Fréttablaðið - 26.09.2012, Qupperneq 16
| 2 26. september 2012 | miðvikudagur
Fróðleiksmolinn
Dagatal viðskiptalífsins
Allar markaðsupplýsingar eru aðgengilegar á
dagatal viðskiptalífsins
Miðvikudagur 26. september
➜ Fjöldi útgefinna vegabréfa
➜ Ýmis lánafyrirtæki | hagtölur SÍ
Fimmtudagur 27. september
➜ Vísitala neysluverðs í september
2012
➜ Meðalrekstrarkostnaður á
nemanda í grunnskólum 2012
Föstudagur 28. september
➜ Nýskráningar og gjaldþrot í
ágúst 2012
➜ Vöruskipti við útlönd í janúar –
ágúst 2012
➜ Vísitala framleiðsluverðs í ágúst
2012
➜ Verðbréfaviðskipti | hagtölur SÍ
➜ Staða markaðsverðbréfa | hag-
tölur SÍ
➜ Réttur til að vita | ráðstefna á
vegum Ský
Miðvikudagur 3. október
➜ Fasteignamarkaðurinn í
mánuðinum eftir landshlutum
➜ Vaxtaákvörðunardagur
Seðlabanka Íslands
➜ Vöruskipti við útlönd
Fimmtudagur 4. október
➜ Gistinætur og gestakomur á
hótelum í ágúst 2012
➜ Lífeyrissjóðir | hagtölur SÍ
➜ Gjaldeyrismarkaður | hagtölur SÍ
➜ Krónumarkaður | hagtölur SÍ
➜ Raungengi | hagtölur SÍ
Föstudagur 5. október
➜ Efnahagur Seðlabankans | hag-
tölur SÍ
➜ Útboð ríkisbréfa
Mánudagur 8. október
➜ Útskrifaðir nemendur úr framhalds-
og háskólum 2010-2011
➜ Erlend staða Seðlabankans |
hagtölur SÍ
Varnarmál og aftur varnarmál
Eftirfarandi myndir sýna orkunotkun stofnana bandaríska ríkisins á árunum
1975-2010. Eins og sjá má er orkunotkun vegna varnarmála að jafnaði um
80% af allri orkuneyslu þarlendra ríkisstofnana.
Póstþjónusta Bandaríkjanna eyðir næstmestri orku í þessum samanburði, en þó
er orkunotkun hennar þó lítil samanborið við orkunotkun hersins. Einnig má sjá
að bandaríska geimferðarstofnunin, NASA, ber einungis ábyrgð á tæpu prósenti af
heildarorkunotkun bandarískra alríkisstofnana. Taka skal fram að þessar tölur ná
einungis til bandaríska alríkisins. Þær taka því ekki mið af orkunotkun einkaaðila
eða orkunotkun annarra opinberra aðila svo sem fylkja, sveitarfélaga eða borga.
● Landbúnaðarmál
● Varnarmál
● Orkumál
● Stoðþjónusta
● Heilbrigðismál
● Innanríkismál
● Dómsmál
● Geimferðast. Bandar.
● Póstþjónusta
● Samgöngumál
● Málefni fyrrum hermanna
● Annað
1600
1200
800
400
0
1975 1980 1985 1990 1995 2000 2005 2010
Orkunotkun bandarískra alríkisstofnana
80,31%
Orkunotkun bandarískra
alríkisstofnana árið 2010
% 1 2 3 4 5
Orkunotkun vegna annarra
málaflokka en varnarmála
árið 2010
Póstþjónusta
Annað
Orkumál
Málefni fyrrum hermanna
Stoðþjónusta
Dómsmál
Heilbrigðismál
Geimferðastofnun Bandaríkjanna
Innanríkismál
Landbúnaðarmál
Samgöngumál
FJÖLMIÐLAR
Þórður Snær Júlíusson | thordur@frettabladid.is
DV ehf., sem er útgáfufélag DV,
skuldaði um 50 milljónir króna í
staðgreiðslu skatta og 26 milljón-
ir króna í ógreitt tryggingagjald
í júlí síðastliðnum. Samtals nam
skuld útgáfufélagsins vegna opin-
berra gjalda því um 76 milljónum
króna. Í árslok 2010 skuldaði DV
ehf. um 34 milljónir króna í sömu
gjöld. Sú upphæð hefur því rúm-
lega tvöfaldast síðan þá. Þetta
kemur fram í gögnum sem Mark-
aðurinn hefur undir höndum.
DV ehf. hefur ekki skilað inn
ársreikningi fyrir árið 2011 en
samkvæmt yfirlýsingu frá endur-
skoðanda félagsins nam uppsafn-
að tap þess um síðustu áramót um
90 milljónum króna.
DV ehf. var stofnað í byrjun árs
2010 og tók við rekstri DV í apríl
sama ár. Heildarhlutafé félags-
ins í upphafi var 63,6 milljónir
króna. Samkvæmt ársreikningi
DV ehf. fyrir árið 2010, sem er síð-
asti birti ársreikningur félagsins,
tapaði það 53,3 milljónum króna á
fyrstu níu starfsmánuðum sínum,
eða sem nemur 84 prósentum af
upphaflegu hlutafé sínu. Síðan þá
hefur hlutafé í DV ehf. verið aukið
nokkrum sinnum.
