Fréttablaðið - 26.09.2012, Síða 4
26. september 2012 MIÐVIKUDAGUR4
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
27°
22°
23°
13°
19°
23°
13°
13°
28°
15°
26°
24°
38°
13°
16°
18°
14°Á MORGUN
5-10 m/s, en10-18 við V-
og S-ströndina.
FÖSTUDAGUR
Hvöss norðanátt SA-til
annars heldur hægari.
6
7
7
6
9
9
3
5
8
8
10
5
6
4
5
5
3
3
44
3
6
2
4
4
6
7
3
4
4
6
8
KÓLNAR Í VEÐRI
Það verður víða
úrkoma framan
af degi en styttir
upp í kvöld. Á
morgun verður
stíf norðaustanátt
og rigning um allt
sunnanvert landið
en á föstudag má
búast við úrkomu
norðan til en þá
léttir til syðra.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
GENGIÐ 25.09.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
221,6366
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
123,77 124,37
200,78 201,76
159,75 160,65
21,422 21,548
21,592 21,72
18,883 18,993
1,5905 1,5999
190,72 191,86
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Tækifæri
H x b x d: 186 x 60 x 65 sm
Kæli- og
frystiskápar
KG 36VNW20 (hvítur)
KG 36VVI30 (stál)
(hvítur)
(Fullt verð: 129.900 kr.)
(stál)
(Fullt verð: 179.900 kr.)
HEILBRIGÐISMÁL Sveitarstjórn
Djúpavogs segist taka undir
ályktun læknaráðs Heilbrigðis-
stofnunar Austurlands um
svokallaða læknislausa daga á
Vopnafirði og Djúpavogi.
„Sveitarstjórn tekur heilshug-
ar undir með læknaráði að slíkar
lausnir á rekstrarvanda stofn-
unarinnar séu óásættanlegar,
hættulegar og mismuni stórlega
íbúum á þjónustusvæðinu hvað
heilbrigðisþjónustu varðar. Sveit-
arstjórn hvetur heilbrigðisyfir-
völd til að snúa þessari öfugþróun
við hið bráðasta þannig að íbúar
svæðisins búi við ásættanlegt
þjónustustig að þessu leytinu til
framtíðar,“ segir sveitarstjórnin
á Djúpavogi. - gar
Sveitarstjórn sammála HSA:
Óviðunandi að
vera læknislaus
DJÚPIVOGUR Læknislausir dagar sagðir
öfugþróun.
SKIPULAGSMÁL Húsi Félags bóka-
gerðarmanna við Hverfisgötu
21 verður breytt í íbúðahótel af
félaginu RR Hótel sem keypt hefur
húsið. Félagið rekur íbúðahótel
við Hverfisgötu 45 undir nafninu
Reykjavík Residence Hótel.
Samkvæmt tilkynningu frá RR
Hóteli á að hefjast handa við breyt-
ingarnar um næstu mánaðamót
og er áætlað að þeim ljúki í febrú-
ar. Innrétta á tíu íbúðir á fjórum
hæðum; sjö með tveimur herbergj-
um og þrjár stúdíóíbúðir.
Hverfisgata 21 er eitt hundrað
ára á þessu ári og nýtur verndar.
Eins og fram hefur komið í Frétta-
blaðinu gerir Húsafriðunarnefnd
ekki athugasemdir við breytingar
innanhúss ef þær taka mið af upp-
haflegum frágangi.
Þórður B. Bogason, fram-
kvæmdastjóri RR Hótels, segir
félagið hafa ágæta reynslu af því
að gera upp eldri virðuleg hús og
vísar þar í að á síðasta ári var
Hverfisgötu 45, sem áður hýsti
Sendiráð Noregs og Söngskólann í
Reykjavík, breytt í fimmtán íbúða
hótel.
„Í endurbótunum var haldið
í upprunalega mynd hússins að
utanverðu, enda götumynd þess
húss friðuð. Það sama gildir um
Hverfisgötu 21, þó svo að breyt-
ingum séu fleiri skorður settar. Að
innanverðu verður kappkostað að
allrar stærri breytingar taki mið
af uppruna hússins og byggingar-
stíl þess tíma en að húsið uppfylli
jafnframt þær kröfur sem gerðar
eru til hágæðagistiaðstöðu í mið-
borg Reykjavíkur,“ segir Þórður í
tilkynningu.
- gar
Hús Félags bókagerðarmanna fær nýtt hlutverk á aldarafmælinu:
Nýjar hótelíbúðir í hundrað ára húsi
HVERFISGATA 21 Hér gisti Kristján X
Danakonungur ásamt Alexandrínu
drottningu í heimsókn til Íslands árið
1926. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Stal í Leifsstöð
Kona á fimmtugsaldri tók ófrjálsri
hendi lítilræði af matvöru í verslun
10-11 í Leifsstöð fyrir fáeinum dögum.
