Fréttablaðið - 26.09.2012, Page 8

Fréttablaðið - 26.09.2012, Page 8
26. september 2012 MIÐVIKUDAGUR8 ÞYRLUR LHG Sjóðurinn á að efla öryggi með söfnun til kaupa eða leigu á þyrlu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM ÖRYGGISMÁL Nýverið var undirrit- uð skipulagsskrá fyrir Þyrlukaupa- sjóð en stofnandi sjóðsins er félag fyrrverandi starfsmanna Land- helgisgæslunnar og Sjómælinga Íslands, svokallað Öldungaráð. Stofnfé sjóðsins eru tvær millj- ónir króna sem Ásatrúarfélagið gaf í söfnun til kaupa eða leigu á þyrlu fyrir Landhelgisgæsluna eða bún- aðar í björgunarþyrlu. Markmið sjóðsins er að vera vettvangur allra landsmanna til að efla öryggi lands og þjóðar með því að safna fé til kaupa/leigu á björg- unarþyrlu fyrir Landhelgisgæsluna eða til kaupa á nauðsynlegum bún- aði um borð í björgunarþyrluna eða búnaði fyrir áhafnir. - shá Fyrrum starfsmenn safna fé: Stofna sjóð til kaupa á þyrlu Listaverk tíu ár í viðgerð Útilistaverk eftir Jóhann Eyfells sem var í Hlíðargarði í Kópavogi hefur nú verið í viðgerð í tíu ár. Formaður lista- og menningarráðs bæjarins ákvað að fá upplýsingar um gang málsins frá forstöðumanni Gerðarsafns eftir að Hjálmar Hjálmarsson, fulltrúi Næstbesta flokksins, spurðist fyrir um afdrif listaverksins. KÓPAVOGUR FRÉTTASKÝRING Hvað er talið að Lýður Guðmundsson og Bjarnfreður Ólafsson hafi gert? Ákæra á hendur Lýði Guðmunds- syni, fyrrum aðaleiganda Existu, og Bjarnfreði Ólafssyni, eins eig- enda Logos, snýst um snúning sem ráðist var í til að tryggja yfirráð yfir félaginu. Með honum ætluðu fyrrum aðaleigendur Existu, Lýður og bróðir hans Ágúst, að þynna út aðra hluthafa með því að borga tvo aura fyrir hverja nafnvirðiskrónu. Þetta telur sérstakur saksóknari varða við lög og geti varðað tveggja ára fangelsi. Exista var skráð á hlutabréfa- markað fram að hluthafafundi sem haldinn var 30. október 2008. Sam- tals áttu aðrir aðilar en bræðurn- ir Lýður og Ágúst tæplega 55 pró- senta hlut í Existu á þessum tíma. Kaupþing, sem var stærsta eign félagsins, var líka stærsti lánveit- andi Bakkabraedur Holding B.V., hollensks félags sem hélt utan um eign bræðranna í Existu. Í ákær- unni yfir Lýði og Bjarnfreði segir að „miðvikudaginn 3. desember 2008 sendi Nýi Kaupþing banki hf. [síðar Arion banki] félaginu og ákærða Lýði tölvupóst þar sem farið var fram á greiðslu inn á lán bankans til félagsins og/eða að sett- ar yrðu frekari tryggingar. Skyldi það gert eigi síðar en 8. desemb- er. Að öðrum kosti myndi bankinn leysa til sín hlutabréf í Exista hf., sem félagið […] hafði sett bankan- um að veði“. Ljóst var að bræðrunum hugn- Þynntu út aðra hluthafa Aðrir hluthafar en Bakkavararbræður áttu 55 prósent hlut í Existu fyrir ólögmætu hlutafjáraukninguna. Þeir voru þynntir niður í 13 prósent. Fyrirtækjaskrá treysti Logos og Deloitte og skráði því aukninguna. SNÚNINGUR Eftir að Arion banki reyndi að leysa til sín hlut bræðr- anna Lýðs og Ágústar í Existu reyndu þeir að þynna út aðra hluthafa til að halda völdum í félaginu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Þegar sérstakur saksóknari fyrirskipaði húsleit og yfirheyrslur í janúar 2010 var embættið líka að rann- saka sölu á Bakkavör frá Existu haustið 2008. Þá seldi stjórn Existu, sem Lýður og Ágúst Guðmunds- synir stýrðu, 39,6 prósenta hlut í Bakkavör til félags í eigu bræðranna með kúluláni frá Existu. Samkvæmt heimildum blaðsins er rannsókn málsins lokið og liggur nú hjá saksóknara sem þarf að taka ákvörðun um hvort ákært verður. Síðan hefur Bakkavör gengið í gegnum endurskipulagningu. Bræðurnir gáfu frá sér hlutinn sem þeir keyptu af Existu en fengu í staðinn að eignast 25% hlut fyrir fjóra milljarða króna. Þeir vilja nú eignast Bakkavör að fullu og buðu öðrum hluthöfum á annan tug milljarða króna fyrir hlut þeirra í Bakkavör. Stærstu eigendurnir Bakkavör, Arion banki, Lífeyrissjóður verzlunar- manna og Gildi lífeyrissjóður, hafa ekki viljað selja. Rannsókn lokið á sölu á Bakkavararhlut aðist illa að missa tökin á Existu. Í stað þess að afhenda eignarhlut sinn, sem var rúmlega 45 prósent, til réttmætra kröfuhafa var ráðist í 50 milljarða króna hlutafjáraukn- ingu sem annað félag þeirra, BBR ehf., skráði sig að fullu fyrir. Eftir hana átti nýja félagið 77,91 pró- sent