Fréttablaðið - 26.09.2012, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 26.09.2012, Blaðsíða 10
26. september 2012 MIÐVIKUDAGUR10 UMDEILDIR PISTLAR FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP - oft á dag HAGTÖLUR Í ársbyrjun voru 25.442 innflytjendur á Íslandi eða 8,0% mannfjöldans, segir í frétt Hagstofu Íslands. Það er fækkun frá árinu 2011, þegar innflytjendur voru 8,1% lands- manna og 25.693 alls. Nokkuð hefur fjölgað í annarri kynslóð innflytjenda á milli áranna 2011 og 2012 eða úr 2.582 í 2.876. Samanlagt var fyrsta og önnur kynslóð innflytjenda 8,9% af mannfjöldanum 1. janúar 2012, sem er það sama og hún var 2011. Innflytjandi telst einstakling- ur sem er fæddur erlendis og af foreldrum sem eru líka fæddir erlendis. Önnur kynslóð inn- flytjenda eru einstaklingar sem eru fæddir á Íslandi af foreldr- um sem eru báðir innflytjendur. - shá Fjölgar í annarri kynslóð: Innflytjendur 25.442 talsins KÍNA, AP Kínverska flugmóðurskipið Liaoning hefur verið tekið formlega í notkun, fjórtán árum eftir að það var dregið frá Rússlandi til Kína. Rússar seldu skipið kínversku einka fyrir tæki með tengsl við kín- verska herinn (PLA), sem sagð- ist ætla að nota það sem fljótandi spilavíti. Skipið var áður í eigu Sovétríkjanna og er enn eitt hið stærsta í heimi. Kínverjar segja skipið styrkja hernaðarmátt ríkisins verulega, en langt er þó þangað til það verður komið í fulla notkun því Kínverjar hafa ekki tiltækar herþot- ur sem hægt er að nota með skip- inu. Skipið tengist ekki beint deilum Kínverja við Japani um eignarhald á nokkrum eyjum. Tímasetningin nú er þó óneitan- lega til þess fallin að magna enn upp deilurnar, sem hafa verið harðar undanfarnar vikur eftir að japanska stjórnin ákvað að þjóðnýta og kaupa þrjár af eyjunum fimm af japönsk- um einkaaðilum, sem hugðust fara þar í stórfellda uppbyggingu. Kínverjar hafa ekki látið uppi hvaða hlutverki skipið eigi að gegna, en talið er að Kínverjar ætli að smíða sér sjálfir allt að fimm flug- móðurskip til viðbótar. - gb Kínverjar taka í notkun fyrsta flugmóðurskip sitt, keypt frá Rússlandi: Kínverjar styrkja herafla sinn FLUGMÓÐURSKIPIÐ LIAONING Kínverjar þurfa enn nokkur ár til að koma sér upp flugvélum og þjálfa mannskap. NORDICPHOTOS/AFP Sunnudaginn 30. september nk. verður haldin opin Íslandsmeistarakeppni í Ökuleikni. Keppnin verður haldin á svæði Ökuskóla 3 við Borgartún í Reykjavík og hefst kl. 13:00 en keppendur mæta 12:30. Skráning og nánari upplýsingar eru á www.brautin.is og í síma 588 9070. Brautin – bindindisfélag ökumanna Íslandsmeistara- keppni í Ökuleikni VITA er lífið VITA | Suðurlandsbraut 2 | Sími 570 4444 | VITA.is Láttu drauminn rætast! 10. – 25. nóvember Glæsileg sigling með 5 stjörnu lúxus- skemmtiferðaskipi á framandi slóðir. Tveir klefar lausir vegna forfalla. Verð frá 519.900 kr.