Fréttablaðið - 26.09.2012, Side 27

Fréttablaðið - 26.09.2012, Side 27
KYNNING − AUGLÝSING Svanurinn, fyrir umhverfið & heilsuna26. SEPTEMBER 2012 MIÐVIKUDAGUR 7 Neutral slær tvær f lugur í einu höggi og fer vel með bæði húðina og umhverf- ið,“ segir Guðrún Húnfjörð, vöru- merkjastjóri hjá Nathan & Olsen. F y r i r t æ k i ð f l y t u r i n n umhverfis vænar hreinlætis- og húðvörur frá Neut- ral sem Íslendingum eru að góðu kunnar. „Neutral-vörurn- ar hafa algjöra sér- stöðu þegar kemur að gæðum og virkni um leið og þær eru sérlega mildar og grænar,“ segir Guð- rún. Vörulína Neut- ral er bæði f yrir heimili og húð allr- ar fjölskyldunnar og þróuð í samvinnu við Astma- og of- næmissamtök Dan- merkur. „Langstærstur hluti Neutral-lín- unnar ber norræna Svansmerkið. Það auðveldar viðskipta- vinum að hugsa vel um umhverfið án þess að slá af kröfum sínum um gæði, virkni og vel- líðan,“ segir Guðrún. Allar vörur Neutral eru laus- ar við ilm- og litarefni og skað- leg aukefni. Húð- og snyrtivörur Neutral eru einnig án parabena. „Neutral Compact-þvottaefnin hafa vottun norræna Svansmerk- isins til staðfestingar á því að þau uppfylli kröfur yfirvalda um um- hverfisvænar vörur. Neytendur geta því auðveldlega lagt sitt af mörkum til að hlífa umhverfinu með því að skammta rétt í þvotta- vélina, þvo við lágt hitastig og nota um- hverfisvæn þvotta- efni,“ útskýrir Guð- rún. „Neutral v inn- ur daglega að því að gera vörur sínar eins umhverfisvænar og hægt er án þess að slaka á aðalkröfun- um sem eru að vör- urnar eiga að vera ofnæmisvænar og gæðin áreiðanleg.“ Á dögunum opn- aði hei m a s íða n www.neutral.is. Hún inniheldur ít- arlegar upplýsing- ar um Neutral-vör- urnar ásamt góðum ráðum um ofnæmi. Þess má geta að Astma- og ofnæmis- félagið á Íslandi mælir með vörum frá Neut- ral. „Neutral er danskt merki og þar í landi númer eitt á öllum sviðum. Umhverfisvitund Íslendinga fer sömuleiðis ört vaxandi og æ fleiri sem velja Neutral, sjálfs síns og náttúrunnar vegna.“ Traustur vinur umhverfis og húðar Dönsku hreinlætisvörurnar frá Neutral hafa slegið í gegn á meðal Íslendinga sem velja gæði fyrir sjálfa sig og heimilið og vilja umgangast náttúruna af virðingu. Allar vörur Neutral eru lausar við ilm-, litar- og skaðleg aukefni. Langstærstur hluti Neutral- línunnar er með vottun norræna Svansmerkisins. Því er auðvelt fyrir neytendur að leggja sitt af mörkum í umhverfisvernd. Guðrún Húnfjörð er vörumerkjastjóri Nathan & Olsen. MYND/GVA Nýjasta afurð Neutral er frískandi hársápa, sturtusápa og freyðibað fyrir káta krakka. Umræða um umhverfis-vernd og meðvitund al-mennings um málefnið hefur aukist undanfarin ár. Sala á umhverfisvottuðum vörum hefur aukist og f lokkun á sorpi hefur færst í aukana. Karen H. Kristjánsdóttir, mark- aðsfulltrúi hjá Sorpu, segir starfs- fólk þar finna fyrir þessari aukn- ingu þó ekki séu til neinar tölur sem eru fastar í hendi sem sýna fram á þetta. „Við hjá Sorpu finn- um mest fyrir því þegar breytingar verða á kaupmætti. Árið 2007 var mjög mikill úrgangur af því neysl- an var svo mikil. Eftir að kreppan skall á hefur dregið úr úrgangi en það er erfitt að segja til um hvort það sé vegna þess að fólk sé að kaupa minna eða hvort flokkun sé að aukast. Það er þó ýmislegt sem bendir til þess að það sé vegna aukinnar f lokkunar því sam- kvæmt þjónustukönnunum sem við höfum gert í gegnum árin fer fjöldi þeirra sem segjast flokka og skila vaxandi. Hlutfall þeirra sem endurvinna heima hjá sér er allt- af að hækka en það gerist hægt og bítandi samkvæmt þessum þjón- ustukönnunum.