Fréttablaðið - 17.11.2012, Blaðsíða 2
17. nóvember 2012 LAUGARDAGUR
SKOÐUN 16➜22
FRÉTTIR 2➜12
HELGIN 24➜50
MENNING 62➜88
SPORT 80
ÁBYRGÐ EÐA ÓRÁÐ 18
Steingrímur J. Sigfússon um skatta og áhyggjur SA.
SIGHVATUR OG SJÁLFHVERFA KYNSLÓÐIN 22
Karl Sigfússon um greinar Sighvats Björgvinssonar.
EFTIR HÖFÐINU DANSA SÍBROTAMENNIRNIR 22
Ragnar H. Hall um Svavar Halldórsson, hæstaréttardóm og RÚV.
LÍFRÓÐUR ÖLL ÞESSI ÁR 40
Auðbjörg Reynisdóttir segir sögu drengsins síns.
„NÚ MEGA JÓLIN KOMA“ 42
Íslenski jólabjórinn smakkaður.
SCORSESE SJÖTUGUR 46
Góðir gæjar og naut í fl agi.
SUNGIÐ Á ÍSLENSKU 44
„Við hljótum öll að vilja
átta okkur á hvað þessar
breytingar hafa í för með
sér áður en við keyrum
þær í gegn.“ 6
Kristrún Heimisdóttir, lektor við
Háskólann á Akureyri.
MINNSTA SÖGUSAFN
ÍSLANDS 8
ÍSRAELAR BÚNIR UNDIR
LANGVARANDI HERNAÐ 12
EKKI FÆRRI HJÓNAVÍGSLUR
SÍÐAN 1995 10
HEFUR TRÚ
Á GYLFA 80
Heimir Guð-
jónson fer
yfi r stöðu ís-
lenska lands-
liðsmannsins
hjá Totten-
ham.
TITILL Á TÍMAMÓTUM 80
Sebastian Vettel getur tryggt sér heims-
meistaratitilinn í 100. kappakstrinum sínum.
KANN VEL VIÐ
SIG BAK VIÐ
TJÖLDIN 86
HÖNNUN 75
Leitað til fortíðar.
KROSSGÁTA 50 KRAKKAR 48
KONURNAR RÁÐA RÍKJUM 34
Aðstöðumunur íslenskra og norskra lands-
liðskvenna í handknattleik.
HLÝNUN OG FJÖLGUN AUKA
HÆTTUNA 36
Margar af stærstu borgum heims eru hafn-
arborgir sem standa berskjaldaðar gagnvart
fl óðum og fárviðrum.
LÖGREGLUMÁL Lögregla á Íslandi telur fullvíst að hálft kíló af
kókaíni og 41 þúsund e-töflur sem lagt hefur verið hald á í Kaup-
mannahöfn hafi verið á leið til Íslands. Íslendingur og Pólverji,
báðir búsettir hérlendis, sitja í gæsluvarðhaldi ytra vegna máls-
ins.
Sá pólski, sem er á fertugsaldri, er talinn höfuðpaurinn í mál-
inu. Hann hefur áður komið við sögu lögreglu hérlendis vegna
fíkniefna, eins og Íslendingurinn sem situr í varðhaldi með
honum. Sá síðarnefndi er undir þrítugu.
Annar Íslendingur hefur verið handtekinn vegna málsins á
Íslandi. Hann var leiddur í Héraðsdóm Reykjaness klukkan tvö í
gær þar sem hann var úrskurðaður í einnar viku varðhald. Sá á
sér ekki afbrotasögu.
Í Kaupmannahöfn var einnig lagt hald á jafnvirði 3,3 milljóna
íslenskra króna og í fjórum húsleitum hér heima fann lögregla
stera, vopn og fleira.
Hópur Íslendinga situr þegar inni í Kaupmannahöfn vegna
umfangsmikils fíkniefnasmygls um alla Evrópu en málin tvö
munu ekki tengjast, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. - sh
Tveir teknir með 41.000 e-töflur og hálft kíló af kókaíni í Kaupmannahöfn:
Efnin ætluð á markað á Íslandi
MIKIÐ Gríðarmiklu magni af e-töflum var hagan-
lega pakkað í þessa tösku. MYND/DANSKA LÖGREGLAN
Séra Sigurður Helgi
Guðmundsson sætir ásök-
unum um að hafa misnotað
aðstöðu sína þegar hann var
framkvæmdastjóri hjúkrunar-
heimilisins Eirar. Hann neitar
öllu en ríkisendurskoðandi vill að hann skili
heimilinu 200 þúsund krónum sem hann eyddi
í utanlandsferð fyrir fj ölskyldu sína.
Erna Indriðadóttir er senni-
lega á leið á Alþingi eft ir að
hafa hafnað í öðru sæti í próf-
kjöri Samfylkingarinnar fyrir
norðan. Hún var áður frétta-
kona og upplýsingafulltrúi
Alcoa fj arðaáls.
Sighvatur Björgvinsson,
fyrrverandi ráðherra, móðgaði
stóran hluta þjóðarinnar þegar
hann kallaði alla á aldrinum
30 til 45 ára– plús/mínus tvö
ár– sjálfh verfu kynslóðina.
Sighvatur lét gagnrýni ekki stoppa sig heldur
skrifaði aðra grein.
