Fréttablaðið - 03.10.2012, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 03.10.2012, Blaðsíða 30
3. október 2012 MIÐVIKUDAGUR26 26 menning@frettabladid.is Kristof Magnusson segir að sagnagleði íslenskra ætt- ingja og vina hafi meðal annars vakið áhuga sinn á ritstörfum. Nýverið kom nýjasta skáldsaga þessa þýsk-íslenska höfundar út á íslensku en auk þess að sinna ritstörfum er Kristof mikilvirkur þýðandi íslenskra bóka í Þýskalandi. Það var ekki ég er heiti bókar Kristofs Magnussonar sem kom nýverið út. Hún segir frá Jasper, ungum bankamanni, bókmennta- þýðandanum Meike og verðlauna- höfundinum Henry sem lenda í óvæntum ævintýrum. Inn í sög- una fléttast efnahagskreppa sem er merkilegt í ljósi þess að heims- kreppan skall á eftir að ritun bók- arinnar var að mestu lokið. „Skila- dagur handritsins var í janúar 2009 þannig að henni var að mestu lokið í september 2008. Og ég vann alla rannsóknarvinnuna um vorið og sumarið. Ég er ekki svo forspár að ég hafi séð hrunið fyrir en það var skemmtileg tilviljun og hjálp- aði mikið til við kynningu bókar- innar að heil heimskreppa skyldi skella á eftir að ég hafði skrifað um hana. Verst að nú þori ég alls ekki að skrifa um náttúruham- farir, af ótta við að allt rætist sem ég skrifa,“ segir Kristof og hlær. Bókin er önnur skáldsaga Kristofs sem einnig hefur skrifað nokkur leikrit og ferðabók um Ísland. Hann er einnig mikil- virkur þýðandi íslenskra bóka yfir á þýsku en Kristof er hálfís- lenskur. „Faðir minn settist ungur að í Þýskalandi og er orðinn meiri Þjóðverji en Íslendingur í dag. Og auðvitað er ég meiri Þjóðverji en Íslendingur. En ég hef alltaf haldið tengslum við Ísland og haldið íslenskunni við. Ég lagði einnig stund á íslensku í háskólanum í Berlín og hér á Íslandi. Svo reyni ég að vera á Íslandi tvo mánuði á ári að meðaltali.“ Kristof ákvað ungur að verða rithöfundur. „Mér þótti allt- af gaman að segja sögur og á það sameiginlegt með mörgum íslenskum ættingjum og vinum pabba. Svo ég prófaði að skrifa. Í fyrstu var ég alltaf að reyna að vera bókmenntalegur, en það kom bara tilgerðarlega út. En þegar ég hætti að hugsa um stílinn og ein- beitti mér bara að sögunum þá fóru skrifin að ganga.“ Kristof hafði samið nokkur verk þegar útgefandi Einars Kára sonar í Þýskalandi hafði samband við hann og falaðist eftir því að hann þýddi Storm yfir á þýsku. „Honum fannst ég hafa svipaðan tón og Einar og því líklegt að ég næði góðum tökum á því að þýða hann. Það var skemmtilegt fyrir mig því að Einar hafði mjög sterk áhrif á mig þegar ég var unglingur og las Djöflaeyjuþríleikinn.“ Síðan þýðingin á Stormi kom út hefur Kristof þýtt fjöl margar íslenskar bækur yfir á þýsku. „Ég hef ekki getað hætt eftir að Stormur kom út. Þýðingar eru illa borgaðar, ég framfleyti mér með skriftum og upplestrum en ég gæti ekki hætt að þýða og þýðingar eru líka góð leið til að halda tengslum við Ísland.