Fréttablaðið - 17.11.2012, Page 8
17. nóvember 2012 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 8
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
Velkomin í næsta útibú eða hringdu í okkur í síma 410 4000.
10,4%
Sparibréf löng er ríkisskuldabréfasjóður
sem árfestir í löngum skuldabréfum, verð-
tryggðum sem óverðtryggðum, með ábyrgð
íslenska ríkisins.
Afburða
ávöxtun
Fyrirvari: Sparibréf löng er verðbréfasjóður samkvæmt lögum nr. 128/2011 og lýtur eirliti Fjármálaeir-
litsins. Landsbréf hf. er rekstrarfélag sjóðsins og Landsbankinn hf. vörslufélag hans. Áhætta fylgir ávallt ár-
festingu í sjóðum þar sem gengi þeirra getur bæði hækkað og lækkað. Ávöxtun í fortíð gefur ekki endilega vís-
bendingu um framtíðarávöxtun. Nánari upplýsingar um sjóðinn má finna í útboðslýsingu eða útdrætti úr henni á
landsbankinn.is eða á landsbref.is. *Ávöxtun miðað við 31.10.2012.
Fjárfestingaflokkar
Sparibréf löng - 1 árs nafnávöxtun*
RÍ
K
IS
TR
YG
GÐ
SKULDA
B
R
ÉF
Ríkisskuldabréf Innlán / Reiðufé90-100% 0-10%
VIÐSKIPTI Hlutabréf í Eimskip
voru tekin til viðskipta á aðal-
markaði Kauphallarinnar í gær.
Eimskip er þriðja nýja félagið
sem skráð er í Kauphöllina frá
bankahruni en það fylgir á eftir
Högum og Regin.
Við lokun markaða í gær var
verð bréfa félagsins 225 krónur á
hlut. Í útboði á bréfum í félaginu
voru þau seld á 208 krónur á hlut
og því hækkaði verðið um ríflega
8% í gær. Heildarviðskipti með
bréfin voru tæplega 275 milljónir
í gær. - mþl
Eimskip skráð á markað:
Viðskipti hafin
með Eimskip
BJÖRGUN Flutningaskipið Pól-
foss, sem er í eigu Eimskips,
slapp óskemmt eftir að hafa
strandað á sandgrunni suður af
bænum Sandnessjöen í Noregi í
gærmorgun. Dráttarbátur náði
Pólfossi af strandstað á flóði og
sigldi skipið fyrir eigin vélarafli
til hafnar þar sem teknar voru
skýrslur af áhöfninni.
Slysið vildi þannig til að stýri-
maðurinn sofnaði við stýrið á
leiðinni til Álasunds. Farmur
skipsins er 1.800 tonn af frosnum
sjávarafurðum. Búist var við að
skipið héldi leiðar sinnar í dag.
Ólafur Hand, upplýsinga-
fulltrúi Eimskips, sagði í sam-
tali við Fréttablaðið að allir í
áhöfninni, níu menn, hafi sloppið
ómeiddir.
Skipið var smíðað 2008 og sinn-
ir strandsiglingum í Noregi með
sjávarafurðir til Evrópu. - þj
Flutningaskipið Pólfoss:
Óskemmt eftir
strand í Noregi
Í STRAND Flutn-
ingaskipið Pólfoss
skemmdist ekkert
í strandi í Noregi
í gær.
NOREGUR
SVÍÞJÓÐ
FINNLAND
MENNING Frægur veiðikofi
fjöllistamannsins Guðmund-
ar Einarssonar frá Miðdal við
Stóru-Laxá í Hreppum verð-
ur endurgerður í upprunalegri
mynd. Um samstarfsverkefni
Veiðifélags Stóru-Laxár og leigu-
taka árinnar, Lax-ár, er að ræða,
en kofinn hefur öðlast sess sem
eitt helsta kennileiti árinnar
í huga veiðimanna sem venja
komur sínar á veiðisvæðið.
Árni Baldursson er leigutaki
Stóru-Laxár. „Þetta er svona
gæluverkefni Veiðifélags Stóru-
Laxár og okkar. Ætlunin er að
gera húsið upp í sinni uppruna-
legu mynd, enda er þarna mikil
saga og margar skemmtileg-
ar minningar frá Veiðifélag-
inu FLUGAN. Þetta á að verða
minnsta sögusafn á Íslandi; en
líka lítil kaffistofa þar sem gest-
ir og gangandi geta hellt sér upp á
te eða kaffi á kamínu eins og var
notuð í gamla daga. Þarna verð-
ur tækifæri til að skoða gamlar
myndir og til að glugga í bækur,
svo eitthvað sé nefnt. Veiðimenn
geta svo hallað sér þarna í hvíld-
inni þegar þeir eru að veiða
Hrunakrók og upplifað stemn-
inguna á þessum fallega stað,“
segir Árni.
Esther Guðjónsdóttir, formaður
Veiðifélags Stóru-Laxár, segir að
unnið verði að endurgerð veiði-
kofans í vetur, og vonir standi til
að kofinn verði tilbúinn í vor.
Þúsundþjalasmiðurinn Guð-
mundur Magnússon á Flúðum
mun sjá um vinnuna, segir Est-
her; megnið af timbrinu er heilt
þó gólfið sé ónýtt og bárujárns-
klæðningin. „Allt verður notað
aftur sem er heilt. Við munum
flytja kofann og hann gerður upp
á Flúðum, og svo verður farið
með hann aftur á sinn stað í vor,“
segir Esther.
Saga kofans er merkileg. Upp-
haflega var hann settur upp sem
varðkofi við Ölfusárbrú í stríðinu
en upp úr 1940 fluttu Guðmund-
ur frá Miðdal og félagar hans
húsið upp á Hrunakrók og nýttu
það í mörg ár þegar haldið var
til veiða. Húsið verður trúlega
minnsta veiðihús landsins en til-
koma þess kærkomin veiðimönn-
um, helst fyrir þær sakir að um
tíu kílómetrar eru í næsta veiði-
hús í Laxárdal.
„Sagan um veiðina og húsið
er stórskemmtileg og merkileg
fyrir veiðimenn og verður tekin
saman í vetur og gerð aðgengileg
í kofanum næsta sumar,“ segir
Esther. svavar@frettabladid.is
Verður athvarf og sögusafn
Veiðikofi Guðmundar frá Miðdal við Stóru-Laxá verður endurgerður í vetur. Sett verður upp lítil sögusýning,
auk þess sem veiðimenn fá kærkomna aðstöðu. Var fyrst varðkofi við Ölfusá í seinni heimsstyrjöld.
Þetta á að verða minnsta sögusafn á Íslandi; en líka lítil
kaffistofa þar sem gestir og gangandi geta hellt sér upp á te eða
kaffi á kamínu eins og var notuð í gamla daga. Þarna verður
tækifæri til að skoða gamlar myndir og til að glugga í bækur, svo
eitthvað sé nefnt.
Árni Baldursson, leigutaki Stóru-Laxár
KOFINN HANS
GUÐMUNDAR
Kofinn er um níu
fermetrar með koju,
hillum og bekkjum.
Nýja kamínu þarf að
kaupa en sú gamla,
sem fengin var úr
ónefndu skipi, er
horfin.
MYND/ÁRNI BALDURSSON
LÁGT TIL LOFTS
Hér má sjá fletið
sem Guðmundur
gerði sér oft að góðu
dögum saman.
MYND/BJÖRGÓLFUR