Fréttablaðið - 17.11.2012, Blaðsíða 112
17. nóvember 2012 LAUGARDAGUR| SPORT | 80
standa sig vel og þá kemur hitt í
kjölfarið,“ segir Heimir.
Má ekki hlusta á gagnrýnisraddirnar
Heimir segir að Villas-Boas þurfi
að sýna meiri kjark og að skiptingar
hans séu oft alltof varnarsinnaðar. Það
hjálpar ekki Gylfa enda er hann bestur
að skapa færi og mörk fremst á vell-
inum og því oft fórnað þegar Vil-
las-Boas ákveður að pakka í vörn.
Gylfi hefur mátt þola gagnrýni
að undanförnu og sumir hafa
sett hann á lista yfir verstu
kaup tímabilsins.
„Í Englandi þar sem er allt-
af stanslaust fjölmiðlaáreiti
þurfa menn að vera sterk-
ir. Mótið er rétt nýbyrjað
og menn þurfa að harka
svona af sér. Ef menn geta
það ekki þá þurfa þeir að fara að leita
sér að nýrri vinnu. Gylfi er frábær fót-
boltamaður og hann á eftir að standa
sig vel þarna. Það er engin spurning,“
sagði Heimir að lokum.
Gylfi verður væntanlega á bekkn-
um í dag þegar Tottenham heimsæk-
ir Arsenal í hádegisleik ensku úrvals-
deildarinnar en þetta verða
fyrstu kynni hans af Norð-
ur-Lundúna slagnum. Nú
er bara vona að Heimir
hafi rétt fyrir sér og
okkar maður fái tæki-
færið sem fyrst.
ooj@frettabladid.is
FÓTBOLTI Gylfi Þór Sigurðsson og
félagar hans spila í dag einn stærsta
leik tímabilsins þegar þeir heimsækja
erkifjendurna í Arsenal á Emirates-
völlinn. Gylfi var eitt heitasta nafnið
í ensku úrvalsdeildinni eftir fyrstu
mánuði sína hjá Swansea en nú glím-
ir hann við mótlæti eftir fyrstu þrjá
mánuði sína hjá Tottenham.
Tölfræðin er vissulega sláandi
þegar þrír fyrstu mánuðirnir með
Swansea eru bornir saman við þrjá
fyrstu mánuðina hjá Tottenham. Gylfi
kom til Swansea í janúar og var þrem-
ur mánuðum síðar búinn að koma að
11 mörkum í 14 leikjum. Gylfi hefur
nú spilað 457 mínútur með Tottenham
í ensku úrvalsdeildinni og hefur ekki
enn skorað mark eða gefið stoðsend-
ingu. Það sem vekur kannski enn meiri
áhyggjur er þó sú staðreynd að Gylfi
fékk ekki eina einustu mínútu í síðustu
leikjum Tottenham-liðsins.
Snýst bara um þolinmæði
Fréttablaðið fékk Heimi Guðjónsson,
þjálfara Íslandsmeistara FH, til að
meta stöðuna sem er komin upp hjá
Gylfa sem hefur ekki verið í náðinni
hjá stjóranum André Villas-Boas.
„Ég held að þetta snúist bara um þol-
inmæði og að grípa tækifærið þegar
það gefst. Hann er ekki búinn að koma
við sögu í síðustu tveimur leikjum en
ég held að það sé engin ástæða til að
fara á taugum yfir því. Þetta er langt
tímabil og það er stutt á milli í fótbolta.
Þetta snýst því um að vera þolinmóð-
ur og bíða eftir tækifærinu og þegar
það kemur að nýta það. Gylfi á eftir
að standa sig vel þarna enda frábær
fótboltamaður,“ segir Heimir Guðjóns-
son. Villas-Boas hefur veðjað frekar á
það að nota Bandaríkjamanninn Clint
Dempsey fremstan á miðjunni.
Skilur ekki í Villas-Boas
„Mér finnst Clint Dempsey ekki hafa
verið öflugur þannig að Gylfi hlýtur
að fá tækifærið. Ég sá leikinn á móti
Manchester City um síðustu helgi og
Dempsey var ekki góður þar. Gylfi
þarf að vera duglegur á æfingasvæð-
inu og sýna þjálfaranum að hann eigi
að fá að spila. Ég held að Gylfi fái tæki-
færi aftur,“ segir Heimir og hann skil-
ur ekki í því að Gylfi fái oft ekki að
taka aukaspyrnur Tottenham-liðsins.
