Fréttablaðið - 24.08.2012, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 24.08.2012, Blaðsíða 42
24. ágúst 2012 FÖSTUDAGUR26 sport@frettabladid.is ÁSDÍS HJÁLMSDÓTTIR varð í áttunda sæti af níu keppendum í spjótkasti kvenna á Demantamóti IAAF í Lausanne í Sviss í gærkvöldi en Ásdís kastaði lengst 59,12 metra í öðru kasti sínu. Þetta var annað Demantamót Ásdísar á þessu ári en hún endaði í 5. sæti í New York fyrr í sumar. Barbora Spotakova frá Tékklandi vann mótið en hún kastaði 67,19 metra. 0-1 Baldur Sigurðsson (18.), 0-2 Baldur Sigurðsson (40.), 0-3 Gary Martin (66.), 1-3 Hólmar Örn Rúnarsson (87.) Skot (á mark): 11-18 (4-7) Varin skot: Gunnleifur 3 - Hannes 3. FH (4-3-3): Gunnleifur Gunnleifsson 5 - Guðjón Árni Antoníusson 5, Guðmann Þórisson 4, Freyr Bjarnason 4, Danny Thomas 4 - Bjarki Gunnlaugsson 3 (71., Einar Karl Ingvarsson -), Björn Daníel Sverrisson 4, Hólmar Örn Rúnarsson 4 - Emil Pálsson 3 (54., Kristján Gauti Emilsson 4), Atli Guðnason 4, Albert Brynjar Ingason 4 (78., Jón Ragnar Jónsson -) KR (4-3-3): Hannes Þór Halldórsson 6 - Haukur Heiðar Hauksson 7, Aron Bjarki Jósepsson 7, Grétar Sigfi nnur Sigurðarson 7, Guðmundur Reynir Gunnarsson 7 - Bjarni Guðjónsson 8, Jónas Guðni Sævarsson 8, *Baldur Sigurðsson 8 (83., Atli Sigur- jónsson -) - Emil Atlason 8, Óskar Örn Hauksson 8 (67., Kjartan Henry Finnbogason 6), Gary Martin 6 (71., Þorsteinn Ragnarsson -) * MAÐUR LEIKSINS Kaplakriki, áhorf.: 2360 Gunnar Jarl Jónsson (8) 1-3 0-1 Kennie Chopart (17.), 0-2 Atli Jóhanns- son (45.+1), 1-2 Garðar Gunnlaugsson (45.+3) Skot (á mark): 2-13 (2-6) Varin skot: Páll Gísli 4 - Ingvar 0 ÍA (4-3-3): Páll Gísli Jónsson 6 - Theodore Furness 4, Ármann Smári Björnsson 6, Kári Ársælsson 4, Aron Ýmir Pétursson 4 - Jóhannes Karl Guðjónsson 6, Einar Logi Einarsson 5 (65. Jesper Jensen 5), Arnar Már Guðjónsson 5 - Dean Martin 4 (65. Ólafur Valur Valdimarsson 5), Andri Adolphsson 5 (81. Jón Vilhelm Ákason), Garðar Gunnlaugsson 6. STJARNAN (4-3-3): Ingvar Jónsson 6 - Jóhann Laxdal 7, *Daníel Laxdal 8, Alexander Scholz 7, Kennie Chopart 8 - Baldvin Sturluson 5 (79. Bjarki Páll Eysteinsson -), Atli Jóhannsson 7 (73. Snorri Páll Blöndal -), Mark Doninger 5 (67. Hörður Árnason 5) - Gunnar Örn Jónsson 6, Halldór Orri Björnsson 6, Ellert Hreinsson 7. * MAÐUR LEIKSINS Akranesvöllur, áhorf.: Óuppg. Þorvaldur Árnason (6) 1-2 FH 15 10 2 3 37-17 32 KR 16 9 3 4 31-21 30 ÍBV 15 8 2 5 27-13 26 Stjarnan 16 6 7 3 34-30 25 Keflavík 16 7 3 6 27-23 24 ÍA 16 7 3 6 25-30 24 Fylkir 16 6 5 5 22-29 23 Breiðablik 16 6 4 6 17-21 22 Valur 16 7 0 9 24-25 21 Fram 16 5 1 10 22-28 16 Selfoss 16 4 2 10 23-33 14 Grindavík 16 2 4 10 22-41 10 PEPSI-DEILDIN FÓTBOLTI Dregið var í 32- og 16-liða úrslit í Meistaradeild Evrópu í gær. Íslandsmeistarar Stjörnunnar voru í pottinum og drógust gegn FK Zorkiy frá Rússlandi. „Þetta var svo sem ekki óskadráttur fyrir okkur því þetta verður erfitt og dýrt ferðalag,“ sagði Þorlákur Árnason, þjálfari Stjörnunnar. „En það ríkir gríðarlega mikil spenna fyrir þessu verkefni innan félagsins, ekki síst vegna þess að ef við vinnum mætum við Lyon í 16-liða úrslitum,“ bætti hann við en Lyon er ríkjandi Evrópumeistari og besta félagslið heims í dag. Þorlákur þekkir ekki mikið til rússneska kvennaboltans. „Það eru nokkur fjársterk lið í Rússlandi og í þessu liði eru nokkrir mjög sterkir erlendir leikmenn. Ég veit að þetta er gott lið og það verður bara að koma í ljós hvort við erum nægilega góð til að geta slegið það úr leik.