Fréttablaðið - 07.11.2012, Qupperneq 29
5MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2012
ORKUMÁL
Þórður Snær Júlíusson | thordur@frettabladid.is
Richard Chandler Corporation
(RCC) keypti í sumar 33 prósenta
hlut í móðurfélagi íslenska orku-
fyrirtækisins Orka Energy Hold-
ing ehf. Samkvæmt tilkynningu
til fyrirtækjaskráar greiddi RCC
tólf milljónir dala, um 1,5 millj-
arð króna fyrir hlutinn. RCC, sem
er staðsett í Singapore, var stofn-
að af Richard F. Chandler, nýsjá-
lenskum fjárfesti. Samkvæmt
l i s t a Forb e s
var Chandler,
sem er 53 ára
og ókvæntur,
fjórði ríkasti
maður Singa-
pore í lok síð-
asta árs og 230.
ríkasti maður
í heimi. Tíma-
ritið sagði auð
hans nema um 4,6 milljörðum
dala, um 586 milljörðum króna.
Orka Energy var stofnað
snemma á síðasta ári. Eigandi
þess Orka Energy Pte. Ltd., félags
með skráð heimilisfesti í Singa-
pore. Það er í eigu Hauks Harðar-
sonar, sem er kjölfestufjárfestir
í félaginu, og starfsmanna þess.
Í ágúst 2011 keypti Orka Energy
félagið Enex-Kína af fyrr verandi
eigendum þess, Orkuveitu Reykja-
víkur (OR) og Geysi Green Energy.
Kaupverðið var um 1,6 milljarð-
ar króna fyrir allt hlutaféð miðað
við það verð sem OR fékk fyrir
sinn tæplega fimmtungshlut. Það
keypti einnig aðrar eignir sem
höfðu verið inni í útrásararmi OR,
REI. Um er að ræða Iceland Am-
erica Energy og fjórðungshlut í
Envent Holding ehf., sem á jarð-
hitafyrirtæki á Filippseyjum.
Enex-Kína, sem nú heitir Orka
Energy China ehf., á 49 prósenta
hlut í kínversku félagi sem heitir
Shaanxi Green Energy Geo-
thermal Development (SGE).
Það vinnur að þróun, og til fram-
tíðar rekstri, jarðvarma orkuvera
í Kína. Hitt 51 prósentið í fé-
laginu er í eigu kínverska orku-
fyrirtækisins Sinopec, sem er
fimmta stærsta fyrirtæki í heimi.
Það er að öllu leyti í eigu kín-
verska ríkisins. Hjá SGE starfa
um 260 manns og fyrirtækið hitar
sem stendur upp um sex milljón
fermetra af íbúðar- og atvinnu-
húsnæði. Það stefnir að því að
auka þá hitaframleiðslu í 100
milljón fermetra fyrir árið 2020
auk þess sem það hyggur á stór-
tæka rafmagnsframleiðslu.
Þann 20. apríl heimsótti fjöl-
menn sendinefnd Kínverja Ísland
heim í tengslum við komu Wen
Jiabao, forsætisráðherra lands-
ins. Á meðal þeirra sem hingað
komu var stjórnar formaður
Sinopec, Fui Chengyu. Hann og
Haukur Harðarson, stjórnarfor-
maður Orku Energy, skrifuðu
við það tilefni undir samkomu-
lag sem breikkaði samstarfs-
grundvöll fyrir tækjanna tveggja
umtalsvert.
Í júní keypti RCC síðan 33 pró-
sent í móðurfélagi Orku Energy.
Samkvæmt tilkynningu til fyrir-
tækjaskráar var kaupverðið um
tólf milljónir dala, 1,5 milljarðar
króna. Í fréttatilkynningu sem
RCC sendi frá sér vegna þessa
var haft eftir Richard F. Chand-
ler, stjórnarformanni RCC, að
félögin tvö hefðu sömu sýn á að
virkja jarðvarmaorku. Gunnar
Thoroddsen, framkvæmdastjóri
Orku Energy, vildi ekki tjá sig um
starfsemi fyrirtækisins umfram
það sem fram kom í tilkynningu
RCC í júní síðastliðnum.
VIÐ KOMUM ÞVÍ TIL SKILA
Dreifikerfi Póstsins er það víðtækasta
á landinu. Fimm daga vikunnar fá 99%
heimila og fyrirtækja afhentar sendingar
sem Pósturinn dreifir. Stór bílafloti og hópur
reyndra starfsmanna gerir þér kleift að velja
lausnir sem henta þörfum þíns fyrirtækis.
Við getum sent nánast hvað sem er, bæði
stórt og lítið – hratt eða á hagkvæman hátt.
Vörudreifing Vöruhýsing
Sendla-
þjónusta
Fyrirtækja-
þjónusta
Auglýsinga-
póstur
Viðskipta-
pakkar til
útlanda
www.postur.is
VÍÐTÆKASTA
DREIFIKERFIÐ
GEFUR VÍÐTÆKAR
LAUSNIR
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
Íslands, hefur komið umtalsvert við
sögu í samskiptum Orku Energy
við kínverska fyrirtækið Sinopec.
Samkvæmt heimasíðu forsetaemb-
ættisins átti hann fund með Hauki
Harðarsyni, stjórnarformanni Orku
Energy, í Singapore hinn 24. febrúar
síðastliðinn. Þar ræddu þeir um
„eflingu jarðhitanýtingar í Kína, á
Filippseyjum og víðar“.
Þann 20. apríl birtist síðan önnur
frétt á heimasíðu embættisins um
jarðhitasamvinnu við Kína. Þar segir
að forsetinn hafi fundað með Fu
Chengyu, stjórnarformanni Sinopec,
vegna þess að „Orka Energy og
Sinopec hafa samið um gríðarlegar
hitaveituframkvæmdir í Kína, sem
m.a. felur í sér stærstu hitaveitur
heims […] Stjórnarformaður Sinopec
lýsti því yfir að fyrirtækið, sem er
eitt af stærstu fyrirtækjum heims,
hefði ákveðið að gera samvinnu við
Ísland, Orku Energy og vísinda- og
tæknisamfélagið á Íslandi, að for-
gangsmáli í orkustefnu fyrirtækisins
á komandi árum og áratugum“.
Orka Energy var eitt af níu
félögum sem studdi framboð Ólafs
Ragnars til forseta síðastliðið sumar.
Félagið greiddi samtals 200 þúsund
krónur í kosningasjóð hans. Lög-
fræðistofa Gunnars Thoroddsen ehf.,
sem er í eigu Gunnars Thoroddsen,
framkvæmdastjóra Orku Energy,
studdi einnig Ólaf með 200 þúsund
króna framlagi. Alls námu framlög
lögaðila 1.390 þúsundum króna.
FORSETINN STYÐUR ORKA ENERGY OG ORKA ENERGY STYÐUR FORSETANN
Auðjöfur kaupir hlut í Orku Energy
Richard Chandler Corp. keypti þriðjung í Orku Energy í sumar. Eigandi þess er í 230. sæti yfir ríkustu menn í
heimi með auðævi upp á tæpa 600 milljarða króna. Orka Energy keypti fyrrum eignir REI á síðasta ári af OR.
SKRIFAÐ UNDIR Fui Chengyu, stjórnarformaður Sinopec, og Haukur Harðarson,
stjórnarformaður Orku Energy, skrifa undir samstarfssamning í Þjóðmenningarhúsinu í apríl
síðastliðnum. Forsætisráðherrarnir Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir fylgjast með.
RICHARD F.
CHANDLER