Fréttablaðið - 18.08.2012, Blaðsíða 86
18. ágúst 2012 LAUGARDAGUR50
„Ég skoða bara eitthvað efni
sem mamma mín á og teikna
svo mynd. Ef hún á ekki svoleið-
is efni þá kaupir hún það bara.
Svo saumar mamma það sem ég
teikna,“ segir Vaka Sif Tjörva-
dóttir sem, þrátt fyrir að vera
ekki nema fjögurra ára gömul,
hefur hannað bæði flíkur og
fylgihluti fyrir dúkkurnar sínar.
Vaka á ekki langt að sækja
hæfileikana en mamma hennar,
Guðrún Ásdís, er sjálf hönnuður
og hefur meðal annars sérhæft
sig í að hanna og sauma tösk-
ur af ýmsum stærðum og gerð-
um. Frá því að Vaka var pínu-
lítil hefur hún fylgst náið með
mömmu sinni og deilir meira að
segja vinnustofu með henni, þar
sem hún hefur sína eigin vinnu-
stöð.
Vaka hannaði nýverið tvær
glæsilegar töskur, með ýmsum
nákvæmum smáatriðum, sem
mamma hennar bjó til í Barbie-
stærð. Vaka er einmitt að leika
sér með Barbie-dúkkuna sína
þegar blaðamaður og ljósmynd-
ari kíkja í heimsókn til hennar
þar sem hún býr með litlu systur
sinni, mömmu og pabba í Vest-
urbænum í Reykjavík. „Mér
finnst skemmtilegast að leika
mér með þessa Barbie-dúkku og
mér finnst gaman að setja hana í
þessa gullskó hérna,“ segir Vaka
og sýnir okkur hvernig maður
fer að því að klæða dúkk-
una. Barbie-dúkkurnar
hennar Vöku eru nokkuð
heppnar, því þær eiga sitt
eigið hús í herberginu,
sem þær mæðgur eru
einmitt að leggja loka-
hönd á, en það bjuggu
þær til sjálfar. Inni í því
er rúm, skápur og fleiri
sniðug húsgögn sem þær
mæðgur hafa dundað sér
við að búa til. Næst á dag-
skrá er að klæða húsið að utan-
verðu og Vaka sýnir ákveðin og
stolt hvernig klæðningin lítur út.
Litla systir hennar Vöku, hún
Freyja, sem er tveggja ára gömul,
hefur líka gaman að leika sér
með Barbie-dótið. Hún er samt
ekki alveg búin að læra að taka
til eftir sig og það kemur fyrir
að hún skemmi hlutina. En Vaka
tekur það oftast ekki nærri sér,
því hún veit að litla systir gerði
þetta óvart og svo getur hún
alltaf búið til eitthvað nýtt.
Næst ætlar Vaka að hanna
peysu á sjálfa sig: „Veistu
hvað! Mamma ætlar að
prjóna á mig ullarpeysu!“
segir hún og tekur fram að
það verði samt Vaka sjálf
sem ákveði hvernig peys-
an á að vera. Hún er ekki
búin að klára hönnunina
enn þá, en er þó búin að
ákveða að peysan skuli
verða bleik á litinn.
krakkar@frettabladid.is
50
Bókaormur vikunnar
Hvað heitir þú fullu nafni? Melkorka Fanný
Kristófersdóttir.
Hvað ertu gömul? Tíu ára.
Lestu mikið? Já, já, mest tímaritið Júlíu og
skemmtilegar bækur.
Hvenær lærðir þú að lesa? Í 1. bekk.
Hvað er skemmtilegt við að lesa bækur? Það
er svo skemmtilegt að lesa skemmtilegar bækur.
Manstu eftir fyrstu bókinni sem var í upp-
áhaldi hjá þér? Heiða, bók sem mamma átti
sem stelpa og gaf mér.
Hvers lags bækur þykja þér skemmtileg-
astar? Spennandi, skemmtilegar og fyndnar
eins og Fíasól, Dagbók Kidda klaufa og Joody
Moody.
Hvaða bók lastu síðast og hvernig var hún?
Joody Moody og hún var fyndin.
Í hvaða hverfi býrð þú? Staðarhverfi í Grafar-
voginum.
Í hvaða skóla gengur þú? Kelduskóla/Korpu-
skóla.
Hvaða námsgrein er skemmtilegust? Textíll.
Hver eru þín helstu áhugamál? Hundar, tón-
list og að lakka neglurnar.
FJÖGURRA ÁRA HANNAR
DÚKKUFÖT OG TÖSKUR
Vaka Sif Tjörvadóttir er fjögurra ára gömul stelpa sem býr í Vesturbænum í
Reykjavík, með litlu systur, henni Freyju, mömmu og pabba. Þó hún sé ekki eldri
en þetta er hún löngu farin að hanna föt og fylgihluti fyrir dúkkurnar sínar.
FREYJA OG VAKA Hér er Vaka Sif með Barbie-dúkkuna sína. Fyrir aftan hana situr
litla systir, Freyja, sem fylgist af forvitni með öllu því sem stóra systir tekur sér fyrir
hendur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Ég skoða bara
eitthvað efni
sem mamma mín á og
teikna svo mynd. Svo
saumar mamma það
sem ég teikna.
Tvær kýr sátu uppi í tré og
prjónuðu mjólkurfötu. Hestur
flaug hjá. Önnur kýrin spurði:
„Sástu þetta?“
„Nei,“ svaraði hin.
Hesturinn flaug aftur hjá og
enn spyr sú fyrri:
„Sástu núna?“
„Já, hann hlýtur að eiga
hreiður hér í grennd.“
Kona gengur inn í fataverslun
og ávarpar afgreiðslumann-
inn:
- „Eigið þið hér til ósýnilegar
buxur?“
- „Já, við vorum einmitt að
fá sendingu af ósýnilegum
buxum í dag.“
- „Einmitt, já. Get ég fengið
að sjá þær?“
Einu sinni voru tvær appels-
ínur að labba yfir brú. Önnur
þeirra datt út í ána.
- „Hjálp, hjálp, hjálp!“
- „Bíddu aðeins! Ég þarf bara
að skera mig í báta!“
Fáðu þér góða
mjólkurskvettu!
www.ms.is
NORRÆNA HÚSIÐ Fjörkálfur er barnasýning með sögumanni og lifandi tónlist í klass-
ískum búningi sem verður sýnd í Norræna húsinu á menningarnótt, í dag 18. ágúst, bæði
klukkan 12 og 14. Hún er um 30 mínútur að lengd og einkum ætluð fimm til tíu ára fólki.