„Ég sá um daginn þá fékk Gylfi ekki
einu sinni að taka aukaspyrnu í leikn-
um og ég held að Villas-Boas þurfi að
fara að endurskoða það. Það eru fáir
betri en Gylfi í þeirri stöðu að skora úr
aukaspyrnum fyrir utan teig. Þarna á
bara þjálfarinn að grípa inn í og segja
að það sé bara einn maður sem tekur
þessar aukaspyrnur og það þarf ekk-
ert að flækja það,“ segir Heimir en
hvað þarf að gerast til að Gylfi finni
sig á ný. Þarf hann ekki á marki eða
stoðsendingu að halda?
„Hann þarf að byrja á því að standa
sig vel þegar hann fær tækifærið og
þá dettur hitt fyrir hann hvort sem það
er að leggja upp mark eða skora. Það
þýðir ekki að hugsa fyrst um það held-
ur þarf hann að einbeita sér að því að
HANDBOLTI Stefán Rafn
Sigurmannsson var valinn
besti leikmaður fyrstu sjö um-
ferða N1-deildar karla og Aron
Kristjánsson besti þjálfarinn. Báðir
koma úr Haukum sem vann sex af sjö leikjum sínum
í haust og er með dágóða forystu á toppi deildarinnar.
Annar Haukamaður, Jón Þorbjörn Jóhannsson, var
valinn besti varnarmaðurinn.
ÍR fékk verðlaun fyrir bestu um-
gjörðina og besta dómaraparið skipa
Gísli Hlynur Jóhannsson og Hafsteinn
Ingibergsson. Sjö leikmenn úr sex
félögum skipa svo úrvalsliðið sem má sjá á Vísi.
Haukar sópuðu til
sín verðlaunum
FÓTBOLTI Hallbera Guðný Gísladóttir
skrifaði í gær undir nýjan samning
við sænska úrvalsdeildarliðið Piteå
en hún kom fyrst til liðsins fyrir
síðasta tímabil. Piteå endaði í átt-
unda sæti deildarinnar og var Hall-
bera fastamaður í liðinu.
„Hallbera er örvfættur bakvörður
með alþjóðlega reynslu. Slíkir leik-
menn vaxa ekki á trjánum,“ sagði
Leif Strandh, yfirmaður íþróttamála
hjá félaginu. Hallbera á að baki 33
leiki með A-landsliði Íslands og
hefur hún skorað eitt mark í þeim.
Hallbera áfram hjá
Piteå í Svíþjóð
FÓTBOLTI Hlynur Atli Magnússon,
22ja ára varnarmaður úr Fram, er
á leið frá félaginu. Stjórn knatt-
spyrnudeildar Fram tilkynnti í gær
að leikmaðurinn hefði verið settur á
sölulista eftir að hann óskaði þess að
komast annað.
Sjálfur sendi Hlynur Atli frá sér
yfirlýsingu stuttu síðar þar sem hann
segist ekki eiga samleið með þjálfar-
anum Þorvaldi Örlygssyni. Því sjái
hann ekki annan kost í stöðunni en
að færa sig um set. Hlynur er samn-
ingsbundinn Fram til næsta árs.
Hlynur Atli settur á
sölulista hjá Fram
FÓTBOLTI Björn Einarsson, formaður
knattspyrnudeildar Víkings, sagði við
Fréttablaðið að mikill áhugi væri hjá
félaginu að fá markvörðinn Ingvar
Þór Kale aftur til félagsins. Ingvar
leikur með Breiðabliki en var í haust
gefið leyfi til að finna annað félag.
Björn sagði --að samningar væru
ekki í höfn og að enn ætti eftir að
ganga frá síðustu smáatriðunum.
Hann staðfesti um leið að Björgólfur
Takefusa, framherji Víkings, væri
ekki á leið til Breiðabliks, eins og
mögulega hafi komið til greina.
