Fréttablaðið - 18.08.2012, Side 80

Fréttablaðið - 18.08.2012, Side 80
18. ágúst 2012 LAUGARDAGUR44 timamot@frettabladid.is Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýju við andlát elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÖNNU G. HALLSDÓTTUR frá Gríshóli, Efstasundi 94, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Hjúkrunarheimilinu Skjóli. Þorbjörg Kristvinsdóttir Bjarni B. Sveinsson Höskuldur Kristvinsson Barbara J. Kristvinsson Hallur Kristvinsson Sigrún Einarsdóttir Katla Kristvinsdóttir Jóhann Thoroddsen barnabörn og barnabarnabörn. Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför SVERRIS GUÐBRANDSSONAR Hafnarbraut 31, Hólmavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunarinnar á Hólmavík og taugadeildar Landspítalans í Fossvogi. Guðbrandur Sverrisson Lilja Þóra Jóhannsdóttir Þórður Sverrisson Ingibjörg Elísa Fossdal Matthildur Guðbjörg Sverrisdóttir Ingimundur Benediktsson Aðalbjörn Guðm. Sverrisson Analita Gonzales Björn Halldórs Sverrisson Helga Berglind Gunnarsdóttir Ragnar Rúnar Sverrisson Dýrfinna Petra Hansdóttir Heiðrún Rósa Sverrisdóttir Ragnar Guðm. Gunnarsson og fjölskyldur. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HJÖRDÍS M. JÓHANNSDÓTTIR Skipholti 43, Reykjavík, lést föstudaginn 10. ágúst sl. Útför hennar fer fram frá Háteigskirkju föstudaginn 24. ágúst kl. 15.00. Benedikt Harðarson Gylfi Harðarson Stella S. Sigurðardóttir Hilmar Harðarson Þorgerður L. Diðriksdóttir Hörður Harðarson Eva Jóhannsdóttir Áslaug Þóra Harðardóttir Ingólfur Arnarsson barnabörn og langömmubörn. Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐRÚNAR ÓLAFSDÓTTUR Lækjasmára 4, Kópavogi. Halldór Ólafsson Gyða Þórisdóttir Inga Ólafsdóttir Guðmundur Jónsson Sigrún Ólafsdóttir Guðmundur Ingi Ásmundsson Ómar Örn Ólafsson Sigurbjörg Alda Guðmundsdóttir Gunnar Ólafsson Brynhildur Ásgeirsdóttir Ólafur Jóhann Ólafsson Sigríður Einarsdóttir barnabörn og langömmubarn. GYLFI Þ. GÍSLASON RÁÐHERRA (1917-2004) andaðist þennan dag. „Sá einn er sannur maður sem kann að njóta hvors tveggja í jafn ríkum mæli, félagsskapar og einveru.“ Merkisatburðir 1945 Svavar Guðnason listmálari sýndi verk sín í Listamanna- skálanum og var þetta fyrsta sýning á Íslandi þar sem öll verk- in voru abstrakt. 1954 Minnismerki um Skúla Magnússon landfógeta var afhjúpað í gamla kirkjugarðinum við Aðalstræti í Reykjavík. 1961 Grasagarður Reykjavíkur var formlega opnaður. 1966 Jóhannes S. Kjarval tók fyrstu skóflustungu að myndlist- arhúsi á Miklatúni(sem fyrir 1964 hét Klambratún og hefur endur- heimt það nafn). 1988 Endurbótum lauk á Viðeyjar- stofu og Viðeyjarkirkju. 1990 Listaverkið Sólfar eftir Jón Gunnar Árnason var afhjúpað við Sæbraut í Reykjavík. „Þegar ég varð fertugur fór ég til Prag, fimmtugur stakk ég af til Portúgals en nú ætla ég að hafa smálegt „sam- menkomst“ fyrir mína nánustu,“ segir Jónas Haraldsson, ritstjóri Frétta- tímans, spurður um afmælishald því hann er sextugur í dag. Kveðst líka svo heppinn að hitta á afmælisdag Reykja- víkur. „Í æsku var flaggað á strætis- vögnunum þennan dag og nú er meiri háttar hátíð með flugeldasýningu, ég tek minn skammt af þessum herleg- heitum.