Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.10.2012, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 03.10.2012, Qupperneq 6
3. október 2012 MIÐVIKUDAGUR6 STJÓRNMÁL Breiður hópur reynslubolta úr stjórnmálum, atvinnulífi og samtökum launafólks fundaði á Hótel Nordica í gær með það að markmiði að reyna að stýra þjóðfélagsumræðunni, og þá ekki síst um- ræðunni um Evrópumál, í skýrari farveg. Fundarmenn hafa ekki í hyggju að stofna formlegan félagsskap og því er nýtt fram- boð ekki inni í myndinni, að svo stöddu. Fundarmenn hafa ólíkan bakgrunn og eiga sér fortíð innan flestra stjórnmálaflokka sem eiga fulltrúa á Alþingi. Benedikt Jóhannesson, framkvæmda- stjóri og einn skipuleggjenda, segir tilurð fundarins vera einfalda. „Það er umræðan í samfélaginu sem er ástæða þess að við setjumst niður. Mönnum finnst stjórnmálin vera í úlfakreppu; menn ræða annars vegar aukaatriði og hins vegar eru þetta persónu- legar hnýtingar. Um leið og einhver vill horfa til framtíðar er eins og slökkt sé á umræðunni og þá get ég ekki undanskilið neinn stjórnmálaflokk í því sambandi.“ Benedikt segir það uggvænlegt, þegar fáeinir dagar eru í fjögurra ára afmæli kreppu á Íslandi, að enn séu í landinu gjaldeyrishöft, lægri laun en víða erlendis, hærri vextir og verðbólga, lakara vel- ferðar kerfi og minna atvinnufrelsi. „Og það er ekki í augsýn að þetta breytist og stjórnmálamenn tala þannig að vegna þess að þessu verði ekki breytt í bráð þá eigi bara að tala um þetta seinna. Þessu vill hópurinn breyta og gera eitthvað í málinu.“ Ekki er um formlegan félagsskap að ræða sem hittist í gær. En kemur fram- boð til greina? „Þar heyri ég að menn hafa ólíkar skoðanir. En þetta er fólk með ólíkan bakgrunn í stjórnmálum þó það sé sam- mála um viss grundvallaratriði. Orð eru til alls fyrst og þetta getur þróast í ýmsar áttir,“ segir Benedikt og bætir við að jarð- vegurinn fyrir stjórnmálaumræðuna sé frjór þessa dagana enda fram undan próf- kjör stjórnmálaflokkanna fyrir komandi alþingiskosningar. svavar@frettabladid.is KJÖRKASSINN GEORGÍA, AP Mikhaíl Saakasvili Georgíuforseti hefur viðurkennt ósigur flokks síns í þingkosn- ingum á mánudag. Bidzina Ivanis- vili, leiðtogi stjórnarandstöðunnar, skorar á Saakasvili að segja af sér. Búast má við aukinni hörku í stjórnmálum Georgíu næstu miss- erin, eftir að Ivanisvili tekur við sem forsætisráðherra, en kjör- tímabil Saakasvili rennur ekki út fyrr en að ári. Saakasvili hefur verið við völd í níu ár. Hann hefur gert ýmsar umbætur í stjórnmálum og efna- hagsmálum, sem hafa laðað erlenda fjárfesta til landsins. Fyrir vikið hefur hagvöxtur tekið stökk á síðustu árum. Ivanisvili, sem er leiðtogi Draums Georgíu, bandalags stjórnar- andstöðuflokkanna, segir að umbætur forsetans séu tómt grín og að hugmyndafræði hans sé reist á lygum. Ivanisvili vill bæta tengslin við Rússa, sem hafa stirðnað veru- lega á valdatíma Saakasvili, sem hefur hallað sér meira að Vestur- löndum en að Rússlandi. Ivanis- vili er milljarðamæringur. Hann hagnaðist á viðskiptum í Rússlandi og hefur til þessa verið lítt þekktur meðal almennings í Georgíu. Hann býr sig nú undir að mynda ríkisstjórn. - gb Georgíuforseti viðurkennir sigur stjórnarandstöðunnar í þingkosningum: Ivanisvili vill afsögn forsetans BIDZINA IVANISVILI Segir umbætur forsetans tómt grín. NORDICPHOTOS/AFP Lagnir og brú yfir Blöndu Á næsta ári verða tvær heitavatns- lagnir lagðar yfir Blöndu til að sinna nyrðri byggðinni á Blönduósi og Skagaströnd. Þetta segir á vefnum Huni.is. Þar segir einnig að lagnirnar verði tengdar nýrri göngubrú sem lögð verður yfir Blöndu. BLÖNDUÓS SAMGÖNGUR Umferðin á höfuð- borgarsvæðinu dróst lítillega saman í september miðað við sama tíma í fyrra, eða um 0,9 pró- sent. Þó hefur umferðin aukist frá áramótum innan svæðisins, eða um 1,1 prósent. Mest jókst hún í júlí, um 7,7 prósent, er fram kemur á vef Vegagerðarinnar. Það gæti bent til þess að höfuðborgar- búar hafi farið minna út á land þetta sumarið, enda dróst um- ferðin um hringveginn saman um 2,5 prósent þann mánuð. - sv Umferð jókst í Reykjavík í júlí: Færri óku bíl í síðasta mánuði Ari K. Jónsson rektor. Andrés Magn- ússon, framkvæmdastjóri SVÞ. Árni Páll Árnason, þingmaður Samfylkingar. Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórn- málafræði. Benedikt Jóhannesson, framkvæmdastjóri Talnakönnunar. Finnur Oddsson, framkvæmda- stjóri Viðskiptaráðs. Friðrik Pálsson, forstjóri Hótel Rangár. Guðmundur Gunnarsson verkalýðsforingi. Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands. Gylfi Sigfússon, forstjóri Eim- skips. Halldór Halldórsson, formaður Samtaka sveitarfélaga. Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnarformaður Orkuveit- unnar. Helgi Magnússon iðnrekandi. Jón Kristjánsson, fyrrverandi ráðherra Framsóknarflokksins. Jón Sigurðsson, fyrrverandi ráðherra Framsóknar- flokksins. Jón Sigurðsson, Össuri. Kristín Pétursdóttir, Auði Capital. Kristrún Heimisdóttir lektor. Magnús Geir Þórðarson, Leikfélagi Reykjavíkur. Orri Hauksson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Rannveig Guð- mundsdóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar. Stefán Jón Haf- stein, Þróunarsamvinnustofnun. Vil- hjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Vilhjálmur Þorsteinsson, stjórnarformaður CCP. Vilmundur Jósepsson, formaður Sam- taka atvinnulífsins. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðis- flokks. Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra. Þórður Magnússon, stjórnarformaður Eyris. Þórunn Svein- bjarnardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar. Þessi voru meðal fundarmanna á Hótel Nordica Vilja innihaldsríkari stjórn- málaumræðu í landinu Þungavigtarfólk úr stjórnmálum, atvinnulífi og samtökum launafólks fundaði í gær. Markmið hópsins er að hafa áhrif á þjóðmálaumræðuna í landinu; ekki síst innan stjórnmálaflokkanna. Útiloka ekki framboð. FUNDAÐ Alls skrifuðu 72 einstaklingar undir ályktun fundarins í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON ■ Agaða hagstjórn sem samræmi stefnuna í ríkisfjármálum og málefnum atvinnuveganna markmiðinu um fjármálastöðugleika og upptöku nothæfs gjaldmiðils. ■ Traustan pólitískan stuðning við efnahagsmark- miðin og aðildarviðræður við Evrópusambandið. ■ Nýja raunhæfa áætlun um aðildarviðræðurnar með hliðsjón af aðstæðum hér heima og í Evrópu. ■ Sú breyting á stjórnarskránni taki gildi sem tryggir að þjóðin geti tekið þessar brýnu ákvarð- anir um stöðu Íslands í Evrópu á næsta kjör- tímabili. Ályktun – Fjögur meginmarkmið BORGARMÁL Orkuveita Reykjavík- ur hyggst selja tæplega helmings hlut í Gagnaveitu Reykjavíkur, en meðal þeirra sem hafa sýnt áhuga á slíkum kaupum eru líf- eyrissjóðirnir. Eigendanefnd Orku veitunnar hefur samþykkt tillögu þess efnis, en stjórn Orkuveitunnar mun taka málið til umfjöllunar síðar í mánuðinum. Frá þessu var skýrt í Morgun- blaðinu í gær. Þar kemur einnig fram að vonast sé til þess að í það minnsta tveir og hálfur milljarður fáist út úr sölunni. Í fjárhagsáætlun Orkuveitunnar er gert ráð fyrir sölu eigna upp á ríflega fimm milljarða króna á næsta ári. - gb Hlutur í Gagnaveitu til sölu: Orkuveitan vill selja helming FRAMKVÆMDIR Á VEGUM GAGNAVEITU Ljósleiðari hefur verið lagður um allt höfuðborgarsvæðið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Tækifæri tengd kísilveri Tvö fyrirtæki hafa hug á að nýta sér gufu frá fyrirhuguðu kísilveri í Helgu- vík. Frá þessu segir á vef Víkurfrétta. Hugmyndirnar eru háðar því að kísil- verið verði að veruleika, en bærinn hefur þegar úthlutað öðru fyrirtækinu lóð á hafnarsvæðinu. REYKJANESBÆR Þekkir þú fólk sem hefur glímt við ófrjósemi? JÁ 78,6% NEI 21,4% SPURNING DAGSINS Í DAG: Ert þú búin(n) að kaupa skjól- flík fyrir veturinn? Segðu skoðun þína á Vísir.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.