Þegar lögreglu bar að gæddi hún sér
á þýfinu við brottfararhliðið. Hún vildi
gjarnan borga fyrir matinn en eitthvað
fannst henni vandræðalegt að hafa
hnuplað því lögreglan þurfti að hafa
milligöngu um greiðsluna.
LÖGREGLUMÁL
STJÓRNSÝSLA Mikillar óánægju
hefur gætt innan Ríkisendur-
skoðunar með hversu lengi hefur
tekið að vinna skýrslu um innleið-
ingu bókhaldskerfis ríkisins, sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins.
Kastljós RÚV greindi frá inni-
haldi skýrslunnar á mánudag, en
þar kemur fram að kostnaður við
verkefnið hafi farið langt fram
úr áætlun. Skýrslan var í fjög-
ur ár í vinnslu undir verkstjórn
Sigurður Þórðarson, fyrrverandi
ríkisendur skoðanda, og önnur
fjögur ár á borði Sveins Arasonar
ríkisendurskoðanda.
Björn Valur Gíslason, formaður
fjárlaganefndar Alþingis, segir að
ekki hafi fengist viðhlítandi skýr-
ingar á því hjá Ríkisendurskoðun
hvers vegna það dróst svo lengi
að ljúka skýrslunni og skila henni
til Alþingis. Ríkisendurskoðandi
sat sameiginlegan fund nefndar-
innar og stjórnskipunar- og eft-
irlitsnefndar í gær. Björn Valur
segist vilja bíða frekari skýringa
frá Ríkis endurskoðun, en traustið
á milli stofnunarinnar og Alþings
hefur beðið hnekki er mat hans.
Sveinn Arason ríkisendurskoð-
andi segir að vont sé að missa
traust þingmanna og -nefnda, en
hann verði að sitja uppi með það.
„Það er ekkert sem ég get gert til
að breyta sjónarmiðum einstakra
þingmanna. Ef þeir eru á þeirri
skoðun að ég, eða stofnunin sem
slík, njóti ekki trausts verðum við
bara að búa við það.“
Sveinn segist ekki hafa hug-
leitt afsögn í kjölfar málsins. „Það
hefur enginn tími verið til að hug-
leiða eitt eða neitt í því sambandi.
Auðvitað er það náttúrulega þingið
sem þarf að láta vita hvort það sé
svo í reynd.“
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins er aukafundur í forsætis-
nefnd þingsins á morgun, en
nefndin ræður og getur, að fengnu
samþykki Alþingis, vikið ríkis-
endurskoðanda úr starfi.
Þuríður Backman, 2. varafor-
seti Alþingis, segir að fundurinn
hafi verið boðaður vegna máls
sem er óháð Ríkisendurskoðun.
„Ég er þess fullviss að mál Ríkis-
endurskoðunar kemur inn á borð
nefndarinnar, en hvort það verður
á morgun [í dag] veit ég ekki.“
Björn Valur vill að skýrslu-
drögunum verði dreift til þing-
manna með þeim fyrirvörum að
um óklárað plagg sé að ræða. „Ég
tel einboðið í sjálfu sér, fyrst þessi
drög eru á sveimi og hafa verið
sýnd að hluta til í sjónvarpi, að
þau verði prófarkalesin og afhent
þingmönnum, hvort sem er í trún-
aði eða ekki. Mér finnst líklegt að
við gerum kröfu um að fá hana í
hendurnar.“
Sveinn segir hins vegar að nú
liggi fyrir að fullklára skýrsluna,
enda sé um vinnuplagg að ræða
sem ekki verði dreift. Slíkt geti
tekið tíma.
Í umfjöllun Kastljóss í gær-
kvöldi kom fram að skýrslan
verður birt á vef þáttarins, til að
auðvelda milliliðalausa umfjöllun
um málið. - kóp / - shá
Mikil óánægja starfsfólks
með tafir á skýrsluskilum
Urgur er meðal starfsfólks Ríkisendurskoðunar vegna vinnu við skýrslu um innleiðingu bókhaldskerfis
ríkisins. Formaður fjárlaganefndar segir traust hafa tapast. Ríkisendurskoðandi hefur ekki íhugað afsögn.
SKÝRR Skýrsla ríkisendurskoðunar er um innleiðingu nýs tölvukerfis sem samið var um við Skýrr, síðar Advania. Formaður
fjárlaganefndar segist ekki hafa séð jafn alvarlegar athugasemdir í skýrslu frá stofnuninni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SVEINN
ARASON
BJÖRN VALUR
GÍSLASON