Fréttablaðið - 24.08.2012, Page 8
24. ágúst 2012 FÖSTUDAGUR8
SKAUTAFÉLAGIÐ BJÖRNINN
LISTHLAUPADEILD
er með 14 vikna listskautanámskeið
1. september – 8. desember 2012
Skemmtilegar listskautaæfingar fyrir hressar stelpur og káta stráka.
Sér hópur er fyrir unglinga.
Frábær æfingaaðstaða í EGILSHÖLL.
Æfingar 2 í viku, á miðvikudögum
og laugardögum.
Skráning á www.bjorninn.com – Listskautar
eða á staðnum þann 1. september frá kl. 10-14.
FRÍR PRUFUTÍMI
Vilt þú læra á listskauta?
Hreysti – Gleði – Vellíðan – Hreyfing – Styrkur – Samhæfing
DANMÖRK Ný áætlun borgarstjórnar Kaupmanna-
hafnar gerir ráð fyrir því að borgin verði svo gott
sem reyklaus árið 2025, eftir þrettán ár. Tíu milljónir
danskra króna hafa verið lagðar í verkefnið.
„Ég held að þetta gangi betur með því að horfa
jákvætt á hlutina og ofsækja ekki reykingamenn í
Kaupmannahöfn,“ sagði Ninna Thomsen, yfir maður
heilbrigðismála borgarinnar og leiðtogi Sósíalíska
þjóðarflokksins við dagblaðið Politiken. Hún
vill að borgin verði fyrsta reyklausa
borgin í heiminum. „Við þurfum að
gefa reykingamönnum tækifæri til
að hætta frekar en að neyða þá til
þess.“
Samkvæmt áætluninni munu
aðeins fjögur prósent borgarbúa
reykja, en nú er hlutfallið 21 prósent. Það þýðir að
72 þúsund manns þyrftu að hætta að reykja á næstu
þrettán árum.
Áætlunin gerir einnig ráð fyrir því að fjölga nám-
skeiðum og herferðum til að hjálpa fólki að hætta að
reykja. Thomsen segist vonast til þess að það komist
í tísku hjá fyrirtækjum að vera reyklaus.
Fyrirætlanir borgaryfirvalda hafa vakið mikla
gagnrýni. Krabbameinsfélög hafa meðal
annars gagnrýnt áætlunina fyrir að
vera óraunhæfa og ýkta. - þeb
Yfirvöld í Kaupmannahöfn vilja fækka reykingamönnum næstu þrettán árin:
Vill reyklausa Kaupmannahöfn
SÍGARETTUR Kaupmannahöfn stefnir nú á
að fækka reykingamönnum mikið á næstu
árum.
MIKILL VIÐBÚNAÐUR Sérsveitin var
send á vettvang, eins og venja er þegar
skotum er hleypt af. Myndin er úr safni.
LÖGREGLUMÁL Maðurinn sem skaut
í gólfið úr stórum og öflugum
veiðiriffli í heimahúsi í Garðabæ í
fyrradag á við andleg veikindi að
stríða og verður veitt viðeigandi
aðstoð eftir að rætt hefur verið
við hann um atvikið, samkvæmt
upplýsingum frá lögreglu.
Enginn slasaðist þegar skotinu
var hleypt af, en hvellurinn
heyrðist vel í næsta nágrenni og
lögregla hafði mikinn viðbúnað.
Alls tóku um þrjátíu lögreglu-
menn, meðal annars úr sérsveit
ríkislögreglustjóra, þátt í aðgerð-
inni.
Ekkert bendir til annars en að
skotvopnið hafi verið skráð og
geymt á eðlilegan hátt. - sh
Byssuskot rakið til veikinda:
Skotmaðurinn
hlýtur aðstoð
LÖGREGLUMÁL Eldri maður var
fluttur með sjúkrabíl frá Þing-
völlum til Reykjavíkur í gær-
morgun eftir að ekið var á hann
fyrir utan Fræðslumiðstöðina á
Hakinu á Þingvöllum.
Maðurinn var við störf sem
leiðsögumaður þegar bíl var
bakkað á hann. Samkvæmt upp-
lýsingum frá lögreglunni á Sel-
fossi gættu hvorki hann né öku-
maður bílsins nægilega vel að
sér. Maðurinn fékk höfuðhögg
og skarst á hendi en slasaðist þó
ekki alvarlega. - sh
Slys á Hakinu á Þingvöllum:
Bíl bakkað á
leiðsögumann
Mitt Romney, forsetaefni Repú-
blikanaflokksins, reynir nú
að beina athygli kjósenda að
efnahags málunum og lofar þremur
milljónum nýrra starfa, meðal ann-
ars með því að heimila boranir eftir
olíu á fleiri svæðum út af strönd
Virginíu og Norður-Kaliforníu.
Kosningaúrslit í báðum þessum
ríkjum geta skipt miklu máli um
það hvort Romney nær að vinna
sigur á Barack Obama í forseta-
kosningunum, sem haldnar verða
í byrjun nóvember.
