Fréttablaðið - 26.09.2012, Page 19
Matarhátíðin Krásir í Kjósinni verður haldin næsta laugar-dag. Þar verður mat-
aráhugamönnum boðið upp
á ljúffengar veitingar úr
býlum sveitarinnar undir
stjórn matreiðslumeistar-
anna Ólafar Jakobsdótt-
ur og Jakobs H. Magnússonar.
Hátíðin var haldin í fyrsta skipti í fyrra
og mættu þá yfir 100 gestir. Halla Lúth-
ersdóttir, verkefnastjóri hjá Kjósarstofu,
segir fjölmarga bændur í Kjósinni
taka þátt í hátíðinni enda
stundi margir þeirra sölu
landbúnaðarafurða beint
frá býli. „Hugmyndin að
matarhátíðinni er komin
frá bændunum sjálf-
um sem fannst tilval-
ið að halda slíka upp-
skeruhátíð í lok sum-
ars. Þetta snýst líka um
að fagna fjölbreytileikanum í ferðaþjón-
ustunni enda boðið upp á margt annað
í sveitum landsins en bændagistingu og
hestaferðir.“
Allt hráefni á matarhátíðinni er úr
sveitinni og úr Hvalfirði að sögn Höllu.
„Við bjóðum upp á girnilegt hlaðborð
þar sem finna má kjöt, fisk, pylsur, græn-
meti, paté, súpu, brauð, pestó og mjólk-
urvörur svo eitthvað sé nefnt. Meðal
nýjunga í ár má nefna þorskinn en í vor
var byggð bryggja hér í sveitinni og fóru
bændur þá að sækja sjóinn.
Matseðillinn er fjölbreyttari
en í fyrra og má þá sérstak-
lega nefna forréttasmakkið.“
Af öðrum nýjungum nefnir
Halla grjótkrabbann en boðið
verður upp á grjótkrabbasúpu
með þorski. „Grjótkrabbi er nýr í náttúru
Íslands og talið er að hann hafi borist
hingað til lands með skipum. Bóndi úr
sveitinni var að moka hér í fjör-
unni og tók upp heila skóflu
af krabba. Grjótkrabbinn
héðan er til dæmis notaður
á ýmsum veitingastöðum
hérlendis.“ Bændur úr
Kjósinni verða einnig
með kynningu á vörum
sínum á matarhátíðinni
þannig að gestir hennar
munu fá nóg að borða.
Veislustjórn verður í höndum Sigur-
laugar M. Jónasdóttur útvarpskonu.
Einnig verður boðið upp á kynningu
á fjörunytjum í umsjón Eydísar Maríu
Jónsdóttur. Hátíðin verður haldin í
Félagsgarði í Kjós og verður húsið
opnað kl. 19. Hægt verður að panta
sætaferðir frá Reykjavík og til baka.
Nánari upplýsingar má finna á www.
kjosarstofa.is.
MATARVEISLA Í KJÓS
BEINT FRÁ BÝLI Kjósarstofa heldur árlega matarhátíð á laugardaginn undir
heitinu Krásir í Kjós. Einungis verður boðið upp á hráefni úr sveitinni.
HALLA LÚTHERS-
DÓTTIR Verkefnastjóri
hjá Kjósastofu.
MYND/ÚR EINKASAFNI
SÝNISHORN
AF MATSEÐLI
Sítrus- og engifer-
marineraður lax með
kryddjurtum og berja-,
epla- og piparmyntu-
jógúrtdressingu
Grjótkrabbasúpa með
þorski og koníaki
Reyktur lax með and-
areggi, rófum og skyr-
dressingu
Nautatunga með peru-
og chilichutney
Nautalifrarpaté með
kirsuberjahlaupi og
nautasultu
FJÖLBREYTNI
Boðið er upp á fjölbreytt
hráefni frá bændum í
Kjósinni.
NORÐURLJÓSASPÁR Á NETINU
Veðurstofa Íslands mun byrja að birta norðurljósaspár
frá og með næstu mánaðamótum. Þar verður í fyrsta skipti
reynt að spá fyrir um hvar á landinu og hvenær líklegast
er að til norðurljósanna sjáist.
DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI
SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS
Taka 12 Kg · Hljóðlát
Stórt op > auðvelt að hlaða
Sparneytin amerísk tæki.
<Þvottvélin tekur
heitt og kalt vatn Afkastamikill
þurrkari >
Þvottavél Þurrkari12 kg
Amerísk
gæðavara
Amerísk
gæðavara
Vertu vinur
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Vandaðir þýskir herraskór úr leðri í úrvali
Til dæmis: Teg: 305302/241
- Litur: svart - Stærðir: 40 - 47
Verð: 15.885.-
Sími 551 2070
Opið mán.-fös. 10-18.
Laugardag 10-14.
Suðurlandsbraut 50 • Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is
TILBOÐ-TILBOÐ-TILBOÐ
AÐHALDSSAMFELLUR
Verð nú 9.900 kr.
skálastærðir: B-C-D-DD-E-F
litir: svart og húðlitur.
TÆKIFÆRISGJAFIR
Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955
www.tk.is
- mikið af frábærum boðumtil
% a10 fs ál ttur
Heimir & Kolla
vakna með þér í bítið
Fréttir, fróðleikur
og frábær tónlist
alla virka morgna
kl. 6.50 – 9.00
Skipholti 29b • S. 551 0770
15%AFSLÁTTUR
AF YFIRHÖFNUM
GERÐU
SAMKOMULAG
VIÐ BARNIÐ
UM NETNOTKUN
Á HEIMILINU
www.saft.is