Á síðasta aðalfundi félagsins,
sem haldinn var 18. maí síðast-
liðinn, var hlutaféð hækkað úr
81,1 milljón króna í 107,3 milljón-
ir króna. Hlutafjáraukningin var
öll greidd með peningum. Á sama
fundi var síðan lögð fram ný til-
laga um niðurfærslu á „hlutafé
félagsins um 25% til jöfnunar
á móti tapi. Niðurfærslan skal
miðast við stöðu hlutafjár þann
31.12.2011 og er fjárhæðin sem
um ræðir 26.820.681,-“. Eftir þá
niðurfærslu er hlutafé DV ehf. því
80,5 milljónir króna.
Tilkynningunni til fyrirtækja-
skráar fylgdi einnig yfirlýsing
endurskoðanda. Í henni segir að
„samkvæmt ársreikningi félags-
ins fyrir árið 2011 nemur uppsafn-
að tap 90.099.418,-“. Af þessu er
ljóst að DV ehf. tapaði samtals
90,1 milljón króna á fyrstu tveim-
ur starfsárum sínum.
Í síðasta birta ársreikningi DV,
fyrir árið 2010, kom fram að fé-
lagið skuldaði 23,9 milljónir króna
í ógreidda staðgreiðslu skatta.
Auk þess skuldaði það 10,3 millj-
ónir króna í ógreitt trygginga-
gjald og um sex milljónir króna
í áfallna vexti.
Í gögnum sem Markaðurinn
hefur undir höndum, og sýna
yfirlit yfir opinberar greiðslur DV
ehf., kemur fram að félagið skuldi
25,8 milljónir króna í trygginga-
gjald í júlí síðastliðnum. Til við-
bótar skuldar það 50,4 milljónir
króna í staðgreiðslu launa. Því
skuldaði DV ehf. samtals 76,2
milljónir króna í vörsluskatta í
júlí síðastliðnum. Það er einkenni
vörsluskatta að refsivert er að
gera ekki skil á þeim til ríkissjóðs.
Stöð 2 greindi frá því fyrr í
septembermánuði að embætti
tollstjóra hafi hins vegar gert
samkomulag við hundruð fyrir-
tækja sem skulda opinber gjöld.
Embættinu er heimilt að stöðva
atvinnurekstur þegar slík gjöld
eða skattar eru í vanskilum en
því úrræði hefur ekki verið beitt
á nein fyrirtæki frá árinu 2009
vegna tilmæla frá fjármálaráðu-
neytinu um að beita ekki lokun-
araðgerðum.
Í kjölfar fréttar Stöðvar 2 fór
Guðlaugur Þór Þórðarson alþing-
ismaður fram á sérstakan fund í
efnahags- og viðskiptanefnd Al-
þingis til að fá frekari skýringar
á þeim úrræðum sem tollstjóra-
embættið hefur boðið fyrirtækj-
um sem skulda skatta.
Vörsluskattaskuld
DV hefur tvöfaldast
DV ehf. skuldaði 76 milljónir króna í opinber gjöld í júlí. Félagið
samdi við tollstjóra um greiðslur á skuldinni. Uppsafnað tap á
fyrstu tveimur árum reksturs félagsins nam um 90 milljónum.
STJÓRNENDUR Reynir Traustason er ritstjóri DV og sonur hans, Jón Trausti Reynisson,
framkvæmdastjóri félagsins. Þeir eru einnig báðir á meðal eigenda blaðsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
ER ÞITT FYRIRTÆKI
MEÐ SAMNING?
SAGA CLASS
Úrvalsþægindi, gott rými
og fyrsta flokks þjónusta.
Fyrirtæki sem eru með samning við Icelandair njóta
þess í hagkvæmari rekstri, betri tímanýtingu og
ánægðara starfsfólki.
Hlunnindi sem fyrirtækjasamningur veitir:
Sérstakur ferðaráðgjafi hefur umsjón með hverju
fyrirtæki.
Neyðarnúmer sem er opið allan sólarhringinn – alla
daga ársins.
Afsláttur sem býðst af fargjöldum til áfangastaða
Icelandair.
Nákvæmt viðskiptayfirlit á vefnum.
+ Allar nánari upplýsingar á www.icelandair.is/fyrirtaeki
eða sendið fyrirspurnir á fyrirtaeki@icelandair.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
5
39
19
0
4
/2
01
1
„Við erum með samkomulag við tollstjóra um að greiða þetta
upp og við munum gera það sem þarf til þess að klára þetta,“
segir Jón Trausti Reynisson, framkvæmdastjóri DV ehf.
Hann segist hafa tekið við sem framkvæmdastjóri fyrir
tveimur vikum og hafi verið að vinna í stöðunni síðan þá.
Þegar hafi töluvert verið borgað af skuldinni. „En ég býst
ekki við að þetta klárist fyrir áramót.“
Spurður hvort það hversu mikið skuldin hefur vaxið
bendi ekki til þess að félagið sé illa rekstrarhæft til
langs tíma svarar Jón Trausti: „Það hefur verið gripið
til niðurskurðaraðgerða sem eru að skila sér í mun
betri horfum núna og við munum gera það sem
gera þarf.“ - sh
ERUM MEÐ SAMKOMULAG VIÐ TOLLSTJÓRA
JÓN TRAUSTI
REYNISSON