Fréttablaðið - 26.09.2012, Side 6
26. september 2012 MIÐVIKUDAGUR6
MANNRÉTTINDI „Þetta eru bestu
kosningalögin á Norðurlöndun-
um,“ segir Guðmundur Magnús-
son, formaður Öryrkjabanda-
lags Íslands, um fyrirhugaða
lagabreytingu á kosningalögum.
Breytingin gerir fötluðum kleift
að velja sér aðstoðarfólk við
kosningar.
Guðmundur segir að gott sam-
starf hafi verið haft við ÖBÍ og
Blindrafélagið við samningu
laganna. Farið hafi verið eftir
athugasemdum félaganna í nán-
ast öllum atriðum. Hann von-
ast til að málið fái skjóta með-
ferð á þingi, en
Ögmundur Jónas-
son innanríkis-
ráðherra mælir
fyrir breytingun-
um í vikunni.
„Ég er að fara á
norrænan fund í
næstu viku og þar
ætla ég að monta
mig af lögunum.
Það er mjög sjald-
gæft að við getum það, því yfir-
leitt erum við þetta 15 til 20 árum
á eftir í þessum málaflokki.“
Gert er ráð fyrir því að grund-
vallarreglan sé sú að kjörstjórn-
ir aðstoði þá sem ekki geta kosið
hjálparlaust. Ef viðkomandi vill
sjálfur velja sér aðstoðarmann er
honum það heimilt.
Stefnt er að því að lagabreyt-
ingin verði gengin í gildi fyrir
þjóðaratkvæðagreiðslu um
stjórnarskrá, sem fram fer
20. október. Utankjörfundar-
atkvæðagreiðsla er hafin, en
Ögmundur segir það mat manna
að vel sé hægt að breyta lögunum
þó kosningarnar séu í raun hafn-
ar. Um rýmkun á rétti fatlaðra sé
að ræða. - kóp
Formaður Öryrkjabandalagsins er ánægður með breytingar á kosningalögum:
Bestu kosningalög á Norðurlöndum
GUÐMUNDUR
MAGNÚSSON
SÝRLAND Sýrlensk börn upplifa
fjöldamorð, pyntingar og önnur
voðaverk, að því er fram kemur í
nýrri skýrslu frá Barnaheill – Save
the Children.
„Börn eru skotmörk í grimmi-
legum árásum og upplifa dráp á
foreldrum, systkinum og öðrum
börnum, auk þess að vera vitni
að pyntingum, eða verða sjálf
fórnarlömb pyntinga,“ segir í til-
kynningu samtakanna. Vísað er til
frásagna barna frá Sýrlandi sem
rætt hafa við hjálparstarfsmenn í
flóttamannabúðum í Jórdaníu og
Líbanon.
Haft er eftir Héðni Halldórs-
syni, upplýsingafulltrúa alþjóða-
hluta Barnaheilla í Amman í Jórd-
aníu, að hann hafi rætt við börn og
unglinga sem greini frá margvís-
legum voðaverkum, eða hvernig
þau hafi orðið vitni að því að önnur
börn, allt niður í níu ára aldur, hafi
verið pyntuð eða myrt. „Vitnisburð
þessara barna er ekki hægt að
sannreyna fyrr en alþjóðasamtök
fá fullan aðgang að Sýrlandi, en
þetta er það sem starfsfólk okkar
heyrir á hverjum einasta degi,“
segir hann.
Barnaheill standa þessa dagana
fyrir söfnun vegna ástandsins í
Sýrlandi. - óká
Barnaheill – Save the Children birta skýrslu með viðtölum við börn frá Sýrlandi:
Börn eru fangelsuð, pyntuð og myrt
SKÓLAMÁL Skólaárið 2011-2012
lögðu 19.342 nemendur á fram-
haldsskólastigi stund á nám í
erlendum tungumálum eða 74,0%
nemenda, segir í frétt Hagstofu
Íslands. Þetta er ívið hærra hlut-
fall nemenda en undanfarin ár.
