Fréttablaðið - 03.10.2012, Blaðsíða 21
| FÓLK | 3FERÐIR
Ástralía er fjórða stærsta land veraldar og mikill ævintýra-heimur. Landið býr yfir stór-
kostlegri náttúru, allt frá rauðum
eyðimörkum til ilmandi regnskóga,
glæsilegum heimsborgum og skraut-
legum krummaskuðum í óbyggðinni,
gríðarlega fjölbreyttu dýralífi, glæsi-
legum ströndum og vinalegu fólki.
Fjöldi Íslendinga býr í Ástralíu, þar
á meðal hjónin Sigmundur Valgeirs-
son og Sigurbjörg Guðlaugsdóttir
sem hafa verið búsett þar í 22 ár.
Sigmundur segir að þau hjónin hafi
ferðast til Ástralíu árið 1988 og eftir
þá ferð var ekki aftur snúið. „Sigur-
björg var ákveðin í að mennta sig
frekar og hafði hug á að fara í fram-
haldsnám í grein sem var ekki í boði í
Háskóla Íslands. Upphaflega var ætl-
unin að vera í fimm ár á meðan Sigur-
björg kláraði BS-gráðu við háskólann.
Við erum hér enn þá, 22 árum seinna,
þannig að það hefur teygst töluvert
úr þessum fimm árum. Við kunnum
óskaplega vel við okkur hérna.
Ástralía er gífurlega stór eyja og er
náttúran hérna ákaflega fjölbreytt og
stórkostleg.“
Hjónin fjárfestu í jeppa árið 2008
og hafa ferðast mikið um óbyggðir
Ástralíu síðustu árin. Þau segjast hafa
mestan áhuga á stöðum sem ekki eru
í alfaraleið. „Við höfum ferðast mikið
um óbyggðir Ástralíu síðustu árin og
lent í miklum ævintýrum. Núna erum
við í 18 vikna ferðalagi þar sem við
keyrum frá Sydney til Kimberleys og
Northern Territory í norður- og norð-
vesturhluta landsins. Við ákváðum
þessa áfangastaði þar sem þeir eru
svo langt frá Sydney þar sem við
búum.“ Þau voru tvö ár að undir-
búa ferðalagið sem hófst í júlí og eru
þessa dagana stödd í bænum Tenn-
ant Creek í Northern Territory. Næst
á döfinni er keyrsla til bæjarins Alice
Springs sem er í miðju landsins. Lesa
má ferðasögu þeirra hjóna á bloggi
þeirra, www.simmiv.blogspot.com.
FERÐAST UM ÓBYGGÐIR ÁSTRALÍU
FÖGUR NÁTTÚRA Fjölbreytni einkennir náttúru Ástralíu og ferðalög um landið eru mikil ævintýri. Fjöldi Íslendinga býr í Ástralíu
og eru þeir duglegir að ferðast um landið. Norðurhluti Ástralíu býður upp á eyðimerkur, krókódíla og menningu frumbyggja.
Á LÖNGU FERÐALAGI
Hjónin Sigmundur Valgeirsson og Sigurbjörg Guðlaugsdóttir eru á 18 vikna
ferðalagi um norður- og norðvesturhluta Ástralíu. Hér hvíla þau lúin bein
ásamt tuskukanínunni Kylie sem fylgir þeim í öll ferðalög.
MYND/ÚR EINKASAFNI
NAME IT BARNAFATNAÐUR / SMÁRALIND S: 544 4220 / KRINGLAN S: 568 4344 / SKRÁÐU ÞIG Í NAME IT KLÚBBINN Á WWW.NAMEIT.COM / FACEBOOK.COM/NAMEITICELAND
BOLIR 2 STK
.
STR. 80-152
JOGGINGBUXURSTR. 80-152
PRJÓNAPEY
SUR
STR. 80-152
PRJÓNAKJÓLARSTR. 104-152
PRJÓNAKJÓLARSTR. 80-98
TÚNIKKUR
STR. 80-152
HETTUPEYS
UR
STR. 104-1
52
LEGGINGS 2
STK
STR. 104-1
52
FLAUELSBU
XUR
STR. 104-1
52
fyrir börnin
og
kíkir í
heimsókn
GALLABUXURSTR. 80-152
Tilboð gilda meðan birgðir endast