Fréttablaðið - 26.09.2012, Side 36

Fréttablaðið - 26.09.2012, Side 36
26. september 2012 MIÐVIKUDAGUR16 timamot@frettabladid.is Vegna stærðar blaðsins á morgun, fimmtudag, verður Fréttablaðið prentað í tvennu lagi. Frestur til að skila inn dánarauglýsingum í fimmtudagsblaðið færist því fram til kl. 13.30. Ástkær sonur, bróðir og frændi, JÓN HILMAR HÁLFDÁNARSON lést á gjörgæsludeild Landspítalans mánudaginn 17. september. Útför hans fer fram mánudaginn 1. október kl. 13.00 frá Garðakirkju. Fyrir hönd aðstandenda, Hálfdán Jónsson Júlíus Atli Hálfdánarson Lovísa Grétarsdóttir Matthías Hálfdánarson Brynja Guðmundsdóttir Júlíana Gísladóttir Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts föður okkar, tengdaföður, afa, langafa og langalangafa, EGILS Á. KRISTBJÖRNSSONAR. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki og heimilisfólki á Droplaugarstöðum fyrir samfylgdina. Auður Egilsdóttir Einar Guðlaugsson Kristbjörn Egilsson Ólafur Guðbrandsson Guðbjörg Egilsdóttir Steingrímur Þormóðsson Logi Egilsson Anna Guðmundsdóttir og fjölskyldur Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og systir, HALLA BERGSTEINSDÓTTIR Eyjahrauni 10, Vestmannaeyjum, lést laugardaginn 22. september. Jarðsungið verður frá Landakirkju Vestmannaeyjum laugardaginn 29. september kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja. Svea Sigurgeirsdóttir Óskar Ólafsson Halla María Þorsteinsdóttir Sigurgeir Óskarsson Vilborg Bergsteinsdóttir Jónas Bergsteinsson Kjartan Bergsteinsson Ástkær eiginmaður minn og stjúpfaðir okkar, VALGEIR G. VILHJÁLMSSON kennari, Árskógum 8, Reykjavík, lést fimmtudaginn 20. september á Hjúkrunarheimilinu Skógarbæ. Útför hans fer fram frá Seljakirkju föstudaginn 28. september kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjartavernd. Anna D. Magnúsdóttir og börn Faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, KRISTINN T. MÖLLER Bassi frá Siglufirði, Gullsmára 9, Kópavogi, lést sunnudaginn 23. september. Jarðarförin verður auglýst síðar. Harpa Möller Sigurður Ingólfsson Jón Ómar Möller Magna Sigbjörnsdóttir Bylgja Möller Gísli Þór Gíslason Örvar Möller Ólöf Björnsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓN ÓSKARSSON fyrrv. flugumferðarstjóri Kristnibraut 41, Reykjavík, lést sunnudaginn 16. september á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 28. september kl. 15.00. Sigdís Sigmundsdóttir Anna Björg Jónsdóttir Sigurður Hinrik Teitsson Hafliði Jónsson Agnes Stefánsdóttir Sandra Mjöll Sigurðardóttir Ásta Guðrún Sigurðardóttir Sigdís Lind Sigurðardóttir Þorsteinn Már Hafliðason Andrea Sif Hafliðadóttir Óskar Páll Hafliðason Í tilefni af Evrópska tungumála- deginum í dag efna Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur, Samtök tungumála- kennara á Íslandi og Máltæknisetrið til dagskrár í hátíðasal Háskóla Íslands klukkan 16.00-17.15. Hátíðin ber yfirskriftina „Tungu- mál, tækni og tækifæri“. Þar verður fjallað um hvernig ný þekking, tækni og leiðir geta nýst í þágu tungumála- náms og samskipta á erlendum tungu- málum. Þá verður kynnt alþjóðleg skýrsla um framtíðarhorfur þrjá- tíu Evrópumála í stafrænum heimi auk þess sem greint verður frá stöðu erlendra tungumála í nýrri námskrá grunnskóla. Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor í íslenskri málfræði, kynnir skýrsluna um framtíðarhorfur tungumálanna. Niðurstaða hennar sýndi að um tveir þriðju hlutar málanna sem um er fjallað eru í hættu vegna þess að þau ná ekki að fylgja hraðri þróun upplýsinga- og tölvutækninnar og verða því ekki nothæf á mikilvægum sviðum þjóðlífs- ins í framtíðinni, ef svo fer sem horfir. „Eitt sem menn átta sig kannski ekki á er hvað tungumálið leikur sífellt stærra hlutverk í samskiptum við tölvurnar. Við munum fá alls konar tól og tæki á næstu áratugum sem menn munu stjórna með því að tala við þau. Þá er spurning hvaða tungumál menn ætla að tala,“ segir Eiríkur. Netrisinn Google opinberaði nýlega app-forrit þar sem menn geta talað íslensku við símann sinn og sagt honum fyrir verkum. „Ég hef sagt að þetta sé eitt stærsta skref sem hefur verið stigið í íslenskri málrækt. Þetta opnar leið fyrir íslensku inn í svo margt,“ segir Eiríkur. „Ef við getum ekki talað íslensku við tækin mun það örugglega ekki þýða að við hættum við að nota þau. Ef það þýðir að þú þarft að tala ensku við ísskápinn þinn þá munt þú gera það.“ Hann bætir við að enginn nema Google hefði getað búið til þetta forrit. Ástæðan er sú að fyrirtækið safnar nær öllum vefsíðum í heiminum og á því gífurlegt magn af íslenskum textum sem eru síðan greindir með svokallaðri talgreiningu. Hún sér um að finna út hvað er líklegt að maður hafi verið að segja. freyr@frettabladid.is EVRÓPSKI TUNGUMÁLADAGURINN: HALDINN HÁTÍÐLEGUR Í DAG Að tala íslensku við ísskápinn KYNNIR NÝJA SKÝRSLU Eiríkur Rögnvaldsson kynnir nýja skýrslu í dag um framtíðarhorfur tungumálanna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI OLIVIA NEWTON-JOHN söng- og leikkona á afmæli í dag „Fyrir mér er lúxus það að vera heima með dóttur minni. Smá nudd af og til er heldur ekki slæmt.“ 63 Merkisatburðir 580 Francis Drake lýkur hringferð sinni um hnöttinn. 1942 Bifreiðaeinkasala ríkisins er lögð niður. 1965 Fyrsti bandaríski hermaðurinn lætur lífið í Víetnam. 1957 Söngleikur- inn West Side Story eftir Leonard Bern- stein er frumfluttur í London. 1970 Fokker Friend- ship-flugvél frá Flug- félagi Íslands hf. ferst á Mykinesi í Fær- eyjum. Átta manns létust, þar af einn Íslendingur. 1973 Concorde-þota flýgur í fyrsta sinn yfir Atlantshafið á mettíma. 1984 Ákveðið er að Bretar afhendi Kínverjum Hong Kong árið 1997. Á þessum degi árið 1960 áttust bandarísku forsetaframbjóðend- urnir John F. Kennedy og Richard Nixon við í einum frægustu sjón- varpskappræðum allra tíma. Þetta var í fyrsta sinn sem forsetafram- bjóðendur mættust í sjónvarpskapp- ræðum í Bandaríkjunum en þeim var einnig útvarpað. Þetta voru fyrstu kappræðurnar af fjórum og tekist var á um innanlandsmál. Sjónvarp var nýjung á þessum tíma og fæstir stjórnmálamenn höfðu leitt hugann að því hvernig þeir gætu nýtt það sér í vil. Ken- nedy var einn af þeim fáu sem höfðu gert það. Þegar hann mætti í sjón- varpið var hann nýkominn af fram- boðsfundum í Kaliforníu og var sól- brúnn og hraustlegur. Nixon var á hinn bóginn nýrisinn úr rekkju eftir að hafa legið á spítala um nokkurra vikna skeið vegna hnémeiðsla. Hann var horaður og fölur og þvertók fyrir að láta farða sig fyrir sjón- varpið. Yfirgnæfandi meirihluti sjón- varpsáhorfenda taldi að Kennedy hefði borið sigur úr býtum en þeim sem hlýddu á kappræðurnar í útvarpi fannst vera mjótt á mununum. Lengi var það viðtekin skoðun að sjónvarpskapp ræðurnar hefðu valdið straumhvörfum í kosn- ingabaráttunni og Kennedy átt sigur sinn þeim að þakka. Það er senni- lega ofmat, en ljóst er að Kennedy átti vinsældir sínar sannarlega sjón- varpi að einhverju leyti að þakka. ÞETTA GERÐIST: 26. SEPTEMBER 1960 Kennedy og Nixon áttust við

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.