Fréttablaðið - 03.10.2012, Blaðsíða 19
ÓDÝRARI BISNESS-MATUR
Máltíðir bisness-manna í New York
hafa breyst mikið frá hruni. Engu að
síður eru hádegisverðir þeirra einn
mesti drifkrafturinn í rekstri fínna
veitingahúsa í borginni.
Áhugi Guðna á hellum kviknaði um níu ára aldur í Vestmannaeyjum. Þar leitaði hann eftir hellum og
sprungum til að skríða ofan í og fljótlega
breyttist áhuginn yfir í ástríðu.
„Í fyrstu var það spennan sem dró
mig áfram. Það var heillandi að fara
ofan í jörðina og sjá aðra veröld sem
var ný og öðruvísi. Þegar ég var ellefu
ára fékk ég bókina Hraunhellar á Íslandi
eftir Björn Hróarsson sem breytti mjög
miklu. Ég las bókina, skoðaði myndirnar
og varð alveg heltekinn. Síðan þá hefur
áhuginn verið til staðar og aldrei dvínað,
hann hefur þróast frá spennunni yfir í
fræðilega þekkingu og áhuga á könnun
og verndun hella. Í dag er ég svo að læra
jarðfræði í HÍ sem er nú partur af þessari
bakteríu,“ segir Guðni hlæjandi.
Eitt af mörgum hlutverkum Hellarann-
sóknafélagsins er að varðveita þá hella
sem eru á Íslandi. „Þegar ágangur verður
mikill þá skemmast hellar oft, drop-
steinar og aðrar hraunmyndanir eiga
það til að brotna og hverfa úr hellunum,
en þær myndast bara einu sinni og koma
ekki aftur. Oft er það óviljandi þar sem
fólk er með lélega lýsingu. Svo vill safn-
ast rusl í þá, troðningur verður mikill og
þess háttar. En það er mjög mikilvægt
að ganga vel um náttúruna.“ Annað hlut-
verk félagsins er að skrá niður og kort-
leggja þá hella sem vitað er um og leita
nýrra. „Við förum reglulega í ferðir þar
sem einn hellir er fullkannaður og í leið-
inni er leitað nýrra hella á svæðinu. Við
skoðum stundum loftmyndir af svæðinu
áður en við förum og vitum því nákvæm-
lega hvar við ætlum að leita.“
Guðni segir að íslenskir hellar séu ein-
stakir á heimsvísu. „Á Íslandi er mikill
fjöldi hraunhella og ekki margir staðir í
heiminum þar sem þá er að finna í slíku
magni. Í nágrenni Reykjavíkur eru margir
hellar sem eru gríðarlega fallegir. Til
dæmis Raufarhólshellir í Þrengslunum
sem er að jafnaði með um 10 metra loft-
hæð og um kílómetri á lengd og ótrúlega
heillandi.“
Hellarannsóknafélagið er öllum opið
og hægt er að nálgast ýmsan fróðleik á
heimasíðu þess, www.speleo.is, eða með
því að senda fyrirspurnir með tölvupósti
(speleo@speleo.is). ■ vidir@365.is
HELLAÁSTRÍÐA
Á HÁU STIGI
Í IÐRUM JARÐAR Guðni Gunnarsson er formaður Hellarannsóknafélags Ís-
lands. Ungur að árum heillaðist hann af spennunni sem fylgdi því að kanna
hraunhella og þeirri töfrandi veröld sem er að finna djúpt í iðrum jarðar.
TÖFRAVERÖLD
Á Íslandi er mikinn
fjölda hraunhella að
finna og margir þeirra
stórbrotnir að sjá.
Vertu vinur
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Vandaðir þýskir herraskór úr leðri í úrvali
Til dæmis: Teg: 305302/241
- Litur: svart - Stærðir: 40 - 47
Verð: 15.885.-
Sími 551 2070
Opið mán.-fös. 10-18.
Laugardag 10-14.
Suðurlandsbraut 50 • Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is
TILBOÐ-TILBOÐ-TILBOÐ
AÐHALDSSAMFELLUR
Verð nú 9.900 kr.
skálastærðir: B-C-D-DD-E-F
litir: svart og húðlitur.
DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI
SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS
Taka 12 Kg · Hljóðlát
Stórt op > auðvelt að hlaða
Sparneytin amerísk tæki.
<Þvottvélin tekur
heitt og kalt vatn Afkastamikill
þurrkari >
Þvottavél Þurrkari12 kg
Amerísk
gæðavara
Amerísk
gæðavara
TÆKIFÆRISGJAFIR
Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955
www.tk.is
- mikið af frábærum boðumtil
%10 afsláttur
HAFNARGÖTU 90 REYKJANESBÆ SELFOSSI HÚSAVÍK AKUREYRI KAUPVANGI 6 EGILSSTÖÐUM S: 414 1735 REYKJAVÍK S: 569 1500
ht.is
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
PHILIPS
AMBILIGHT