Ragnheiður Skúladóttir
hefur verið ráðin leikhússtjóri
leikfélags Akureyrar til næstu
tveggja ára. Hún var áður
listrænn stjórnandi leikhússins
og stjórnin var einhuga um að
ráða Ragnheiði án auglýsingar, þótt lög þess
kveði á um annað.
FIMM Í FRÉTTUM KYNSLÓÐASTRÍÐ OG BRASK Á ELLIHEIMILI
AÐEINS Í DAG!
BRAUN 330 RAKVÉL
VERÐ ÁÐUR 18.900,- NÚ 12.900
Vél á mynd er Braun 790
kíktu inn á www.pfaff.is
Pfaff // Grensásvegi 13 // Sími 414 0400
ÞÚ SPARAR 6.000 KR.
DÓMSMÁL „Lögreglan trúði því
raunverulega að hann ætlaði að
sprengja upp Alþingishúsið.“ Svo
mælti lögmaðurinn Guðmundur St.
Ragnarsson þegar hann flutti mál
skjólstæðings síns fyrir Héraðs-
dómi Reykjaness í gær.
Skjólstæðingurinn, 29 ára Kefl-
víkingur, sætir ákæru fyrir brot
gegn valdstjórninni og vopnalaga-
brot. Málið hófst þegar sjö vopn-
aðir sérsveitarmenn brutu sér leið
inn á heimili hans að kvöldi 26.
febrúar síðastliðins.
Lögreglan hafði þá fengið
ábendingu um undarlegt hátta-
lag mannsins á samskiptavefnum
Facebook. Þar mátti finna myndir
af honum að handleika skotvopn
og myndir af sprengju og sprengi-
efni. Þá hafði maðurinn myndað
það þegar hann sprengdi fiskikar
í loft upp.
Maðurinn hafði tekið geðlyf
fyrr um kvöldið og sofnað í sóf-
anum heima hjá sér. Hann vakn-
aði svo við mikinn skarkala. „Ég
vissi ekki einu sinni hvort þetta
var draumur eða raunveruleiki,“
sagði maðurinn fyrir dómi í gær.
Hann greip til hnífs sem lá á
sófaborðinu og ef marka má fram-
burð lögreglumanna þá sveifl-
aði hann hnífnum í átt til þeirra.
Verjandi hans bar að það hefðu
verið ósjálfráð viðbrögð nývakn-
aðs manns.
„Og svo er hann ákærður fyrir
brot gegn valdstjórninni. Ef eitt-
hvað er ætti að ákæra valdstjórn-
ina fyrir brot gegn honum,“ sagði
verjandinn Guðmundur, og vís-
aði til aðgangshörku lögreglunn-
ar í aðgerðinni. Guðmundur telur
jafnframt að rannsóknin í kjölfar-
ið hafi farið úr böndunum.
Heima hjá manninum fannst
rörasprengja sem sérsveitarmenn
prófuðu að sprengja og tókst að
eyðileggja með henni gamalt sjón-
varp. „Rörasprengja er í grund-
vallaratriðum eins og hand-
sprengja,“ sagði sérsveitarmaður
sem kom fyrir dóminn og vísaði til
pilts sem lést þegar hluti úr slíkri
sprengju gekk inn í höfuð hans..
„En hún gæti ekki sprengt
Alþingishúsið?“ spurði þá Guð-
mundur. Svarið var nei.
Guðmundur sagði lögregluna
hafa farið offari við skýrslutökur.
Rætt hafi verið við 24 vitni, meðal
annars fólk sem þekkti sakborn-
inginn lítið sem ekkert. „Ég er
bara hissa á að það hafi ekki verið
tekin skýrsla af allri Keflavík.“
Maðurinn sat í gæsluvarðhaldi
vegna málsins í tvo mánuði. „Hann
er meðhöndlaður nánast eins og
hann sé Anders Breivik frá Nor-
egi,“ sagði Guðmundur.
Hann sagði rannsókn lögreglu
mikið til byggjast á ofbeldisfull-
um skáldskap sem skjólstæðingur
hans hafi skrifað á netið. „Stephen
King og fleiri, þeir eru ekkert
handteknir fyrir sínar fantasíur,“
bætti hann við.
Saksóknari fór fram á átta mán-
aða fangelsisdóm yfir manninum,
mögulega skilorðsbundinn að ein-
hverju leyti.
stigur@frettabladid.is
Meðhöndlaður eins
og íslenskur Breivik
Farið fram á átta mánaða fangelsi – jafnvel skilorðsbundið – yfir sprengjusmið
sem sat í varðhaldi í tvo mánuði. Lögmaður hans gagnrýnir lögreglu fyrir offors.
SPRENGJUSMIÐURINN Sakborningurinn hefur glímt við mikla andlega erfiðleika.
Tíu læknisvottorð eru á meðal málsskjala. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Heima hjá manninum fannst
meðal annars:
■ 22 kalíbera skammbyssa
■ Þrír hnífar
■ Tveir gaskútar
■ Blýkúlur
■ Skoteldapúður
■ Rörasprengja, tilbúin til notk-
unar
Lítið vopnabúr
➜ Rúnar Már Sigurjónsson stimplaði sig rækilega inn í íslenska landsliðið í fótbolta þegar hann skor-
aði glæsimark í sínum fyrsta leik með liðinu gegn Andorra. Hann er samningsbundinn Val, sem mun þó
líklega missa hann í atvinnumennsku í vetur.