Fréttablaðið - 26.09.2012, Qupperneq 18
| 4 26. september 2012 | miðvikudagur
Lögfræðistofan BBA Legal hagn-
aðist um 259 milljónir króna á síð-
asta ári. Það er um sjö milljón-
um króna meira en hún gerði á
árinu 2010. Þetta kemur fram í ný-
birtum ársreikningi BBA Legal.
Samtals hefur stofan grætt 793
milljónir króna á síðustu þrem-
ur árum en BBA Legal sérhæf-
ir sig í ráðgjöf tengdri samrun-
um og yfirtökum, fjármálamörk-
uðum, bankarétti, fjármögnun
fyrirtækja, gjaldþrotarétti og al-
mennri fyrirtækja- og fjármála-
ráðgjöf. Stofan hefur unnið mikið
fyrir erlenda fjárfesta og kröfu-
hafa sem eiga hagsmuna að gæta
á Íslandi.
BBA Legal greiddi eigendum
sínum 217,4 milljónir króna í arð
á árinu 2011 vegna frammistöðu
ársins á undan. Ekki er tilgreint
í ársreikningi hvað hún hyggst
greiða þeim vegna ársins 2011.
Hluthafar BBA Legal eru sex tals-
ins. Þar af eiga Ásgeir Á. Ragn-
arsson, Baldvin Björn Haraldsson
og Einar Baldvin Árnason 64,27
prósenta eignarhlut. Aðrir eigend-
ur eru Katrín Helga Hallgríms-
dóttir, Bjarki Diego og Atli Björn
Þorbjörnsson. - þsj
BBA Legal vinnur fyrir kröfuhafa og erlenda fjárfesta:
BBA Legal hagnaðist
um 259 milljónir króna
Framtakssjóður Íslands (FSÍ)
hagnaðist um 1,5 milljarða króna
á fyrstu sex mánuðum ársins
2012. Sjóðurinn metur virði eigna
sinna á 47,1 milljarð króna og
eigið fé hans í lok júní síðastlið-
ins nam 32,3 milljörðum króna.
Virði eigna FSÍ var því metið um
15 milljörðum króna meira en
þær eignir voru keyptar á. Allur
rekstrarhagnaður FSÍ stafar af
hækkun á markaðsvirði 19 pró-
senta eignarhlutar hans í Ice-
landair sem hefur hækkað mikið
í verði það sem af er ári. Þetta
kemur fram í útdrætti úr uppgjöri
FSÍ sem Markaðurinn hefur undir
höndum. Stærsti einstaki eigandi
FSÍ er Landsbankinn með 27,6
prósenta hlut. Aðrir eigendur
hans eru 16 lífeyrissjóðir og VÍS.
Sjóðurinn hagnaðist um 2,3 millj-
arða króna á árinu 2011 og var
þorri þess hagnaðar vegna sölu
á tíu prósenta hlut í Icelandair í
nóvember á því ári á 2,7 milljarða
króna. Hluturinn hafði þá ávaxt-
ast um 120 prósent frá því hann
var keyptur. Hópurinn sem keypti
hlutinn var að mestu sömu lífeyr-
issjóðirnir og eiga í FSÍ. Eftir söl-
una átti FSÍ áfram 19 prósenta
hlut í Icelandair.
Brynjólfur Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri FSÍ, segir afkom-
una aðallega vera vegna hækk-
andi gengis hlutabréfa í því fé-
lagi. Gengi Icelandair var um
fimm krónur á hlut um síðustu
áramót en 6,61 króna á hlut í lok
uppgjörstímabilsins. Gengi bréf-
anna í dag er um sjö krónur á hlut.
Því er ljóst að eignarhlutur FSÍ
í flugfélaginu hefur þegar skilað
sjóðnum enn meiri virðisaukn-
ingu.
Eignir FSÍ eru nú metnar á 47
milljarða króna. Brynjólfur segir
það 15 milljörðum krónum meira
en kaupverð þeirra. Hann hefur
einnig mikla trú á öðrum eignum
sjóðsins. „Framtakssjóðurinn á
nú 45 prósent í N1 og við bindum
miklar vonir við að sú fjárfesting
reynist hagkvæm fyrir sjóðinn.
