Fréttablaðið - 17.11.2012, Blaðsíða 86
17. nóvember 2012 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 54TÍMAMÓT
Stórstjörnurnar Diddú, Egill Ólafs-
son, Lay Low, Valdimar, Ragnheið-
ur Gröndal, Greta Salóme og Maríus
Sverrisson koma fram á styrktartón-
leikum í Guðríðarkirkju í dag klukkan
16, ásamt Ljósakórnum og kirkjukór
Lágafellssóknar, sem stendur fyrir
tónleikunum. Ágóðanum verður varið
í kaup á rampi fyrir hjólastól og upp-
setningu hans heima hjá Steinunni
Ingibjörgu Jakobsdóttur, íbúa í Mos-
fellsbæ, til að hún komist út á pallinn
sinn á góðviðrisdögum. Trygginga-
stofnun greiddi rampinn við útidyrn-
ar en að komast út á veröndina virð-
ist ekki teljast sjálfsögð mannréttindi.
Steinunn kveðst hafa lent í því
í sumar að detta þegar hún var að
staulast yfir þröskuldinn utan af palli.
„Strákurinn minn var hér heima sem
betur fer,“ segir hún og útskýrir að
þegar hún detti lendi hún alltaf á löm-
uðu hliðinni því hún sé þyngri. „Ég er
komin með beinþynningu og fór úr
axlarlið við þessa byltu. Er með skert
snertiskyn en ýkt sársaukaskyn og af
því ég er með spastíska lömun þurfti
að setja mig í snögga svæfingu til að
koma liðnum í samt lag. Það kostaði
það að ég var kastandi upp næstu nótt
út af lyfjunum. Eftir þetta þorði ég
ekki út á pall ef ég var ein heima þó
glampandi sól væri úti.“
Steinunn fékk slæmt heilablóðfall
árið 2004, þá 27 ára einstæð móðir
með tvö börn, sjö og tíu ára. „Ég vann
mikið á þessum tíma, auk þess að
vera í móður- og húsmóðurhlutverk-
inu. Starfaði í móttökunni hjá Hunda-
ræktarfélagi Íslands og við ræsting-
ar, einnig vann ég við bókhald fyrir
verkfræðistofu heima á kvöldin. Svo
ræktaði ég hunda líka, var með fimm
hunda á heimilinu sem þurfti að viðra
bæði kvölds og morguns. Álagið var
því mikið. Mér var haldið sofandi í
hálfan mánuð eftir áfallið og var á
Grensásdeild í eitt og hálft ár. Færnin
hefur farið fram úr björtustu vonum
og ég hef miða með nafninu mínu á
svefnherbergishurðinni til að minna
mig á framfarirnar frá því ég var
á Grensás og rataði ekki í herberg-
ið mitt. Ég er búin að vera á fótum í
nokkur ár en fékk bakslag sem ég vil
líta á sem tímabundið. Ég hef alltaf
reynt að vera jákvæð og bjartsýn og
hef aldrei tapað trúnni á að fá mátt
í vinstri höndina. Ég hef sofið með
spelku á henni í átta ár til að vöðv-
arnir styttist ekki í fingrunum.“
Steinunn kveðst lifa ríku lífi og
fá ómetanlegan stuðning frá öllum í
kringum sig. Börnin hennar, Jakob
Axel 18 ára og Steinunn Halldóra á
15. ári, veiti henni mikinn og góðan
félagsskap þó þau búi mest hjá pabba
sínum sem flutti í næsta hús til að
þau gætu hlaupið á milli. Þau eigi sín
herbergi á báðum heimilum. „Börn-
in hafa alltaf verið mér hvatning í að
halda áfram að berjast,“ segir hún.
„Það er nóg að fá bros frá þeim, þá
breytist líðan mín til batnaðar.“
gun@frettabladid.is
Kemst ekki út á pallinn
ef ég er ein heima
Ágóði styrktartónleika sem haldnir eru í dag klukkan 16 í Guðríðarkirkju í Grafar-
vogi rennur til Steinunnar Ingibjargar Jakobsdóttur sem einkum vantar ramp fyrir
DÝRAVINUR Steinunn á hund, tvær kisur og páfagauk sem veita henni mikla gleði. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Ástkær eiginkona mín, móðir og
tengdamóðir,
LAUFEY KRISTJÁNSDÓTTIR
Flétturima 4, Reykjavík,
lést á Landspítalanum 10. nóvember.
Jarðsungið verður frá Dómkirkjunni í
Reykjavík mánudaginn 19. nóvember
klukkan 13.00. Blessuð sé minning hennar.