Romney hefur átt í vök að verjast
alla vikuna. Hann hefur þurft að
verja ákvörðun sína um að gera
Paul Ryan að varaforsetaefni sínu,
en Ryan vill ganga enn lengra en
Romney í niðurskurði til velferðar-
mála.
Þá hafa undarleg ummæli
flokksbróður þeirra, Todds Akin,
um fóstur eyðingar og nauðganir
komið Romney illa, ekki síst vegna
þess að Ryan hefur að nokkru tekið
undir svipuð sjónarmið og Akin.
Akin fullyrti í sjónvarpsvið-
tali að fórnarlamb nauðgana eigi
ekki að fá greitt úr ríkissjóði fyrir
fóstur eyðingu, og rökstuddi það
með því að konur geti varla orðið
barnshafandi af völdum nauðgana.
Obama hefur óspart notfært sér
þetta mál, meðal annars með því
að segja að Akin, sem situr í vís-
indanefnd fulltrúadeildar Banda-
ríkjaþings, hafi örugglega misst
af einhverjum kennslustundum í
vísinda greinum.
Obama sagði þetta reyndar
dæmigert fyrir repúblikana, sem
vilja „fara afturábak frekar en
áfram og standa í baráttu sem við
héldum að hefði verið útkljáð fyrir
tuttugu eða þrjátíu árum.“
Annars hefur fréttaflutningur
af kosningabaráttunni í Banda-
ríkjunum verið neikvæðari gagn-
vart frambjóðendunum en þekkst
hefur áratugum saman, samkvæmt
nýrri könnun frá Pew-rannsóknar-
stofnuninni.
Samkvæmt niðurstöðum könn-
unarinnar hafa 72 prósent frétta
af Obama verið neikvæðar, en 71
prósent af Romney, þannig að lítill
munur er á þeim hvað þetta varðar.
Um Obama er oftast sagt að
honum hafi ekki tekist að koma
efnahagslífi landsins á skrið eftir
kreppu síðustu ára, en um Romney
er oftast sagt að hann sé málsvari
auðvaldsins og hafi hagnast á því að
rústa fyrirtæki.
gudsteinn@frettabladid.is
Romney reynir að bjarga sér
Mitt Romney beinir athyglinni að efnahagsmálum og atvinnu eftir erfiða viku, sem snúist hefur um
umdeild áform varaforsetaefnis hans og ummæli flokksbróður hans um nauðganir og fóstureyðingar.
MITT ROMNEY Forsetaefni Repúblikanaflokksins hugsar málin. NORDICPHOTOS/AFP
VEIÐI Skrínan, rafræn skráning
lax- og silungsveiði á vegum Veiði-
málastofnunar og Fiskistofu, hefur
vakið ágæt viðbrögð hjá veiði-
réttar höfum í sumar. Það sem af er
veiðitímanum hafa upplýsingar um
tæplega 4.000 stangveidda laxa og
um 800 silunga verið skráðar með
þessum hætti, en þetta er annað
sumarið sem boðið er upp á þessa
veflausn.
Þær veiðiár sem skráð hefur
verið fyrir í sumar eru Leirá,
Gljúfurá, Norðurá, Víðidalsá,
Svalbarðsá, Norðfjarðará og Ytri-
Rangá. Upplýsingar um veiði eru
skráðar þar með sama sniði og þær
koma fyrir í veiðibókum og eru
einstakar skráningar jafnharðan
sýnilegar á netinu. Notendum gefst
þar kostur á að skoða upplýsingar
um einstaka fiska; stærð, veiðistað
og veiðarfæri, auk þess sem sjá má
samtölur um veiði einstakra áa og
veiðisvæða.
Svo ítarleg skráning á veiði,
þar sem hver einstakur fiskur er
skráður ásamt upplýsingum um
hann, er einsdæmi í heiminum.
Á það jafnt við um hefðbundna
skráningu í bækur á veiðistað og
netskráninguna sömuleiðis.
Veiðiskráning með þessum
hætti opnar aðgengi að nýjustu
veiði tölum á hverjum tíma, bætir
yfirsýn yfir veiðina hverju sinni
og eykur gæði veiðiskráningar, að
mati umsjónarmanna. - shá
Skráning stangveiði er nákvæmari hér á landi:
Veiðiskráning einstök
MARÍULAXINN Steinunn Helga með maríulaxinn sinn í fyrra, en slíkar upplýsingar
skila sér oft í veiðibækur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FRÉTTASKÝRING
Hefur val Mitt Romneys á varafor-
setaefni breytt stöðunni í kosninga-
baráttunni?
1. Hvað heitir sjoppan í Hafnar-
firði sem talið er að kveikt hafi
verið í?
2. Hvað eru stýrivextir Seðla-
bankans háir?
3. Hvað tók Steindi jr. upp tón-
listarmyndband sitt í mörgum
löndum?
SVÖR:
1. Bryndísarsjoppa 2. 5,125% 3. Fjórum.
VEISTU SVARIÐ?