Fréttablaðið - 18.08.2012, Blaðsíða 102
18. ágúst 2012 LAUGARDAGUR66
sport@frettabladid.is
STUÐNINGSMENN KR OG STJÖRNUNNAR ætla að taka daginn snemma og hita upp fyrir bikarúrslitaleikinn
sem hefst klukkan 16.00. KR-ingar hittast á Rauða Ljóninu klukkan 12.00 og svo verða rútuferðir á völlinn klukkan 15.00.
Silfurskeiðin verður aftur á móti á Ölveri frá klukkan 13.00 og svo verður skrúðganga í Laugardalinn þaðan.
FÓTBOLTI Hollenski framherjinn
Robin Van Persie skrifaði undir
fjögurra ára samning við Man-
chester United í gær og hitti
síðan blaðamenn eftir að hafa
farið á fyrstu æfingu sína með
nýju félögunum. Eflaust trúðu
ekki margir í fyrstu fréttunum af
komu Van Persie á Old Trafford
þegar þær láku fyrst út enda ekki
á hverjum degi sem fyrirliði og
markakóngur eins af stóru klúbb-
unum er seldur til erkifjendanna.
Arsene Wenger, stjóri Arse-
nal, reyndi allt sem í sínu valdi
stóð til að halda Van Persie hjá
Arsenal en Hollendingurinn var
búinn að ákveða sig að fara og
vildi umfram allt komast til Sir
Alex Ferguson. Samningaviðræð-
ur Manchester United og Arsenal
tóku langan tíma en Wenger gat
ekki annað á endanum en sam-
þykkt gott tilboð United í Van
Persie.
Wenger vildi selja hann til PSG
Frá því að Wenger tók við sem
knattspyrnustjóri Arsenal árið
1996 hefur hann aldrei selt leik-
mann til Manchester United.
„Ef ég á að vera heiðarlegur þá
reyndum við að komast hjá því
að þetta gerðist. Ef ég hefði mátt
ráða þá hefðum við selt hann til
félags utan Englands, til dæmis
til PSG,“ sagði Arsene Wenger í
viðtali við frönsku sjónvarpsstöð-
ina TF1, en franski stjórinn sér
bjarta hlið á brotthvarfi Robin
van Persie.
„Hann skilur eftir sig skarð
sem aðrir fá nú tækifæri til þess
að fylla,“ sagði Wenger.
Robin Van Persie var með 30
mörk og 14 stoðsendingar í 38
leikjum með Arsenal á síðustu
leiktíð og skoraði þremur mörk-
um meira en næstmarkahæsti
maðurinn Wayne Rooney nýr
liðsfélagi hans. Það er því örugg-
lega ekki fyrir viðkvæma stuðn-
ingsmenn Arsenal að sjá Van
Persie hlaupa um í búningi Man-
chester United.
„Við héldum að við gætum
aldrei fengið Van Persie og það
var enginn möguleiki að sjá þetta
gerast fyrir sex mánuðum,“ sagði
Sir Alex Ferguson, stjóri Man-
chester United. „Ég hélt að Arse-
nal ætlaði ekki að sleppa honum
en við stukkum á þetta um leið
og við fréttum að hann ætlaði
ekki að skrifa undir nýjan samn-
ing. Þetta hefur tekið sinn tíma,“
sagði Ferguson.
Engin leiðindi í gangi
„Arsene (Wenger) vissi að strák-
urinn vildi fara og hann vissi líka
að hann vildi koma til okkar. Það
gerði þetta aðeins auðveldara en
þó ekki í að ákveða kaupverðið.
Wenger gæti rekið pókerskóla í
Govan. Hann fékk fínt verð fyrir
leikmanninn en við erum líka
ánægðir með að hafa náð að klára
þetta mál. Arsene hefur staðið
sig vel í þessu máli frá fyrstu við-
ræðum,“ sagði Ferguson.
Robin Van Persie var sjálf-
ur í skýjunum þegar hann hitti
blaðamenn. „Það eru engin leið-
indi í gangi, hvorki hjá mér eða
hjá Arsenal. Arsenal er hluti af
mínu lífi og félagið hefur reynst
mér vel. Við vorum ekki sammála
um framtíðina og svona er bara
lífið,“ sagði Robin Van Persie á
blaðamannafundinum.
Hlustaði á litla strákinn inn í sér
„Þegar ég þarf að taka erfiðar
ákvarðanir í mínu lífi þá hlusta
ég á litla strákinn inni í mér.
Þessi litli strákur öskraði Man-
chester United. Hjá Manchester
United snýst allt um fótboltann
og þetta er fullkominn staður
fyrir mig,“ sagði Van Persie.