Sigurður Guðmundsson
Hafdís Engilbertsdóttir Baldvin Steindórsson
Kristján Eggert Engilbertsson
Sif Jónsdóttir Jón Arnar Sigurjónsson
Eva Mjöll Ingólfsdóttir Kristinn S. Helgason
Andri Már Ingólfsson Valgerður Franklínsdóttir
Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar,
WG. CDR. ALFRED GEORGE
WILMOT
chartered electrical engineer RAF,
áður til heimilis í Smáraflöt og
Efstalundi í Garðabæ,
fæddur í Wales 10. júlí 1922,
andaðist 3. nóvember 2012. Útför hans fór fram í kyrrþey.
Við þökkum innilega starfsfólki Landspítalans, heimahjúkrun og
heilsugæslu Garðabæjar, dagþjálfun Hrafnistu í Reykjavík og
Hafnarfirði, og hjúkrunarheimilinu Holtsbúð á Vífilsstöðum, fyrir
veittan stuðning, kærleik, umönnun og mikilsverð störf, vinum og
fjölskyldum okkar fyrir djúpa samúð.
Virðingarfyllst,
Unnur Inga Jensen
Alfreð Ingi Alfreðsson Wilmot
George Elís Alfreðsson Wilmot
John Wilmot
David Wilmot
Robert Wilmot
Tómas Wilmot
tengdadætur, barnabörn og barnabarnabörn.
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Sverrir
Einarsson
Kristín
Ingólfsdóttir
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Suðurhlíð 35, Reykjavík • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Alúð - virðing - traust
Áratuga reynsla
Vaktsími:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Allan sólarhringinn
Elskuleg eiginkona mín, tengdadóttir,
systir, mágkona og frænka,
DRÖFN LÁRUSDÓTTIR
Dalhúsum 73, Reykjavík,
sem lést á líknardeild Landspítala,
Kópavogi þriðjudaginn 6. nóvember
verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju
miðvikudaginn 21. nóv ember kl.13.00. Blóm og kransar
vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er
bent á Ljósið eða önnur líknarfélög.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Ásmundur Einarsson
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
dóttir, systir og mágkona,
KRISTÍN STEINARSDÓTTIR
kennari,
Bleikjukvísl 11, Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum mánudaginn
12. nóvember, verður jarðsungin frá
Hallgrímskirkju miðvikudaginn 21. nóvember
nk. kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hennar er bent á styrktarreikning vegna
sjálfstæðrar búsetu dóttur hennar Nínu Kristínar,
nr. 313-22-001282, NKS ehf., kt. 620910-0150.
Sigurbjörn Magnússon
Magnús Sigurbjörnsson
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
Nína Kristín Sigurbjörnsdóttir
Steinarr Guðjónsson Elsa Pétursdóttir
Björg Steinarsdóttir Gísli V. Guðlaugsson
Rakel Steinarsdóttir
Bryndís Steinarsdóttir Hermann Hermannsson
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
PÉTUR AXELSSON
fyrrverandi útibússtjóri,
Túngötu 22, Grenivík,
lést á Grenilundi Grenivík þriðjudaginn
13. nóvember. Útför hans fer fram
frá Grenivíkurkirkju laugardaginn
24. nóvember kl. 14.00.
Erla Friðbjörnsdóttir
Anna Pétursdóttir Kristinn Skúlason
Birgir Pétursson Aðalheiður Jóhannsdóttir
Sigurbjörg Helga Pétursdóttir Jón Bragi Skírnisson
Friðbjörn Axel Pétursson
Jón Ásgeir Pétursson Elín Berglind Skúladóttir
Guðrún Hildur Pétursdóttir Helgi Teitur Helgason
afa- og langafabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar okkar
ástkæra sambýlismanns, föður,
tengdaföður og afa,
HANS ÓLA HANSSONAR
Tröllakór 1, Kópavogi,
sem lést af slysförum 20. október
síðastliðinn.
Ólöf Ólafsdóttir
Sævar Hansson Valdís Brynjólfsdóttir
Sigrún Júlía Hansdóttir Vilmundur Friðriksson
Kolbrún Steinunn Hansdóttir Þórarinn Gunnarsson
og barnabörn.
Svölur verða með markað í dag
frá klukkan 10 til 19 á Reykja-
vík Natura (áður hótel Loftleið-
ir). Markaðurinn er til stuðn-
ings sex ára stúlku, Sunnu
Valdísi, sem ein hér á landi
þjáist af sjúkdómi sem
kallaður er AHC. Fleiri
upplýsingar eru á ahc.is.
Á markaðinum verða vörur fyrir börn á
aldrinum 0 til 12 ára, föt, leikföng, hjól, barna-
stólar og fleira. Allt nýtt eða lítið notað og allt
á góðu verði.
Dagskrá verður fyrir börn í bíósal hótels-
ins. Skoppa og Skrítla koma í heimsókn og
Hafdís Huld mun syngja. Flugfreyjukórinn
syngur líka af og til allan daginn.
- gun
Safna fyrir gott málefni