Fréttablaðið - 03.10.2012, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 03.10.2012, Blaðsíða 16
16 3. október 2012 MIÐVIKUDAGUR Þetta er innihaldið í spurningu sem lögð verður fyrir þjóðina 20. október nk. Orðrétt hljóðar hún svo: „Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæði um að tiltekið hlut- fall kosningarbærra manna geti krafist þess að mál fari í þjóðar- atkvæðagreiðslu?“ Þjóðaratkvæðagreiðslur hafa ekki verið algengar á Íslandi, enda þótt forsetinn hafi frá lýð- veldisstofnun haft vald til að fela þjóðinni að staðfesta eða fella lög frá Alþingi. Núverandi for- seti varð fyrstur til að nýta þetta ákvæði eins og kunnugt er. Á hinn bóginn hefur lengi verið um það rætt að kjósendur sjálfir ættu að geta kallað eftir þjóðaratkvæða- greiðslu. Jafnframt hefur komið til álita að minnihluti þings gæti gripið til þessa úrræðis. Alþingi fól stjórnlagaráði sér- staklega að gera tillögu í þeim efnum. Allir þrír möguleikarn- ir voru ræddir, þ.e.a.s. að frum- kvæði að þjóðaratkvæði gæti komið frá forseta Íslands, frá skilgreindum minnihluta Alþing- is eða beint frá kjósendum sjálf- um. Niðurstaðan varð sú að horfa einkum til síðasta möguleikans, frumkvæðis þjóðarinnar sjálfrar, en halda þó málsskotsrétti forset- ans sem algerum neyðarhemli. Í 65. gr. frumvarps ráðsins er lagt til að 10% kjósenda geti kraf- ist þjóðaratkvæðagreiðslu um gildi laga frá Alþingi jafnframt því sem málskotsrétti forsetans er haldið (60. gr.). En þjóðaratkvæða- greiðsla er vandmeðfarið úrræði sem ekki má leggja við hégóma. Í 67. gr. frumvarps síns leggur stjórnlagaráð til að kjósendur geti ekki krafist atkvæðagreiðslu um viss fjárhags- og þjóðréttarmál. Jafnframt er mælt fyrir um setn- ingu laga um alla málsmeðferð svo sem um vandvirkni og form- festu við undirskriftasafnanir. Í stjórnlagaráði var rætt um hvort hafa ætti skilyrði um þátttöku til að þjóðaratkvæða- greiðsla teldist gild. Gallinn við slík ákvæði er sá að þá getur það verið beittara vopn að sitja heima en að mæta á kjörstað og taka afstöðu. Markmiðið um að fá fram berorða skoðun þjóðarinnar næðist þá ekki. Af þessum sökum hvarf stjórnlagaráð frá þátttöku- skilyrðum enda eru engin slík ákvæði í gildandi stjórnarskrá. Benda má á lýðræðislegri leið. Hún gæti falist í því að þingmenn teldust taka ákvörðun fyrir þann hluta þjóðarinnar sem tekur ekki þátt í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Rök fyrir JÁ við spurningunni Spurningin í þjóðaratkvæða- greiðslunni er almennt orðuð; hún snýst um markmiðið sjálft, ekki um útfærslu stjórnlagaráðs. Henni má hnika til, ef þarf. Rökin fyrir því að svara með jáyrði eru m.a. þessi: • Allt vald í lýðræðisríkjum er komið frá fólkinu sjálfu. Það felur að jafnaði kjörnum fulltrúum að fara með vald sitt eftir umboði. En að sama skapi á þjóðin að geta kallað valdið aftur til sín, m.a. með því að vefengja lagasetningu fulltrúa- þingsins. • Eindregin krafa kom fram á Þjóðfundinum 2010 um aukna aðkomu þjóðarinnar að ákvörð- unum í mikilvægum málum. • Þróunin nær hvarvetna í kring- um okkur er í áttina að hæfi- legu blandi af fulltrúalýðræði og beinu lýðræði. Við höfum verið eftirbátar annarra. • Vilji þjóðarinnar til að geta úrskurðað í mikilvægum málum kom fram í góðri þátt- töku í báðum þjóðaratkvæða- greiðslunum um Icesave-málið. • Beint lýðræði kallar á ábyrgð fólksins og vekur þannig áhuga þess á lýðræðinu. Ekki veitir af þegar traust á stjórnvöldum öllum er í lágmarki. Rök fyrir NEI við spurningunni Vissulega eru líka rök fyrir því að stíga varlega til jarðar í beinu lýðræði: • Sumir vitna til Kaliforníu þar sem atbeini kjósenda er sagð- ur hafa stefnt ríkisfjármál- unum í óefni (sem er reynd- ar þjóðsaga). Við þessu má sjá með því að leyfa ekki atkvæða- greiðslu um fjárhagsleg mál- efni og nokkur önnur viðkvæm mál. Þessi varnagli er í tillögum stjórnlagaráðs um frumkvæði almennings eins og fyrr segir. • Sagt er að auðvelt sé að æsa 10% þjóðarinnar upp gegn óvin- sælli en óhjákvæmilegri laga- setningu þingsins. Spurningin sem lögð verður fyrir þjóðina í haust snýst ekki um þetta hlut- fall. Þyki mönnum það of lágt er hægur vandi að hækka