í Existu. Hluturinn sem Arion banki átti veð í var þynntur úr 45 prósentum í 10,4 prósent. Eign allra annarra eigenda rýrnaði með sama hætti. Ekkert hefði verið hægt að gera við þessu ef bræðurnir hefðu raun- verulega greitt 50 milljarða króna fyrir nýja hlutaféð. Það gerðu þeir hins vegar ekki. Þvert á móti var Bjarnfreður, lögmaður þeirra, fenginn til að skila inn tilkynn- ingu um að einn milljarður króna hefði verið greiddur fyrir hið nýja hlutafé, eða tvö prósent af nafn- virði þess. Klárt er að það samrým- ist ekki lögum um hlutafélög þar sem stendur að „greiðsla hluta má ekki nema minna virði en nafnvirði hans“. Í ákærunni kemur reyndar fram að milljarðurinn hafi í raun aldrei verið greiddur. Hann „staf- aði frá Lýsingu hf., dótturfélagi Exista hf. […] Féð var greitt inn á vörslureikning hjá lögfræðistof- unni Logos þar sem innstæðan lá óhreyfð fram á sumarið 2009. Þessi milljarður króna rann því aldrei inn í rekstur Exista hf.“. Fyrirtækjaskrá úrskurðaði hlutafjáraukninguna ólögmæta þann 29. júní 2009, sjö mánuðum eftir að hún var tilkynnt. Henni hafði þá borist ábending um málið. Í úrskurði Fyrirtækjaskráar kom fram að stofnunin teldi að geng- ið hefði verið út fyrir ystu mörk í formi og framsetningu við að fá aukninguna skráða. Formleg og efnisleg framsetning tilkynning- arinnar hafi „á allan hátt vikið verulega frá því sem lög og venj- ur standa til […] það ber einnig að undirstrika að umrædd tilkynning berst frá einni af stærri lögmanns- stofum landsins [Logos] og með fylgir skýrsla endurskoðanda stórr- ar endurskoðandaskrifstofu [Delo- itte], sem hefur allt yfirbragð vand- aðrar sérfræðiskýrslu. Hugsanlega stafar tiltrú starfsmanna Fyrir- tækjaskrár af þeirri ástæðu að fag- aðilar á borð við þá sem hér eiga í hlut fari ætíð að réttum reglum“. thordur@frettabladid.is LÖGREGLUMÁL Tæplega fimmtug- ur maður, sem var handtekinn fyrir tveimur vikum grunaður um fíkniefnaframleiðslu í bílskúrnum sínum, er nú laus úr gæsluvarð- haldi. Ekki var talin þörf á að halda honum í gæsluvarðhaldi og ein- angrun lengur, þótt málið sé enn ekki að fullu upplýst. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins er talið að maðurinn hafi framleitt bæði amfetamín og MDMA, svokallað e-töfluduft, í aðstöðunni sem hann hafði komið sér upp. Þó var verksmiðjan langt frá því að vera eins fullkomin og sú sem var upprætt í Hafnarfirði sum- arið 2008 og leiddi til þungra dóma yfir Tindi Jónssyni og Jónasi Inga Ragnarssyni. Maðurinn var handtekinn 13. september síðastliðinn eftir að lögreglan fann búnað og efni til framleiðslu fíkniefna í bílskúr í Efstasundi. Þá var einnig leitað í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði í tengslum við málið. Mikið magn af efnum fannst og voru þau öll send Háskóla Íslands til greining- ar. Þeim greiningum er ekki enn lokið. - sh Grunuðum amfetamínframleiðanda laus úr gæsluvarðhaldi: Einnig talinn hafa framleitt MDMA MIKIÐ UMSTANG Gríðarlegur viðbún- aður var í Efstasundinu þegar málið kom upp. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON SAMFÉLAGSMÁL Hópur kvenna innan SÁÁ hefur lagt drög að stofnun sérstaks kvenfélags innan samtakanna. Markmið félagsins eru meðal annars að stuðla að jafnréttismálum, stofna til umræðu um konur, fíkn og ofbeldi og huga að sérstökum meðferðarúrræðum fyrir konur. Félagið er opið öllum konum sem aðhyllast markmið félagsins. Undirbúningsfundur að stofnun Kvenfélags SÁÁ verður haldinn annað kvöld, í húsi SÁÁ, Efsta- leiti 7, klukkan 20.30. - sv Stofna Kvenfélag SÁÁ: Munu stuðla að kynjajafnrétti 1. Hvað vantar mikið upp á að auknar eldsneytisálögur skili því sem ætlað var í síðustu fjárlögum? 2. Svisslendingur reynir að fljúga umhverfis jörðina í einshreyfilsvél. Hvað er hann gamall? 3. Hverjir eru nýir verndarar sam- takanna UN Women? SVÖRIN 1. Hálfan milljarð króna. 2. Hann er tutt- ugu og tveggja ára. 3. Sigríður Dúna Krist- mundsdóttir og Unnur Ösp Stefánsdóttir. www.volkswagen.is Frelsi til að ferðast Volkswagen Tiguan Komdu og reynsluaktu Volkswagen Tiguan Tiguan Sport & Style kostar aðeins frá 5.790.000 kr. Fullkomið leiðsögukerfifyrir Ísland Volkswagen Tiguan sportjeppi eyðir aðeins 5,8 l á hverja 100 km. VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.