Ingvar Þór á leið
aft ur í Víkina
Aðalfundur
Golfklúbbs Ness – Nesklúbbsins 2012
Aðalfundur Golfklúbbs Ness - Nesklúbbsins verður haldinn í
golfskála félagsins laugardaginn 24. nóvember kl. 15.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál
Gylfi á eft ir að standa sig vel
Heimir Guðjónsson, þjálfari Íslandsmeistara FH, hefur ekki áhyggjur af stöðu Gylfa Þórs Sigurðssonar hjá Tottenham. Gylfi hefur
ekkert komið við sögu í síðustu tveimur leikjum liðsins og hefur ekki átt beinan þátt í marki í ensku úrvalsdeildinni á fyrstu þremur
mánuðum hans hjá Tottenham. Tottenham mætir Arsenal á Emirates-leikvanginum í dag.
FORMÚLA 1 Sebastian Vettel, ökuþór Red Bull-liðsins
í Formúlu 1, ók hraðast um nýju kappakstursbraut-
ina í Texas í Bandaríkjunum þegar föstudagsæfing-
ar fóru fram þar í gær. Bandaríski kappaksturinn
fer fram í fyrsta sinn síðan 2007 á sunnudaginn.
Vettel þreytti frumraun sína í Formúlu 1 í Banda-
ríkjunum fyrir fimm árum og ekur nú í sínum
hundraðasta kappakstri um helgina.
Þjóðverjinn hefur á þessum fimm árum orðið
heimsmeistari tvisvar sinnum og getur um helgina
tryggt sér heimsmeistaratitilinn. Þeir Fernando
Alonso, ökuþór Ferrari, eru tveir eftir um titilinn
þegar tvö mót eru eftir af tímabilinu.
Bandaríska brautin í Texas þykir mjög tækni-
lega krefjandi og hröð, með gríðarlega flóknum og
þröngum hægum beygjum. Sagt er að hún sam-
eini það besta úr hinum goðsagnakenndu evrópsku
brautum og einkenni bandarískra götubrauta. - bþh
Vettel keppir í hundraðasta sinn
Formúla 1 snýr aft ur til Bandaríkjanna um helgina eft ir fi mm ára fj arveru.
FLJÓTASTUR Sebastian Vettel getur orðið heimsmeistari í
Formúlu 1 á sunnudaginn verði hann á undan Alonso í mark.
NORDICPHOTOS/AFP
➜ Leikir
helgarinnar
LAUGARDAGUR
12.45
Arsenal - Tottenham
Sport 2 & HD
15.00
Liverpool - Wigan
Sport 2 & HD
Newcastle - Swansea
Sport 5
Reading - Everton
Sport 6
Man. City - Aston Villa
Sport 3
WBA - Chelsea
Sport 4
17.30
Norwich - Man. Utd.
Sport 2 & HD
SUNNUDAGUR
16.00
Fulham - Sunder-
land Sport 2 & HD
FYRSTU ÞRÍR MÁNUÐURNIR HJÁ GYLFA
(Tölur úr ensku úrvalsdeildinni)
Með Swansea (Jan-Apríl 2012) Með Tottenham (Ágúst-Nóvember 2012)
14 (af 14) Leikir 10 (af 11)
13 Leikir í byrjunarliði 5
1 Varamaður 5
4 Skipt útaf 5
0 Leikir á bekknum 1
1137 Mínútur spilaðar 457
90% Hlutfall mínútna í boði 46%
7 Mörk skoruð 0
4 Mörk lögð upp 0
11 Þáttur í mörkum 0
60%
50%
40%
30%
20%
10%
0%
Ágúst
(2 leikir)
September
(6 leikir)
Október
(6 leikir)
Nóvember
(3 leikir)
25%
68/270
mín.
55%
299/540
mín.
55%
298/540
mín.47%
85/180
mín.
Gylfi Þór Sigurðsson
hefur komið við sögu í
15 af 17 leikjum Totten-
ham í öllum keppnum á
tímabilinu þar af hefur
hann verið í byrjunarlið-
inu í átta leikjum. Gylfi
hefur náð að spila allar
90 mínúturnar í þremur
leikjum þar af hafa tveir
þeirra verið í deildar-
bikarnum. Hér fyrir
neðan má sjá hversu
mikið André Villas-Boas
hefur notað Gylfi á
fyrstu fjórum mánuðum
leiktíðarinnar.
GYLFI OG SPILATÍMINN HJÁ TOTTENHAM
SPORT