Flestir læra ensku og dönsku
enda skyldunám flestra fram-
haldsskólanema. Þýska er í þriðja
sæti en skólaárið 2011-2012 voru
4.547 nemendur skráðir í þýsku-
nám; 17,4% framhaldskólanem-
enda. Spænska er fjórða algeng-
asta erlenda tungumálið. - shá
20.000 í tungumálanámi:
Fleiri í mála-
námi en áður
KJÖRKASSINN
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
Skráning fara fram á
www.promennt.is
og þar má einnig finna
allar nánari upplýsingar.
BÆTTU VIÐ
ÞIG ÞEKKINGU
www.promennt.is
Skeifunni 11B 108 Reykjavík Sími 519 7550 promennt@promennt.is
ALMENNT TÖLVUNÁM
Sérstaklega hagnýtt nám fyrir þá sem komnir eru af
byrjunarstiginu og nota tölvu í vinnunni eða heima. Tilvalið
fyrir þá sem þurfa að auka öryggi sitt í allri tölvuvinnslu með
aukinni þekkingu, hraða og færni. Helstu kennslugreinar eru
Windows skjalavarsla, Word, Excel, Internet, Outlook
tölvupóstur og dagbók.
Lengd: 60 std. 54.000 kr. 3. október
EXCEL – FRAMHALD
Þátttakendur læra hvernig beita má Excel á stórar töflur og
vinna úr gögnum á fjölbreyttan hátt, m.a. með Pivot-töflum
og gröfum, ásamt notkun Excel við flóknari verkefni og til
útreikninga. Að auki verða tekin fyrir nokkur gagnleg fjár-
málaföll, uppfletti- og leitarföll ásamt Data Tools verkfærun-
um. Áhugasömum gefst færi á að skyggnast í Excel 2013.
Lengd: 15 std 29.900 kr. 9. október
STYTTRI TÖLVUNÁMSKEIÐ
Stutt námskeið í stökum forritum, sjá nánari lýsingu
og stundaskrá á promennt.is.
HEFST LENGD VERÐ
Word 2010 5. okt. 21 std. 29.900
Excel 2010 15. okt 21 std. 29.900
Outlook 2010 24. okt 10 std. 15.000
VEFSÍÐUGERÐ OG MYNDBANDAVINNSLA
Í boði eru nokkur mismunandi námskeið í vefsíðugerð og
myndbandavinnslu fyrir byrjendurog lengra komna.
Meðal námskeiða sem hefjast á næstu dögum eru:
HEFST LENGD VERÐ
Dreamweaver frh. 22. okt 21 std. 29.900
Joomla 2. okt 20 std. 26.900
WordPress 6. nóv 26 std. 32.000
Myndbandavinnsla
og tæknibrellur 2. okt 100 std. 119.000
Einföld myndbandavinnsla 4. okt 18 std. 24.900
BANDARÍKIN Bandaríkjaher hefur
síðustu árin í æ meiri mæli notað
ómönnuð flugför til að varpa
sprengjum á fólk í Pakistan. Til-
gangurinn er sagður sá að drepa
helstu leiðtoga hryðjuverkamanna,
en árangurinn er umdeildur.
Tveir hópar fræðimanna við
bandaríska háskóla segja Banda-
ríkjastjórn ekki segja sannleikann
um þann skaða sem þessar árásir
valda.
„Bandarískir stjórnmálamenn
og bandarískur almenningur geta
ekki haldið áfram að hunsa vís-
bendingar um þann skaða, sem
almenningur verður fyrir, og þau
þveröfugu áhrif sem þessi hnitmið-
uðu mannvíg og skotflaugaárásir
hafa í Pakistan,“ segir í nýútkom-
inni skýrslu fræðimannanna, sem
starfa við lögfræðideildir háskól-
anna í Stanford og New York.
