Fréttablaðið - 26.09.2012, Síða 15
www.visir.is Sími: 512 5000 | Miðvikudagur 26. september 2012 | 16. tölublað | 8. árgangur
Logos hefur hagnast um 2,2
milljarða á þremur árum
Logos slf. hagnaðist um 736 milljónir króna á síð-
asta ári. Vegna þeirrar frammistöðu lagði stjórn
félagsins til að 680 milljóna króna arður yrði greidd-
ur út til eigenda á árinu 2012. Meðaltalsarðgreiðsla á
hvern eiganda er 40 milljónir króna, en tveir þeirra
17 sem eiga stofuna eiga ekki fullan hlut. Þetta
kemur fram í nýbirtum ársreikningi Logos.
Hagnaðurinn er í takt við hagnað Logos á undan-
förnum árum, en stofan græddi samtals tæpa 1,5
milljarða króna á árunum 2009 og 2010. Samanlagð-
ur hagnaður hennar frá bankahruni er því um 2,2
milljarðar króna. Þorri hagnaðar stofunnar á því
tímabili hefur verið greiddur í arð til eigenda henn-
ar. Á meðal þeirra eru Gunnar Sturluson, Erlend-
ur Gíslason og Óttar Pálsson. Alls nam velta Logos
2,6 milljörðum króna í fyrra, sem er 268 milljónum
króna meira en stofan velti árið áður. Þá störfuðu
83 starfsmenn að meðaltali í 74 heilsársstöðugildum
hjá Logos í fyrra. Greiðslur vegna launa- og launa-
tengdra gjalda námu 968,6 milljónum króna. - þsj
Helmingur ráðgjafakostnaðar
til slitastjórnar og skilanefndar
Tæpur helmingur allra greiðslna þrotabús Glitnis til
lögfræðinga og annarra ráðgjafa í fyrra, um hálfur
milljarður króna, rann til félaga í eigu slitastjórnar-
og skilanefndarmanna. Þetta kemur fram í gögnum
um launakostnað þrotabús Glitnis.
Samkvæmt þeim fékk skilanefnd og slitastjórn
samtals 364,8 milljónir króna greiddar á árinu 2011
þegar virðisaukaskattur er meðtalinn. Í slitastjórn
Glitnis sátu tveir á því ári, þau Steinunn Guðbjarts-
dóttir og Páll Eiríksson. Samtals fengu þau 229,4
milljónir króna. Skilanefndin, þau Árni Tómasson,
Heimir Haraldsson og Þórdís Bjarnadóttir, fengu
samtals 135,4 milljónir króna. Þessu til viðbótar
fengu fulltrúar á stofum slitastjórnarmanna greidd-
ar 132,8 milljónir króna.
Í nýjasta fjárhagsuppgjöri Glitnis kemur fram
að þrotabúið hafi greitt alls 1.115 milljónir króna í
fyrra í aðkeypta lögfræðiþjónustu og aðra ráðgjöf.
Þar af fóru 497,6 milljónir króna til félaga í eigu
slita stjórnar- og skilanefndarmanna, eða 44,6 pró-
sent af greiðslunum. - þsj
Vistvænn
kostur!
Sjónmælingar í Optical Studio
Tímapantanir í síma:
Optical Studio í Smáralind, 5288500
Optical Studio í Keflavík, 4213811
Optical Studio í Leifsstöð, 4250500
OYSTER PERPETUAL ROLEX DEEPSEA
➜ Seðlabankinn telur krónu með bættri
umgjörð og evru raunhæfustu valkosti
Íslands í gjaldmiðilsmálum.
➜ Evrunni fylgir margvíslegur ábati en
einnig nýjar hættur.
➜ Markaðurinn fjallar um hagfræðilegu
rökin með og á móti upptöku evru.
STÓRU
SPURNINGUNNI ÓSVARAÐ