“ Kristof segir gaman en aðeins stressandi að bók eftir hann sé loks komin út á íslensku. „Ég hef verið að telja fólki hér trú um að ég sé höfundur í öll þessi ár, nú loks get ég fært sönnur á það,” segir hann að lokum. Kristof kemur fram á höfundar- kvöldi á Súfistanum annað kvöld klukkan átta ásamt þeim Einari Kárasyni og Auði Jónsdóttur en hann hefur þýtt bækur beggja. sigridur@frettabladid.is Kreppan eins og sniðin fyrir kynningarherferðina Íslenskar bækur voru sem kunnugt er í brennidepli á bókamessunni í Frankfurt í fyrra. Kristof Magnusson er meðal þeirra þýðenda sem kallaðir voru til til að þýða bækur og listi íslenskra bóka sem kom út í þýðingu hans á síðasta ári er ansi flottur. Grettis saga, Íslenskur aðall eftir Þórberg Þórðarson, Tíu ráð eftir Hall- grím Helgason, Ofsi eftir Einar Kárason, Konur eftir Steinar Braga, Vetrarsól eftir Auði Jónsdóttur, Blysfarir eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur auk ljóða eftir Hannes Sigfússon. Kristof segir hógvær að útgáfan hafi verið skipulögð með svo löngum fyrirvara að nægur tími hafi gefist til þýðinganna. „Ég var svo mikið í lestum árið 2010 þegar Það var ekki ég kom út í Þýskalandi, og nýtti tímann vel. Útgáfunni fylgdu upplestrar um land allt og langar lestarsetur. Mér þykir mjög gott að þýða í lestum, það er ekkert Internet sem truflar og auðvelt að sökkva sér í verkið. Ef ég hefði ekki haft allar þessar góðu bækur hefði ég líklega orðið alveg hundleiður á þessum ferðalögum,“ segir Kristof og útskýrir að upplestrar séu ein aðal- tekjulind þýskra höfunda sem séu því meira en til í að fara landshorna á milli til að kynna verk sín. „Það er mikil hefð fyrir þeim, sérstaklega í smærri bæjum er bóksalinn miðpunktur menningarlífsins og vel mætt á upplestra.“ Kristof fylgdi „sínum“ höfundum á upplestra í tengslum við bókamessuna sem hann segir hafa hitt algjörlega í mark í Þýskalandi. „Það eru engar ýkjur að hún tókst afar vel og íslenskar bækur vöktu mikla athygli.“ GÓÐ NÝTING Kynningarferðir Kristofs á skáldsögunni Það var ekki ég nýttust til að þýða íslenskar bækur yfir á þýsku. EINAR KÁRASON VAR ÁHRIFAVALDUR Önnur skáldsaga Kristofs Magnussonar er sú fyrsta sem kemur út eftir hann á íslensku. Hann segir Einar Kárason hafa verið áhrifavald í æsku og því skemmtilegt þegar hann var beðinn um að þýða verk hans yfir á þýsku. Einar Kárason og Auður Jónsdóttir koma fram með Kristof á höfundarkvöldi á Súfistanum annað kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM ÍSLENSKAR BÆKUR BJÖRGUÐU LÖNGUM LESTARFERÐUM Bókaðu þig á wowtravel.is eða í síma 590 3000 Bókaðu þig á wowtravel.is eða í síma 590 3000 wowtravel.is wowtravel.is Verð á mann í tvíbýli, frá: 99.800 kr. Innifalið er flug með sköttum, frítt fyrir golfsettið + 1 taska (20kg), gisting í 5 nætur með hálfu fæði (morgunverði og kvöldverði), ótakmarkað golf. Akstur til og frá flugvelli er ekki innifalinn, ca 15-20 mín akstur. Innifalið er flug með sköttum og gisting á Hótel Maya 4 stjörnu, með hálfu fæði. Dagsetningar í boði 4.-9. okt., 11.-16. okt., 18.-23. okt. og 25.-30. okt. BONALBA Golf and Spa Resort 11. – 16. október Alicante sólar- paradís í 5 nætur Verð á mann m.v 2 fullorðna og 2 börn, frá: 59.990 kr. MARTIN FRÖST EINLEIKARI Einleikari á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands annað kvöld verður Martin Fröst, einn fremsti klarínettuleikari heims. Tónleikarnir hefjast venju samkvæmt klukkan 19.30. Mér þótti alltaf gaman að segja sögur og átti það sameiginlegt með ís- lenskum ættingjum og vinum pabba.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.