Fréttablaðið - 17.11.2012, Page 47
KYNNING − AUGLÝSING Spjaldtölvur17. NÓVEMBER 2012 LAUGARDAGUR 3
Það er ekkert hægt að orða það öðru-vísi en svo að það hefur hreinlega orðið sprenging í spjaldtölvusölu á
þessu ári og nú fyrir jólin. Við höfum und-
anfarna daga verið að selja spjaldtölvur í
hundraðatali sem ætlaðar eru til jólagjafa,“
segir Gunnar Jónsson, sölu- og markaðs-
stjóri Tölvulistans. „Stærsta skýringin liggur
í því að verðið hefur stórlækkað vegna auk-
innar eftirspurnar og framleiðslu. Nú erum
við til dæmis fyrir jólin að bjóða tíu tommu
spjaldtölvu með Android 4.0 og Google Play
á 19.990 sem kostaði tvöfalt meira fyrir jólin
í fyrra.“
Gunnar segir framboð á spjaldtölvum
aldrei hafa verið meira og að eftirspurnin
aukist með hverjum mánuði. „Það er fróð-
legt að fylgjast með þróuninni á spjald-
tölvumarkaðnum þessa dagana. Vöxturinn
er mikill. Það helgast ekki síst af því að þeir
sem eiga spjaldtölvur eru hæstánægðir með
þær og sú ánægja virðist vera að spyrjast
hratt út. Með auknum vinsældum sjáum við
bæði meiri breidd í úrvalinu og aukin gæði.“
Vinsælar fyrir börn og unglinga
„Vegna þeirrar verðlækkunar sem við sjáum
á spjaldtölvum finnum við fyrir miklum
áhuga frá foreldrum að gefa spjaldtölvur í
jólagjafir. Hægt er að fá sjö tommu spjald-
tölvu hjá Tölvulistanum frá 13.990 sem gerir
þær ódýrari en mörg leikföng sem eru í boði
í leikfangaverslunum. Kosturinn við spjald-
tölvurnar er að þær eru eigulegar og endast
oft betur en leikföngin auk þess sem nota-
gildið er margfalt meira. Í spjaldtölvum er
hægt að nálgast og spila þúsundir ókeyp-
is leikja, hlusta á tónlist, fara á YouTube og
Face book, vafra á netinu, lesa rafbækur, taka
myndir og horfa á bíómyndir. Og ekki spill-
ir fyrir að geta haft tölvuna út af fyrir sig og
farið með hana hvert sem er. Spjaldtölvurn-
ar hafa reynst vera góður ferðafélagi,“ segir
Gunnar.
Bæði Android og iOS fyrir Apple bjóða
mikið magn af öppum eða smáforrit-
um sem ýmist eru ókeypis eða ódýr. „Það
hefur verið mikil jákvæð umræða undan-
farið um gagnsemi spjaldtölva í skólastarfi.
Það skemmtilega við spjaldtölvur er að þær
eru ekki einungis leiktæki heldur hafa líka
mikið fræðslugildi vegna ótal smáforrita
sem þroska og fræða.“
iPad og iPad mini
iPad frá Apple eru meðal vinsælustu
spjaldtölvanna hjá Tölvulistanum og fyrir
skemmstu kynnti fyrirtækið til sögunnar
nýja spjaldtölvu sem vakið hefur mikla og
verðskuldaða athygli að sögn Gunnars. „Það
hefur ríkt mikil eftirvænting eftir iPad mini
og hann stendur svo sannarlega undir vænt-
ingum og salan hefur farið vel af stað. Það
sem viðskiptavinir hafa verið ánægðastir
með er að hún er nettari og meðfærilegri en
iPad en munurinn á skjástærðinni er minni
en maður hefði haldið þar sem hann er þrátt
fyrir allt rétt um átta tommur. Og ekki spillir
fyrir að ódýrasta gerðin af honum er komin
undir sextíu þúsund.“
Fyrsta spjaldtölvan frá Google
Að sögn Gunnars átti Google sterka inn-
komu inn á spjaldtölvumarkaðinn fyrir
nokkrum vikum með nýrri sjö tommu
spjaldtölvu sem kallast Nexus 7 sem fram-
leidd er af Asus. Tækjatímaritið T3 valdi
hana nýverið spjaldtölvu ársins 2012 og
Asus tölvuframleiðanda ársins. „Við erum
mjög hrifnir af Nexus 7-spjaldtölvunni sem
er í hæsta gæðaflokki. Hún kemur með nýj-
asta Android Jelly Bean-stýrikerfinu og ein-
staklega hraðvirkum örgjörva. IPS-snerti-
skjárinn tryggir einstaklega mikla litadýpt
og upplausnin er í háskerpu. Við erum að
ná 32GB útgáfunni niður fyrir fimmtíu þús-
und sem gerir hana ein bestu kaupin með