“ - esá Meistaradeild kvenna: Stjörnukonur til Rússlands TIL RÚSSLANDS Harpa Þorsteinsdóttir í leik með Stjörnunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR FÓTBOLTI Stjarnan vann í gær sinn fyrsta sigur í Pepsi-deild karla síðan 5. júlí en liðið gerði þá góða ferð upp á Skipaskaga og vann ÍA, 2-1. Kennie Chopart og Atli Jóhannsson skoruðu fyrir Stjörnuna en Garðar Gunnlaugsson minnkaði muninn fyrir ÍA. Öll mörkin komu í fyrri hálfleik sem Stjörnumenn áttu nánast skuld- laust. Þeir náðu sanngjarnri 2-0 for- ystu í leiknum og þétt varnarlína liðsins sá til þess að sóknarmenn ÍA komust nánast ekki að marki sínu. Skagamenn áttu sitt fyrsta mark- skot í leiknum í uppbótartíma fyrri hálfleiks en þá náðu þeir að koma sér skyndilega inn í leikinn með marki Garðars. Það kom eftir fast leikatriði og nánast í eina skiptið sem vörn Stjörnumanna gleymdi sér í leiknum. „Þeir fengu aukaspyrnu og tóku hana fljótt. Við vorum ekki komnir í stöðu,“ sagði Daníel Laxdal sem átti frábæran dag í vörn Stjörnunnar. „Þess fyrir utan spiluðum við mjög vel og náðum loksins sigri. Við þurftum að rífa okkur upp eftir slæmt gengi í deildinni og vonandi er þetta allt á uppleið. Við ætlum okkur að ná Evrópu- sætinu í deildinni.“ Bjarni Jóhannsson, þjálfari Stjörnunnar, var einnig ánægð- ur með sigurinn – ekki síst í ljósi þess að liðið tapaði fyrir KR í bikarúrslitunum um helgina. „Það var erfitt að undirbúa þennan leik eftir spennufall- ið sem fylgdi því að tapa um helgina. Við gerðum það sem var lagt upp með og það gekk vel. Helst var að við áttum að skora meira í fyrri hálfleik og ná meiri forystu. Engu að síður náðum við að sigla þessu nokkuð örugglega í höfn í seinni hálfleik.“ Þórður Þórðarson, þjálfari ÍA, segir að sínir menn hafi átt afar slæm- an fyrri hálfleik. „Við vorum einfaldlega lélegir. Við vorum sterkari í seinni hálfleik og þó svo að Stjörnumenn hafi fengið betri færi tel ég að við spiluðum betur,“ segir hann. Skagamenn hafa verið á ágætri siglingu að undanförnu en Þórður segir tapið ekki neitt bakslag. „Þetta er jöfn deild og allir að vinna alla, nema kannski neðstu liðin. Nú er það bara næsti leikur sem gildir og ekkert annað.“ - esá Stjörnumenn aftur á sigurbraut eftir 2-1 útisigur á ÍA á Akranesi í 16. umferð Pepsi-deildarinnar í gær: Ætlum að tryggja okkur Evrópusæti LANGÞRÁÐ Stjörnumenn fagna hér einu marka sinna í gærkvöldi en þeir voru búnir að tapa þremur leikjum í röð fyrir leikinn í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GUÐMUNDUR BJARKI HALLDÓRSSON FÓTBOLTI Þeir sem töldu aðeins formsatriði fyrir FH-inga að sigla Íslandsmeistaratitlinum í hús fyrir stórleik gærkvöldsins gegn KR höfðu heldur betur rangt fyrir sér. Íslandsmeistararnir mættu mun ákveðnari til leiks í Kapla- krika í gær og uppskáru sjald- séðan sigur en sanngjarnan sigur í Hafnarfirði. „KR-ingarnir mættu til leiks, voru gríðarlega grimmir og létu