það í meðförum þingsins. • Sumir telja unnt að fá undir- skriftir undir hvað sem er á Íslandi. Ekki er víst að þessi fullyrðing sé rétt. Alla vega hefur sumum reynst örðugt að safna meðmælendum í kosning- um, t.d. við forsetakjör. Stjórn- lagaráð velti vöngum yfir þessu atriði og leggur til að sett verði ströng ákvæði um undirskrifta- safnanir. Ályktun Allir valdhafar, líka þingmenn, starfa í umboði þjóðarinnar. Þegar hún telur þörf á kallar hún valdið til baka. Þannig eiga fulltrúaræðið og beina lýðræðið að geta styrkt hvort annað. Pistilhöfundur mælir því með jáyrði við spurningunni um það hvort kjósendur geti krafist þess að mál fari í þjóðaratkvæða- greiðslu. Allir valdhafar, líka þingmenn, starfa í umboði þjóðarinnar. Þegar hún telur þörf á kallar hún valdið til baka. Þannig á fulltrúa- ræðið og beina lýðræðið að geta styrkt hvort annað. Afmaeli 15% 25% www.sonycenter.is 100 Hz X-Reality myndvinnsla Dynamic EDGE LED baklýsing Tilboð 169.990.- 400 Hz X-Reality myndvinnsla Dynamic EDGE LED baklýsing Tilboð 289.990.- 40” LED SJÓNVARP KDL40EX653 46” LED SJÓNVARP KDL46HX753 5 ára ábyrgð að verðmæti 12.000.- fylgir með í kaupunum Sony Center I Verslun Nýherja Borgartúni I 569 7700 Sony Center I Verslun Nýherja Kaupangi Akureyri I 569 7645 Rannsóknir og greining stendur fyrir ráðstefnu í Háskólanum í Reykjavík fimmtudaginn 4. október kl. 8:45 – 15:30 í stofu V101. Fjallað verður um mikilvægi rannsókna á högum og líðan barna og ungmenna, samspil rannsókna, stefnumótunar og þróunarstarfs og mikilvægi þess að tryggja að niðurstöður komist til fagfólks á vettvangi, almennings og stjórnvalda. Á ráðstefnunni fjallar hópur alþjóðlegra vísindamanna um hagnýtt og vísindalegt gildi æskulýðs- rannsóknanna Ungt fólk 1992 til 2012 á Íslandi og skrif sín úr þeim gögnum hjá Rannsóknum og greiningu. Ráðstefnan er öllum opin meðan húsrúm leyfir. Skráning er með tölvupósti á netfangið rannsoknir@rannsoknir.is UNGT FÓLK 1992 – 2012 HVAÐ VITUM VIÐ NÚ? Æskulýðsrannsóknir í 20 ár Vilt þú að krefjast megi þjóðaratkvæðagreiðslu? Umfjöllun um hinn stóra sinu-bruna sem átti sér stað í lok sumars á Laugarlandi í landi Súða- víkurhrepps hefur ekki farið fram hjá neinum. Nú er reikningurinn kominn og hljóðar upp á 20 millj- ónir króna. Sveitarfélagið gerði ráð fyrir að kostnaður við að reka slökkviliðið væri ein milljón króna fyrir árið 2012. Kostnaður vegna þessa bruna er því tuttugu sinnum hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Tuttugu milljónir virka ekki sem há fjárhæð en fyrir lítið sveitarfé- lag sem telur innan við 200 íbúa er það stór biti til að kyngja þegar haft er til hliðsjónar að skatttekjur sveitarfélagsins árið 2011 voru innan við 80 milljónir króna. Við erum að tala um fjórðung tekna sveitarfélagsins á ársgrundvelli. Á vegum ríkisins er enginn sjóð- ur til sem tekur á svona slysum. Hvorki Bjargráðasjóður né Við- lagatrygging Íslands greiða bætur vegna svona hamfara. Nú þarf hver íbúi Súðavíkurhrepps að taka á sig meira en hundrað þúsund króna tjón vegna fífldirfsku nokkurra einstaklinga sem höfðu það gaman í Laugarlandi fyrr í sumar. Reykjavíkurborg veltir um 54 milljörðum króna á hverju ári. Fjórðungur þess er um 11 millj- arðar króna. Ímyndið ykkur ef tjón af slíkri stærðargráðu kæmi til og reikningurinn ætti allur að lenda á Reykjavíkurborg! Ég myndi ætla að borgarbúar myndu ekki sætta sig við slíkt. Það væri fróðlegt að vita hvort stjórnvöld myndu ekki þá stökkva upp og finna leiðir til þess að aðstoða Reykjavíkurborg. Það er ekki hægt fyrir stjórnvöld að loka augunum fyrir vandamáli Súðavíkurhrepps og gera ekkert í málinu. Ekkert sveitarfélag getur staðið undir svona miklum útgjöld- um og samt haldið úti lögbundinni þjónustu. Ég skora á ríkisstjórnina að finna lausn á þessu máli og að komið verði á fót sjóði sem muni hjálpa sveitarfélögum með sams konar óvænt útgjöld. Einnig væri hægt að breyta lögum um Bjarg- ráðasjóð eða Viðlagatryggingu Íslands. Súðavík er í brunarúst Ný stjórnarskrá Þorkell Helgason sat í stjórnlagaráði Samfélagsmál Bergvin Oddsson stjórnarmaður í Framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.