rafn Steinsson Bolton Eggert Gunnþór Jónsson Wolves Gylfi Sigurðsson Tottenham (hefur ekki enn spilað leik) Eina liðið sem telja má líklegt til að veita Man- chester-risanum keppni fram í rauðan dauðann er Evrópumeistaralið Chel- sea. Segja má að martröð hafi orðið að ótrúverðugum draumi þegar Lundúna- liðið fagnaði ekki aðeins sigri í ensku bikarkeppn- inni heldur kom langþráð- ur Meistaradeildarbikar í hús. Allt féll með Chelsea á vormánuðum og varð til þess að bráðabirgðastjór- inn Roberto Di Matteo fékk tveggja ára samning. Didier er farinn en tveir afar spennandi leikmenn mættir á svæðið. Belginn Eden Hazard er loksins mættur í ensku úrvalsdeildina en besti leikmaður frönsku deildarinnar undanfarin tvö ár fær sam- keppni frá Brasilíumanninum og jafnaldra sínum Oscar í skapandi hlutverki í sóknarleik Chelsea. Þá má ekki gleyma því að Chelsea á inni Fernando Torres sem mun dæla inn mörkum um leið og sjálfs- trauststankurinn fyllist. ■ CHELSEA ■ MANCHESTER UNITED Gætu háð baráttu um þriðja sætið í deildinni ■ ARSENAL, TOTTENHAM OG LIVERPOOL Hazard loksins mættur Titlaleysi sæmir United ekki
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.