* og 15.000 Vildarpunktar Innifalið: Flug með Icelandair og Emirates til Dubai, 12 nátta sigling með fullu fæði og allri afþreyingu um borð, gisting með morgunverði í eina nótt í Dubai og eina nótt í Singapore. *Verð án Vildarpunkta 529.900 kr. Skemmtisigling: Dubai – Indland – Malasía og Singapore með Celebrity Solstice Fararstjóri: Sigmundur M. Andrésson Viltu vita meira um trú kaþólsku kirkjunnar? Hefur þú áhuga á að gerast kaþólskur? Komdu þá á kynningarfund, sem verður haldinn næsta föstudag, 28. september 2012 kl. 20.00, í safnaðarheimili Kaþólsku kirkjunnar að Hávallagötu 16, Reykjavík UTANRÍKISMÁL „Það markverðasta úr samþykkt ráðherraráðsins er sú staðreynd að fram kemur ágrein- ingur innan þess. Tvær þjóðir á meðal þeirra stærstu í sjávarút- vegi, Danir og Þjóðverjar, treystu sér ekki til að styðja tillöguna og sátu hjá,“ segir Össur Skarphéð- insson utanríkisráðherra um stað- festingu ráðherraráðs ESB á refsi- reglum gegn ríkjum sem stunda veiðar úr stofnum sem ekki hefur verið samið um. Össur segir að Danir hafi skil- að bókun þar sem þeir áskilja sér rétt til þess að vísa aðgerð- um sem kunna að beinast að Fær- eyjum til Evrópudómstólsins. „Það þykir mér vasklega gert af þeim og það sem verður niður- staðan með Færeyjar hlýtur líka að gilda um Ísland. Sömuleiðis er það athyglisvert að Svíar telja sig nauðbeygða til að leggja fram ályktun þar sem undirstrikað er að allar aðgerðir sem gripið verði til skuli vera í samræmi við alþjóð- legar skuldbindingar Evrópusam- bandsins,“ segir Össur sem segir ekkert annað koma á óvart enda um framhald á samþykkt Evr- ópuþingsins að ræða. Hann segir það þó ánægjulegt að tekist hafi frá hendi íslenskra stjórnvalda að „nudda út öllum hugmyndum úr makrílhéruðum að banna inn- flutning frá löndum sem refsa ætti á nánast öllu sem einhvern tímann hefur synt í sjó“. Eftir að ráðherraráðið stað- festi nýjar reglur um refsiað- gerðir fagnaði Maria Damanaki, sjávarútvegsstjóri ESB, og sagði þær styrkja stöðu ESB gagnvart Íslandi og Færeyjum í makríldeil- unni. Össuri hugnast ekki málflutn- ingur Damanaki. „Mér þótti sjálf- um ekki gleðilegt að sjá Dam- anaki tala eins og blaðafulltrúa fyrir vini okkar og frændur Norð- menn og lýsa því yfir að þeir væru með þeim í þessu stríði. Ég tel það algjörlega óhugsandi að Norðmenn taki þátt í einhverju sem ekki er í fullu samræmi við EES-samning- inn.“ Spurður hversu nálægt Ísland sé að ná samningum við ESB og Noreg um veiðarnar segist Össur telja „að töluvert langt sé á milli okkar og Norðmanna en miklu skemmra milli Íslands og ESB. Við erum fullir samningsvilja, Íslendingar, en við látum ekki kúga okkur.“ Sigurgeir Þorgeirsson, aðal- samningamaður Íslands í makríl- deilunni, segir reglurnar sem sam- þykktar voru í gær almenns eðlis og nú eigi framkvæmdastjórn ESB eftir að ákveða hvort og með hvaða hætti þeim verður beitt gegn Íslandi. „Við teljum að þær einu heimildir sem þeir geta beitt án þess að brjóta í bága við alþjóð- legar skuldbindingar sínar, þar á meðal viðskiptareglur Alþjóðavið- skiptastofnunarinnar, sé að beita löndunarbanni á makrílveiðiskip.“ Löndunarbann á makrílveiðiskip er þegar í gildi í höfnum aðildar- ríkja ESB, en það bann hefur lítil sem engin áhrif fyrir íslenskan sjávarútveg, þar sem ekkert er flutt út af makríl til Evrópusam- bandsins hvort eð er. - shá, gb Það sem verður niður- staðan með Færeyjar hlýtur líka að gilda um Ísland. ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON UTANRÍKISRÁÐHERRA Danir segjast vísa aðgerð- um fyrir dóm Danir áskilja sér rétt til að vísa aðgerðum gegn Fær- eyjum vegna makrílveiða fyrir Evrópudómstólinn. Ágreiningur er innan ráðsins um refsireglurnar. Ráðherra gagnrýnir málflutning Mariu Damanaki.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.