hliðsjón af gæðum. Hún verður eflaust ein
af vinsælustu spjaldtölvunum fyrir jólin.“
Windows 8 fyrir spjaldtölvur
Í lok október kynnti Microsoft til sögunnar
nýja Windows 8-stýrikerfið. Helsta nýjung-
in í Windows 8 felst í því að í fyrsta sinn er
með einu stýrikerfi hægt að tengja saman
borðtölvur, fartölvur, spjaldtölvur og snjall-
síma. Eitt stýrikerfi og mörg tæki. Tölvulist-
inn flutti inn fyrstu Windows 8-spjaldtölv-
una frá Toshiba og að sögn Gunnars er von á
breiðari línu á næstu dögum. „Nýjungarnar
sem koma með Windows 8 eru vægast sagt
mjög spennandi. Microsoft hefur ávallt lagt
höfuðáherslu á notagildi og nú í fyrsta sinn
getur spjaldtölvan verið framlenging af far-
tölvunni eða borðtölvunni og hægt að kom-
ast í forritin og gögnin sín hvar sem er. Það
er mikil bylting fyrir þá sem nota spjaldtölv-
una í daglegum störfum. Þetta hefur í för
með sér að vélbúnaðurinn er öflugri í Win-
dows 8. Á næstu vikum eigum við til dæmis
von á spjaldtölvum með hinum vinsælu
i3, i5 og i7 örgjörvum frá Intel. Auk þess er
hægt að nálgast þúsundir ókeypis smáfor-
rita í gegnum stýrikerfið. Windows 8-spjald-
tölva sameinar því bæði skemmtanagildi og
notagildi.“
Sprenging í spjaldtölvusölu
Tölvulistinn er með eitt mesta úrval landsins af spjaldtölvum frá framleiðendum á borð við Asus, Toshiba, Apple, Acer og United.
Fjölbreytnin er mikil og nú fyrir jólin verður hægt að velja úr yfir tuttugu gerðum af spjaldtölvum frá 13.990 krónum.
Gunnar Jónsson, sölu- og markaðsstjóri Tölvulistans, segir framboð á spjaldtölvum aldrei hafa verið meira og að eftirspurnin aukist með hverjum mánuði. MYND/GVA
GALAXY NEXUS7 FRÁ
49.990
● Fyrsta spjaldtölvan frá Google.
● Valin spjaldtölva ársins 2012 af
tímaritinu T3.
● Fjögurra kjarna 1.3GHz NVIDIA
Tegra 3 örgjörvi.
● Android Jelly Bean-stýrikerfið.
● GeForce Tegra 3 skjákort.
● 1GB í vinnsluminni og einstak-
lega skýr 7“ IPS háskerpuskjár.
● Allt að 10 tíma rafhlöðuending.
● GPS-nemi, ljósnemi, Gyroscope,
Magnaometer.
10“ SPJALDTÖLVA Á
19.990
● 10“ Sharper Image-spjaldtölva
með 1.2GHz Cortex A8-örgjörva
og 8GB minni.
● 4GB innbyggt Flash-minni og
4GB MicroSD-minniskort fylgir.
● 16:9 snertiskjár með 1024x600
punkta upplausn og Capacitive
multi-touch snertitækni.
● Android 4.0 Ice Cream Sand-
wich.
● Myndavél að framan og aftan.
● Allt að 10 tíma rafhlöðuending.
● Vegleg
taska og
heyrnartól
fylgja.
IPAD MINI FRÁ 59.990
● Nýjasta spjaldtölvan frá Apple.
● Allt það besta úr iPad er líka í
iPad mini.
● Skarpur og fallegur skjár, hraði
og mikil afkastageta.
● iSight og FaceTime HD
myndavél, hundruð þúsunda for-
rita í App Store og allt að 10 klst.
rafhlöðuending.
● Kemur í svörtu og hvítu, Wi-Fi
eða 4G.
● Þrjár mismunandi stærðir 16GB,
32GB og 64GB.
● Fer vel í hendi og er þægilega
nettur á
ferðinni.
IPAD 4. KYNSLÓÐ
● iPad eru vinsælustu spjaldtölvur
heims af góðri ástæðu.
● Retina-skjárinn í nýjustu útgáfu
iPad er einstakur í alla staði með
3,1 milljón pixla upplausn, skerpu
og litadýpt sem erfitt er að keppa
við.
● Nýr A6X-örgjörvi, ofurhröð
þráðlaus tækni og 10 tíma raf-
hlaða.
● Tvær myndavélar, iSight og
FaceTime.
● Hægt að taka ljósmyndir á 5
megapixla flögu og myndbönd í
1080p háskerpugæðum.
WINDOWS 8 SPJALDTÖLVA
● Fyrsta Windows 8-spjaldtölva
Tölvulistans.
● Eitt stýrikerfi sem tengir mörg
tæki.
● Vinsælt að nota spjaldtölvuna
bæði í vinnu og til skemmtunar.
● Öflugur fjögurra kjarna Tegra
3-örgjörvi, 64GB minni og 10,1“
hágæða IPS-skjár.
● Innbyggt GeForce 3-skjákort
tryggir frábæra grafíkvinnslu.