Fréttablaðið - 24.08.2012, Qupperneq 22
4 • LÍFIÐ 24. ÁGÚST 2012
Bláberjamúffur
Ef þú átt það helsta í bök-
unarskúffunni og nokkur
fersk bláber þá eru blá-
berjamúffur málið.
1 bolli mjólk
¼ bolli jurtaolía
½ tsk. vanilludropar
1 egg
2 bollar hveiti
1/3 bolli sykur
3 tsk. lyftiduft
½ tsk. salt
1 bolli fersk bláber
Stillið ofninn á 200°C.
Hrærið saman mjólk-
inni, olíunni, vanillu og
eggjunum. Hrærið svo
saman við hveitinu, sykrin-
um, lyftiduftinu og saltinu.
Hellið svo bláberjunum
út í og setjið svo deigið í
muffinsform.
Bakið í 20-25 mínútur eða
þar til þau verða gullinbrún.
Bláberjasulta
1 kg bláber
1 kg sykur (eða 800 g)
Blandið saman og sjóðið
varlega í 10 mínútur. Setjið
í hreinar krukkur.
Frosin ber
Bláber (eða hvaða ber sem
er) eru lögð í plastglas,
vatni hellt yfir svo yfir fljóti.
Lokað með plastfólíu og
sett í frysti. Þannig geym-
ast berin „fersk“ langt fram
á næsta ár. Einnig hægt að
setja þau í litla samloku-
poka og hella vatni með og
binda þétt fyrir með bandi.
Þurrkuð ber
Bláberjum (eða hvaða
berjum sem er, þó ekki
mjög stórum og safa ríkum)
er sturtað í ofnskúffu sem
búið er að leggja bökunar-
pappír á. Sett í ofn og
þurrkuð við 50°C í nokkra
klukkutíma, ágætt að hafa
ofninn örlítið opinn af og til
svo rakinn fari út. Ágætt að
snúa nokkrum sinnum en
ekki nauðsynlegt.
Berin þorna og verða
„þurrkuð ber“, þvílíkt lostæti,
og geymast allt árið.
Krækiberjahlaup
1 kg krækiber
750 g sykur
2 tsk. sultuhleypir + 2 msk.
sykur
Setjið berin í pott ásamt
helmingi sykurs og sjóðið
við hægan hita í 10 mínútur.
Takið þá pottinn af hellunni
og kælið örlítið. Setjið það
sem eftir er af sykrinum
út í og sjóðið í 5 mínútur.
Blandið saman sultuhleypi
og 2 msk. af sykri; setjið í
sigti og stráið yfir sjóðandi
sultuna.
Hrærið vel í. Setjið hlaupið
sjóðandi heitt í frekar litlar
krukkur og hellið þær fullar.
Skrúfið lokið strax á.
Krækiberjasaft
3 kg krækiber
2 lítrar vatn
40 g vínsýra
250-500 g sykur í hvern
lítra af safa
Hreinsið og skolið berin ef
þess gerist þörf. Hakkið þau
eða merjið í berjapressu.
Leysið vínsýruna upp í vatn-
inu og blandið upplausninni
í berjamaukið.
Látið standa í 24 tíma.
Hellið á síu og látið saftina
síast vel frá hratinu. Mælið
saftina og blandið sykrinum
saman við hana. Hrærið í þar
til sykurinn er runninn. Hellið
saftinni á hreinar og soðnar
flöskur og lokið þeim strax.
Geymið saftina á köldum
og helst dimmum stað.
Krækiberja-chutney
600 g krækiber
1 rauðlaukur, saxaður
2½ cm bútur af engiferrót,
rifinn
1 hvítlauksgeiri, saxaður
1-2 epli, afhýdd og söxuð
1 dl vínedik
2½ dl púðursykur
1 tsk. sinnepsfræ
½ tsk. salt
1 dl rúsínur
Setjið allt í pott og látið
malla við vægan hita í
20-25 mín. Hrærið í af og
til. Hellið í hreinar krukkur.
Í DJÚSINN, SULTUNA, BAKSTURINN
EÐA BARA BEINT Í MUNNINN
Hægt er að nota bláberin beint út á salatið.
Hollustudjús
Hollustukokkurinn
Ebba Guðný deildi
þessum dásamlega
hollustudjús úr ný-
tíndum berjum með
facebookvinum
sínum á dögunum;
3 lúkur krækiber,
½ gúrka, 1 lime,
mynta eftir smekk
Um það bil 1 1/2 bolli
af vatni.
Öllu skellt í blandar-
ann og sigtað í gegn-
um spírupoka (muna
að sjóða hann í neti
við og við með hand-
klæðum, á milli skola
ég hann vel og læt
þorna vel.)
Það er óhætt að segja að berjatíðin sé byrjuð og ef marka má árangur flestra úr berjamó þessa dagana virðist uppskeran þetta árið vera
einstaklega góð. Það er eitt og annað sem má gera úr þessari hollustu auk þess að gæða sér á henni beint úr móanum.
Solla Eiríks á Gló er einn-
ig dugleg að deila flott-
um og hollum uppskrift-
um og fróðleik með
sínum vinum og aðdá-
endum. Mikið chia-fræ
æði ríkir nú hér á landi
enda um ofurfæðu að
ræða og því ættu flestir að
tileinka sér þá hollustu. Solla deildi þessi
dásamlega graut á dögunum en hann inni-
heldur einmitt bæði chia-fræ og bláber.
MIKILVÆGASTA
MÁLTÍÐ DAGSINS
Chia-grautur
dagsins
chia-fræ
möndlumjólk
hampfræ
kakónibbur
tröllahafrar
bláber
smá vanilla + ÁST
Leggið allt í bleyti
annaðhvort kvöld-
ið áður (og látið
standa inni í ís-
skáp) eða um
morguninn.
Söngskólinn í Reykjavík
Fyrsta 7 vikna námskeið vetrarins hefst 3. september
SÖNGNÁMSKEIÐ
Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu skólans
að Snorrabraut 54, sími 552-7366 kl. 10-16 alla virka daga www.songskolinn.is
Allir geta fundið eitthvað fræðandi og skemmtilegt við sitt hæfi!
Hvert námskeið stendur í 7 vikur / 14 vikum lýkur með prófumsögn og tónleikum.
Fyrir fólk á öllum aldri:
Sem undirbúningur fyrir frekara söngnám
eða tómstundagaman fyrir söngáhugafólk
Kennslutímar:
Morguntímar / Síðdegistímar / Kvöldtímar
Söngtækni:
Raddbeiting / Túlkun / Einsöngur / Raddaður söngur
Tónmennt:
Tónfræði / Tónheyrnarþjálfun / Nótnalestur