„Það er mikil áskorun fyrir
mig að spila með þessum leik-
mönnum. Það eru allir tilbúnir
til að hjálpa mér og þetta er eins
og koma inn í stóra fjölskyldu.
Þetta er samt stærsta áskorun-
in á mínum fótboltaferli,“ sagði
Van Persie sem myndar nú magn-
að framherjapar með Wayne Roo-
ney. Saman skoruðu þeir 57 mörk
og gáfu 21 stoðsendingu í ensku
úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.
ooj@frettabladid.is
FULLKOMINN STAÐUR FYRIR MIG
„Við héldum að við gætum aldrei fengið Van Persie,“ sagði Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United,
þegar Robin Van Persie var kynntur sem leikmaður Manchester United í gær. Van Persie fær treyju númer
20 og spilar væntanlega fyrsta leikinn með sínu nýja liði á móti Everton á mánudagskvöldið.
MÆTTUR Á OLD TRAFFORD Robin Van Persie fær hér góð ráð frá stjóranum Sir Alex
Ferguson á sinni fyrstu æfingu með United-liðinu í gær. NORDICPHOTOS/GETTY
GOLF Birgir Leifur Hafþórsson,
atvinnukylfingur úr GKG, er á
meðal efstu manna fyrir loka-
keppnisdaginn í Áskorendamóta-
röð Evrópu. Keppt er í Horsens
í Danmörku en um er að ræða
næststerkustu atvinnumótaröð
Evrópu.
Birgir lék á 69 höggum í gær,
eða þremur höggum undir pari,
og er hann samtals á átta höggum
undir pari. Klas Eriksson frá Sví-
þjóð er efstur en hann er á ellefu
höggum undir pari.
Birgir tapaði aðeins einu höggi
í gær er hann fékk skolla á 17.
braut. Á móti kom að hann fékk
fugl á 1., 7., og 10. braut. Hann er
í 8.-10. sæti en fyrir ofan hann
eru tveir kylfingar á níu höggum
undir pari og svo eru fjórir á tíu
höggum undir pari.
Mótið er hluti af Áskorenda-
mótaröð Evrópu og er þetta
þriðja mótið hjá Birgi á þessu
tímabili í Áskorendamótaröðinni.
Hann endaði í 26. sæti á fyrsta
mótinu en komst ekki í gegnum
niðurskurðinn á því næsta.
Birgir Leifur mun bæta stiga-
stöðu sína verulega á þessu móti
þar sem hann er í góðri stöðu
fyrir lokahringinn en Birgir var í
225. sæti peningalistans í Áskor-
endamótaröðinni fyrir þetta mót.
- seth
Birgir keppir í Danmörku:
Er á meðal
efstu manna
BIRGIR LEIFUR Hefur gengið vel í
Horsens. NORDICPHOTOS/GETTY
GOLF Arnar Snær Hákonarson úr
GR setti nýtt og glæsilegt vall-
armet á Kiðjabergsvelli í gær er
hann lék á 66 höggum af hvítum
teigum, eða fimm höggum undir
pari vallar, á fyrsta hring á Eim-
skipsmótaröðinni, Securitas-
mótinu. Guðrún Brá Björgvins-
dóttir úr Keili er í efsta sæti í
kvennaflokki en hún lék á 72 högg-
um eða einu höggi yfir pari vallar.
Arnar Snær bætti gamla vall-
armetið um tvö högg, en það var í
eigu Birgis Leifs Hafþórssonar og
Örvars Samúelssonar. Arnar Snær
lék skollalausan hring – fékk fimm
fugla og þrettán pör og var þetta
jafnframt besti hringurinn hans á
ferlinum. Andri Þór Björnsson úr
GR er á -3 í öðru sæti, Einar Hauk-
ur Óskarsson úr GK kemur þar á
eftir á -2 í þriðja sæti.
Arnar Snær sagði þetta skor
gefa honum aukið sjálfstraust
fyrir næstu tvo hringi, en hann
hefur aldrei náð að sigra á Eim-
skipsmótaröðinni.
Guðrún Brá er með fjögurra
högga forskot en Karen Guðnadótt-
ir úr GS er á +3 og Ingunn Gunn-
arsdóttir úr GKG er á +4.
„Ég spila bara mitt golf og vona
að það dugi til,“ sagði þessi unga
og efnilega golfkona sem var
Íslandsmeistari unglinga einmitt
á Kiðjabergsvelli í síðasta mánuði.
Hún setti þá einnig vallarmet er
hún lék á 68 höggum. - seth
Arnar Snær og Guðrún Brá efst í Kiðjaberginu:
Vallarmet hjá Arnari
SJÓÐHEITUR Arnar Snær lék stórkostlegt golf í gær og setti glæsilegt vallarmet.
MYND/VALUR JÓNATANSSON