“ Mörgum vex það ef til vill í augum að flokka sorp en starfsfólk Sorpu leggur sig fram um að auð- velda fólki umhverfisverndina. „Grenndargám- ar eru nú úti um allt. Þeir eru stað- settir í alfaraleið, oft hjá matvöru- verslunum og leik- skólum. Það er auð- velt að flokka í þessa helstu flokka, papp- ír, plast, skilagjalds- skyldar umbúðir og gler. Það þarf ekki lengur að f lokka málma, starfsfólk Sorpu getur nú tekið þá úr almenna sorp- inu. Gott er að venja sig á að fara á endur- vinnslustöðvar reglulega með dósir og gler. Íbúar í Kópavogi og Garðabæ eru nú allir komnir með bláar tunnur fyrir utan hjá sér þar sem þeir geta sett allan pappír í og svona má áfram telja hvað fólk getur gert til að end- urnýta. Oft gerir fólk sér ekki grein fyrir hversu lítið mál þetta er,“ segir Karen. Fleiri flokka og skila Fjöldi þeirra sem flokkar og skilar sorpi virðist vera að aukast sem og meðvitund um umhverfið. Starfsfólk Sorpu leggur sig fram við að auðvelda fólki umhverfisverndina, grenndargámar eru til dæmis staðsettir í alfaraleið. Auðvelt er að flokka sorp í helstu endurnýtanlegu flokkana, pappír, plast, gler og skila- gjaldsskyldar umbúðir. Neutral kynnti nýlega Svansmerkta andlitslínu sem gefur húðinni allt sem hún þarfnast – og ekkert annað! Öll línan er algjörlega án ilmefna, litarefna og parabena. Vörulína Neutral er stór. Margir þekkja þvotta- efnið, handsápuna og sturtusápuna af góðu einu en þar með er úrvalið hvergi tæmt. Neutral inniheldur einnig uppþvottalög, mýkingarefni, svitalyktareyði, sjampólínu, húðmjólk, handáburð, ungbarnalínu, krakkalínu og andlitslínu. Grand Hótel Reykjavík hefur hlot- ið Svansvottun og var það fyrsta stóra hótelið á landinu til að hljóta vottunina. „Umhverfismál eru okkur mikilvæg og við náðum mjög góðum árangri á skömm- um tíma þar sem við innleiddum vinnureglur Svansvottunarinnar á um það bil hálfu ári,“ segir Gylfi Freyr Guðmundsson, aðstoðar- hótelstjóri Grand Hótels. „Stærstu breytingarnar sem hafa bein áhrif á okkur og gesti okkar eru flokkun sorps, útilokun einnota vöru og hvatning birgja til að finna umhverfisvottaðar vörur fyrir okkur. Það sem hefur verið erfiðast við þetta er að rata í gegn- um þann frumskóg vottana sem til eru á markaðnum. Þess vegna er Svansvottunin svo mikilvæg því þar eru engin vafaatriði, allt er rýnt í þaula og það sem reynist ekki rétt er hægt að forðast.“ Fyrsta Svans- vottaða hótelið Miklar breytingar á starfsemi fyrirtækja geta fylgt því ferli sem þarf til að fá Svansvottun. Grand Hótel hefur nýlega gengið í gegnum slíkar breytingar. Útiloka þurfti allar einnota vörur, svo sem sápu og sjampóbrúsa við Svansvottun Grand hótels og því sápu- og sjampóskammtarar á herbergjum.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.