Unnið er að krafti að skráningu
Vodafone á hlutabréfamarkað, en
það verður fyrsta skráning félags
í eigu sjóðsins í kauphöll.“
Eignir FSÍ hækkuðu
um fimmtán milljarða
Framtakssjóðurinn hagnaðist um 1,5 milljarða króna á fyrri hluta
ársins 2012. Hagnaðurinn aðallega tilkominn vegna hækkandi
hlutabréfaverðs í Icelandair. Vodafone fer bráðlega á markað.
FJÁRFESTINGAR
Þórður Snær Júlíusson | thordur@frettabladid.is
Félag Eignarhlutur %
Icelandic Group 100
Vodafone 79
Advania 75
Promens 50
N1 45
Icelandair Group 19
Eignir Framtakssjóðs Íslands
FRAMKVÆMDASTJÓRI
Brynjólfur Bjarnason var ráðinn
framkvæmdastjóri FSÍ í mars
síðastliðnum. Hann tók þá við
starfinu af Finnboga Jónssyni.
Brynjólfur var áður forstjóri Símans
og síðar Skipta á árunum 2002-2010.
FRÉTTABLAÐIÐ/RÓBERT
Rúmlega 90 prósent þeirrar aukn-
ingar í erlendri fjárfestingu sem
átti sér stað á Íslandi á árinu 2011
kemur frá Lúxemborg og Sviss,
en bæði ríkin eru þekkt fyrir ríka
bankaleynd og hagstætt skatta-
umhverfi. Þetta kemur fram í
hagtölum Seðlabanka Íslands um
beina fjárfestingu erlendra aðila
á Íslandi. Vert er að taka fram að
íslenskir einstaklingar geta flokk-
ast sem erlendir aðilar ef félög í
þeirra eigu eru með heimilisfesti
utan landsteinanna.
Alls jókst erlend fjárfesting-
in um tæpa 100 milljarða króna
milli áranna 2010 og 2011. Hún
fór úr 30 milljörðum króna í 128,1
milljarð króna og hefur ekki verið
hærri frá árinu 2007. Stærsti hluti
erlendu fjárfestinganna kom frá
Lúxemborg, en bein fjárfesting
aðila sem skráðir eru þar jókst
úr 32,6 milljörðum króna í 94,4
milljarða króna. Fjárfestingar
aðila sem skráðir eru í Sviss juk-
ust úr 579 milljónum króna í 29,2
milljarða króna. Samtals nemur
aukning fjárfestingar frá þessum
tveimur löndum 90,3 milljörðum
króna. Umræddar fjárfesting-
ar tengjast ekki fjárfestingaleið
Seðlabankans á neinn hátt, enda
fór fyrsta útboð innan hennar
ekki fram fyrr en í febrúar 2012.
- þsj
Erlend fjárfesting jókst um 100 milljarða á milli ára:
Nær einvörðungu frá
Sviss og Lúxemborg
LÚXEMBORG Ríkið hefur verið vinsælt sem skráningarland eignarhaldsfélaga íslenskra
fjárfesta á undanförnum árum. MYND/GETTY IMAGES
Eignabjarg, eignaumsýslufélag
í eigu Arion banka, hagnaðist
um 3,3 milljarða króna í fyrra.
Eignir félagsins námu 15,6 millj-
örðum króna um síðustu áramót.
Þar munaði langmestu um hagn-
að af eignarhlutum í eigu félags-
ins en það skilaði 3,3 milljarða
króna hagnaði.
Eignabjarg ber ábyrgð á um-
sýslu og ráðstöfun þeirra eign-
arhluta í fyrirtækjum sem Arion
banki hefur leyst til sín í kjöl-
far fjárhagslegrar endurskipu-
lagningar. Stærstu eignir þess
á síðasta ári voru ráðandi hlut-
ur í Högum, 42,7 prósenta hlutur
í Reitum og allt hlutafé í Penn-
anum.
Eignabjarg seldi þorrann af
eign sinni í Högum þegar fé-
lagið fór á markað og hefur hald-
ið áfram að minnka þann hlut á
þessu ári. Í dag á það 4,99 pró-
sent í Högum. Eignabjarg seldi
auk þess allt hlutafé í Pennan-
um síðastliðið sumar. - þsj
Eignabjarg Arion banka:
Milljarða
hagnaður
FRÓÐLEIKUR Á FIMMTUDEGI
Framtíð
innanlandsflugs
27. september | kl. 8:30 | Borgartúni 27
Kynntar verða helstu niðurstöður skýrslu um
áhrif þess að flytja miðstöð innanlandsflugs
frá Reykjavík til Keflavíkur.
Skráning og nánari upplýsingar á kpmg.is