Eftir níu mánaða rannsóknir,
sem gerðar voru bæði á vettvangi í
Pakistan og með viðtölum við fórn-
arlömb, vitni og sérfræðinga, segja
fræðimennirnir engan vafa leika á
því að árásirnar hafi kostað hundr-
uð almennra borgara lífið á síðustu
árum, þar á meðal 176 börn.
Þótt árásirnar hafi að öllum lík-
indum kostað fleiri hryðjuverka-
menn lífið en saklausa borgara,
þá eru háttsettir liðsmenn hryðju-
verkasamtaka einungis lítið brot af
þeim sem látist hafa.
Að minnsta kosti er fátt sem
styður fullyrðingar bandarískra
stjórnvalda um að ómönnuðu flug-
förin séu nákvæm og örugg eða að
þau bæti öryggi Bandaríkjamanna
með einhverjum hætti. Þvert á
móti bendi flest til að andstaða
almennings við Bandaríkin hafi
vaxið og staða hryðjuverkamanna
jafnvel styrkst.
Þar að auki séu þessi ómönnuðu
flugför stöðug ógn í lífi almenn-
ings á þeim svæðum í Pakistan þar
sem þau eru notuð.
„Tilvist þeirra skelfir karla,
konur og börn, vekur kvíða og
veldur sálrænum áföllum í sam-
félagi almennra borgara,“ segir
í skýrslunni. „Þau sem búa undir
skotflaugunum hafa stöðugar
áhyggjur af því að hvenær sem
er megi búast við mannskæðri
árás, og gera sér grein fyrir því
að þau hafa enga möguleika til að
verjast.“
gudsteinn@frettabladinu.is
Ógnarhernaður
gegn almenningi
Loftárásir ómannaðra flugfara hafa kostað meira en 170 börn lífið í Pakistan á
síðustu árum. Íbúar lifa í stöðugum ótta við sprengjuflygildin sem sveima yfir
höfðum þeirra. Bandaríkjastjórn gagnrýnd fyrir að hunsa efasemdarraddir.
ÓMANNAÐ ÁRÁSARFLUGFAR Bandaríkjaher hefur í auknum mæli notað flugtæki af
þessu tagi í Pakistan, Jemen og Sómalíu. NORDICPHOTOS/AFP
„Við verðum að lýsa því yfir í dag að þetta
ofbeldi og þetta vægðarleysi eigi ekki heima
á meðal Sameinuðu þjóðanna okkar,“ sagði
Barack Obama Bandaríkjaforseti í ræðu sinni á
allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær.
Í ræðunni hvatti Obama Sameinuðu þjóð-
irnar til þess að ráðast að rótum þeirrar reiði,
sem brotist hefur út víða í ríkjum múslíma.
Hann minntist í því samhengi á bandaríska
myndbandið, sem orðið hefur tilefni til
mótmæla og ofbeldis vegna þess að þar er lítið
gert úr Múhameð spámanni.
Obama sagði þetta myndband ekki síður
særa Bandaríkjamenn en múslíma, en Banda-
ríkin geti samt ekki bannað mönnum að tjá sig.
Engin orð, hversu særandi sem þau eru,
geti hins vegar réttlætt ofbeldi af því tagi, sem
kostaði sendiherra Bandaríkjanna og þrjá aðra
lífið í Líbíu nýverið.
„Sterkasta vopnið gegn hatursorðum er ekki
kúgun, heldur fleiri orð – raddir umburðarlyndis
sem taka höndum saman gegn fordómum og
guðlasti og halda á lofti gildum skilnings og
gagnkvæmrar virðingar,“ sagði Obama.
Vill ráðast að rótum reiðinnar
BARACK OBAMA
SKOTINN Leyniskytta skaut drenginn
hér að ofan í borginni Aleppo í Sýrlandi
á föstudaginn var. Drengurinn grætur á
sjúkrahúsinu þar sem gert er að sárum
hans. NORDICPHOTOS/AFP
Drekkur þú gosdrykki daglega?
JÁ 25,0%
NEI 75,0%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Tekur þú slátur?
Segðu skoðun þína á Visir.is