“ Landsmenn þekkja Jónas sem blaða- mann og ritstjóra en vita kannski ekki allir hvaðan hann er sprottinn. „Ég er Reykvíkingur, alinn upp í Langagerð- inu í hópi fimm systkina,“ upplýsir hann. „Þarna í Smáíbúðahverfinu var fullt af börnum og unglingum á þeim tíma og mikið fjör. Þar var ágætur íþróttakennari sem Árni Njálsson heit- ir. Ef hann nennti ekki að kenna sprikl í leikfimi var skipt í lið sem var auðvi- tað miklu skemmtilegra. Ég var aldrei neinn afreksmaður í íþróttum en við guttarnir spiluðum fótbolta alls staðar, höfðum gjarnan bílskúrshurðir fyrir mark og trjágróður átti erfitt uppdrátt- ar í hverfinu því við skutum niður allar plöntur í uppvexti.“ Jónas varð stúdent frá Menntaskól- anum í Hamrahlíð árið 1972 í hópi Stuðmanna og fleira fjörugs fólks sem enn hittist á fimm ára fresti. Síðan lá leiðin í Háskóla Íslands í félags- fræði og eftir háskólann beint í blaða- mennsku. „Ég sótti um hjá nafna mínum Kristjánssyni á Dagblaðinu sem þá var tveggja ára og hef verið nánast óslitið í blaðamennsku í þrjá- tíu og fimm ár – er að verða með elstu körlum í þeirri grein. Hún er þó ekki góð þeim sem komast á virðulegan aldur því þeir eru yfirleitt settir út á Guð og gaddinn sem ég tel óskynsam- legt því mikilvægt er að halda reynslu inni á ritstjórnum og færa þekkingu frá þeim eldri til hinna yngri.“ Jónas hefur gaman af að ferðast um Ísland og finnst allir fjórðungar falleg- ir, hver með sínum hætti. „Við hjónin eigum okkar kot í sveit og okkur til gleði sækja bæði börn og barnabörn þangað líka. Ég var smali vestur við Breiðafjörð, í Múlasveit. Þar þekki ég hverja þúfu og þar ætlum við systkin- in að koma okkur upp öðru koti. Ég er ekki mikið að rækta heldur nýt þess að vera úti í náttúrunni eins og hún er. Þó fullt sé af berjum þá nenni ég ekki að tína þau, vil bara að fuglarnir njóti þeirra.“ Jónas segir þau hjón líka eiga marg- ar utanlandsferðir að baki, svo sé frúnni fyrir að þakka. Slíkar ferðir hefur hann gert að yrkisefni í helgar- pistlum sínum eins og fjölmargt annað sem tilheyrir lífi venjulegrar fjöl- skyldu. „Ég held að margir sjái sjálfa sig í svipuðum aðstæðum og ég lýsi í mínum pistlum, þó sumt sé þar byggt á hæpnum forsendum því ég hef skálda- leyfi,“ segir Jónas. „Þessi pistlar snú- ast dálítið um samskipti kynjanna og yfirleitt hefur konan betur á endanum. Það er kannski þess vegna sem konur lesa þá oft og hafa svolítið gaman af. Sumar segjast meira að segja fara með mig í rúmið – það er að segja pappír- inn, ekki sjálfan mig!“ gun@frettabladid.is JÓNAS HARALDSSON, RITSTJÓRI FRÉTTATÍMANS: ER SEXTUGUR Í DAG Þær fara með mig í rúmið RITSTJÓRINN „Ég hef verið nánast óslitið í blaðamennsku í þrjátíu og fimm ár – er að verða með elstu körlum í þeirri grein,“ segir Jónas. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Reykjavík fékk kaupstaðarréttindi þennan dag árið 1786, ásamt Grund- arfirði, Ísafirði, Akureyri, Eskifirði og Vestmannaeyjum. Þeir sem settust að í þessum kaupstöðum fengu ókeyp- is borgararétt og lóð, byggingarstyrk og undanþágu frá gjöldum til ríkis- ins í tuttugu ár. Þessa gátu menn, sem voru þegnar annarra ríkja, orðið aðnjótandi ef þeir settust að í íslensk- um kaupstað og áttu þrjú þúsund rík- isdala virði. Þó var það skilyrði sett að þeir sem stofnuðu verslun ættu til- skilið magn varnings, ef marka má bókina Öldin átjánda sem Jón Helga- son tók saman og Iðunn gaf út árið 1961. Þetta ár voru Íslendingar 38 þús- und en Reykvíkingar töldust 167. Húsin í Reykjavík voru þá 39 talsins. ÞETTA GERÐIST: 18. ÁGÚST 1786 Reykjavík fékk kaupstaðarréttindi
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.