Fréttablaðið - 03.10.2012, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 03.10.2012, Blaðsíða 20
FÓLK|FERÐIR ■ Höfuðborg Bretlands hefur verið vinsæll áfangastaður í sumar vegna Ólympíuleikanna. Hér hafa verið teknir saman nokkrir spennandi staðir sem vert er að skoða í London. HVAR Á AÐ BORÐA? Hawksmoor Seven Dials Nýlegur bar og grillstaður sem er í kjallara í Covent Garden. Staðurinn lítur út fyrir að hafa verið þar í margar aldir þrátt fyrir að hafa opnað í lok árs 2010. Steikur staðarins eru syndsamlega góðar og ferð á staðinn góð saga í reynslu- bankann. Hereford Road Bresk matargerð eins og hún gerist best. Matseð- illinn breytist daglega en yfirleitt má sjá þar hefðbundinn breskan innmat eins og kálfsheila og nýru og klassíska breska búðinga. Hix Vinsæll staður í Soho sem er í eigu Mark Hix. Bar staðarins er einstakur og algjörlega þess verður að heimsækja. Staður til að fara á við sérstök tilefni. HVAÐ Á AÐ GERA? Camden Eyðið degi í einu líflegasta hverfi borgarinnar. Ráfið um götumark- aði og drekkið í ykkur andrúms- loftið. Svæðið er fullt af flottum börum, klúbbum og tónlistarstöðum. West End Nánast er skylda að fara í leikhús þegar London er heimsótt. Á West End má sjá söngleiki sem hafa gengið í fjölda ára sem og nýja. Oxford Street er stór versl- unargata í miðborginni. Um það bil 300 verslanir eru við götuna og hún er fjölsóttasta og þéttasta verslunargata í Evrópu. Gatan er aðal- verslunargata borgarinnar. Hún er hluti af stærra verslunarhverfi með Regent Street, Bond Street og fleirum. British Museum Safnið er eitt af mest sóttu söfnum heims enda gefur það ótrúlega fjölbreytta og yfirgripsmikla sýn á heimsmenninguna. ÚT Í HEIM | LONDON SÍVINSÆLL ÁFANGASTAÐUR BUCKINGHAM-HÖLL Ein frægasta höll heims og opinbert heimili Elísabetar drottningar. Hluti hallarinnar er opinn almenningi frá því í júlí og fram í október á hverju ári. Hópur bæjarstarfsmanna frá Garða-bæ var staddur í fræðslu- og kynnisferð í Stuttgart í Þýska- landi um síðustu helgi og notaði frítíma á föstudagskvöldinu til að kíkja á Október- fest sem þar fór fram. Guðfinna Kristjáns- dóttir, upplýsingastjóri Garðabæjar, segir að starfsmennirnir hafi ákveðið fyrir fram að kynna sér þessa hátíð og keypt miða í gegnum Netið. „Hátíðin nefnist Cann statter Volksfest og var ótrúlega skemmtileg. Við vorum 39 starfsmenn í fræðsluferð og vorum búin að vera í stífri dagskrá allan daginn, bæði á fyrirlestrum og í áhugaverðum heimsóknum á leik- og grunnskóla. Við vorum því orðin hálflúin eftir strembinn dag þegar við mættum þarna,“ greinir Guðfinna frá. „Hátíðin fór fram á stóru svæði þar sem um 10 risastór tjöld höfðu verið reist og fullt af tívolítækjum verið komið fyrir. Í tjaldinu þar sem við áttum pöntuð borð voru sex til átta þúsund gestir saman- komnir. Hljómsveit spilaði fjörug þýsk lög með tilheyrandi hávaða og okkur leist eiginlega ekkert á þetta í byrjun. Eftir stutta stund fundum við þó vel fyrir öllu fjörinu, enda allir syngjandi og dansandi. Bekkir voru eftir endilöngu gólfinu áfastir borðum og leikurinn færðist fljótt upp á bekkina þar sem dansað var af mikilli innlifun. Það var því ekki annað hægt en að detta inn í þessa litríku stemningu. Einnig var skemmtilegt að sjá Þjóðverjana klædda í einhvers konar þjóðbúninga, allir með lítra bjórkrús í hönd,“ segir Guðfinna og hlær en þrír lítrar af bjór og hálfur kjúklingur var innifalið í miðaverði. „Maður gat nú ekki drukkið svona mik- inn bjór en þetta var ótrúlega upplifun. Ég hef aldrei farið svona áður en get mælt með því,“ segir Guðfinna sem var ákaflega ánægð með ferðina sem var vel skipulögð af hálfu gestgjafa og margt sem Garðbæ- ingarnir fengu að kynnast og fræðast um. ■ elin@365.is ÓTRÚLEG STEMNING Á OKTÓBERFEST MIKIÐ STUÐ Um síðustu helgi hófst hin fræga Októberfest í Þýskalandi og víðar um heim. Mikið fjör einkennir þessa hátíð og jafnan eru þúsundir manna og kvenna sem skemmta sér saman. UPPLIFUN Guðfinna Kristjáns- dóttir, upplýsingafulltrúi Garðabæjar, skemmti sér vel á Októberfest í Stuttgart. Ekki er of- sögum sagt að það sé mikið fjör á Októberfest, bjórinn teygaður og dansað uppi á bekkjum. Skipholti 29b • S. 551 0770 15%AFSLÁTTUR AF YFIRHÖFNUM Skeifan 3j | Sími 553 8282 | www.heilsudrekinn.is Leiðbeinandi: Qing Kínversk heilsu leikfimi Fyrir 60 ára og eldri kl. 10.15 virka daga Qi Gong 3. mánaða Námskeið fyrir 60 ára og eldri Sétilboð 2 fyrir 1 H e i l s u b æ t a n d i 5 0 0 0 á r a t æ k n i SEINNI HLUTI Í KVÖLD KL. 21.40 WHAT TO DO WHEN SOMEONE DIES FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT | 512 5100 | STOD2.IS BESTU BROTIN ÚR ÞÁTTUM BYLGJUNNAR FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP - oft á dag FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs- ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir jmh@365.is s 512 5473 Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, s 512 5432 Elsa Jensdóttir elsaj@365.is s. 512-5427 Fönkþátturinn Fimmtudagskvöld kl. 22

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.