finna fyrir sér. Það var eins og við gerðum okkur ekki grein fyrir því að þetta væri síðasti möguleiki KR til þess að vera með í titilbarátt- unni. Við vorum engan veginn til- búnir í baráttuna,“ sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, í leikslok og gerði ágætlega upp fyrri hálf- leik liðanna. Tvö gul spjöld litu dagsins ljós á fyrstu sex mínútum leiksins á rennandi blautum Kaplakrikavelli og ljóst að um harðan baráttuleik yrði að ræða. FH-ingar fengu for- smekkinn að því sem koma skyldi þegar Bjarni Guðjónsson skaut í þverslá FH-inga úr aukaspyrnu strax á fjórðu mínútu. Gestirnir unnu alla lausa bolta, létu vaða á markið við hvert tækifærið og aðeins tímaspursmál hvenær boltinn hafnaði í netinu. Á 18. mínútu sendi Óskar Örn Hauksson undir engri pressu bolt- ann fyrir markið frá vinstri. Bolt- inn flaut fram hjá varnarmönnum FH á Baldur Sigurðsson sem skor- aði af stuttu færi. Baldur skoraði sigurmark KR-inga í bikarúrslit- unum gegn Stjörnunni um síðustu helgi og greinilegt að Mývetning- urinn kann vel við sig á haustin. Góður tími fyrir Smalann „Þetta er góður tími. Það eru göngur og réttir og maður þarf að vera klár á þessum árstíma,“ sagði Baldur í leikslok en hann átti eftir að bæta við marki skömmu fyrir leikhlé. Smalinn, eins og Mývetningurinn er oft kallaður, fékk þá boltann eftir frábæran undir búning Emils Atlasonar og hamraði hann efst í markhornið utarlega úr teignum. 2-0 forysta gestanna og FH-ingar í stúkunni hristu hausinn. Ef einhver Hafnfirðingur bar þá von í brjósti að heimamenn gætu snúið dæminu við í síðari hálfleik sást fljótlega að það myndi ekki gerast. Gestirnir höfðu öll tök, bættu við marki um miðjan hálfleikinn áður en heima- menn minnkuðu muninn undir lokin. „Með þessum leik gefum við sjálfum okkur möguleika í topp- baráttunni. Með tapi hefði mögu- leikinn aðeins verið stærðfræði- legur en sigurinn opnar aðeins möguleikann. Við þurfum þó enn að treysta á önnur lið auk þess að vinna okkar leiki sem er þrautinni þyngri,“ sagði Rúnar Kristinsson þjálfari KR-inga í leikslok. Rúnar gerði breytingar á sínu liði, setti Jónas Guðna Sævarsson á miðjuna með Bjarna Guðjónssyni og óhætt að segja að sú ákvörðun hafi borgað sig. „Jónas Guðni hefur komið inn á í nokkrum leikjum og átt misjöfnu gengi að fagna. Við vitum þó alveg hvað hann getur en hann þurfti tíma og leikæfingu sem er smátt og smátt að koma. Hann átti sérstaklega góðan leik í fyrri hálfleik og þeir Bjarni voru frábærir.“ Tapið var það fyrsta hjá FH á heimavelli í 24 leikjum eða frá því í júní 2010 þegar Stjarnan vann 3-1 sigur. Guðmann Þórisson fékk rauða spjaldið stundarfjórðungi fyrir leikslok og verður því í banni gegn Fylki á sunnudaginn. -ktd Baldur kveikti í titilvonum KR-inga KR-ingar eru mættir aftur í titilbaráttu Pepsi-deildar karla í knattspyrnu eftir frækinn 3-1 útisigur á FH- ingum. Baldur Sigurðsson skoraði tvö mörk gestanna og var hetja Vesturbæjarliðsins annan leikinn í röð. FRÁBÆRIR FIMM DAGAR Baldur Sigurðsson skoraði sigurmarkið í bikarúrslitaleiknum á laugardaginn og skoraði síðan tvö fyrstu mörkin í Kaplakrikanum í gær. Hér fagnar hann síðara marki sínu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.