Fréttablaðið - 17.11.2012, Side 50
FÓLK|
Logi skiptum þessu með okkur. Auðvitað kem-
ur fyrir að hlutirnir standa tæpt og stundum
tek ég eftir að maðurinn minn er bæði með úfið
hár og skakkt bindi í fyrstu frétt kvöldsins.“
Þau Svanhildur og Logi gæta þess að rækta
hjónabandið í annasamri tilveru.
„Við hittumst í hádeginu svo við rekumst
ekki bara hvort á annað yfir uppvaskinu eða
háttatíma barnanna. Þannig er það eflaust
hjá flestum með lítil börn; mikill tími sem fer í
vinnu bæði úti og á heimili.“
Svanhildur sagði skilið við sjónvarpsstörf
2009. „Þetta var orðið gott í bili en ég mun
aldrei losna við fjölmiðlabakteríuna.“
Hún segist ánægð í starfi sínu nú en áður var
hún framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðis-
flokksins. „Það starf kom upp í hendurnar á
mér á umbrotatímum, þegar flestir voru með
andstyggð á pólitík. Þá þótti mér spennandi að
takast á við þá hugsjón mína að geta kannski
gert gagn en ég geng þó ekki með þingmann í
maganum.“
Svanhildur er lögfræðingur en segist ekki
hafa íhugað alvarlega störf á þeim vettvangi.
„Lögfræðin nýtist vel í starfi mínu á þinginu
og ég er ekki viss um að mér þætti þægilegt að
vera í því án þeirrar grunnþekkingar sem lög-
fræðin er. Ég ætlaði sem unglingur að verða
lögfræðingur en dró að skrifa lokaritgerðina
þar sem sumarstarf á Ríkisútvarpinu vatt upp
á sig. Áður en ég vissi af var ég fastráðin í
morgunútvarpi Rásar 2 sem er skemmtilegasta
vinna í heimi. Mælikvarði á það er að ég er B-
manneskja og mundi aldrei vakna klukkan hálf-
fimm af sjálfsdáðum nema fyrir morgunútvarp-
ið, börnin mín og flug til útlanda.“
Þegar tal berst að B-manneskju koma hrekkir
upp í hugann. Svanhildur fær nefnilega hug-
myndir að hrekkjum um nætur rétt eins og
Logi sem skrifaði Handbók hrekkjalómsins.
„Ég hlæ manna mest að hrekkjunum hans
Loga og gott fyrir hann að hafa klappstýru
heima. Ég læt hann líka vita ef hann fer yfir
strikið. Mér þykja hrekkjalómar heillandi því
þeir lífga upp á gráma hvunndagsins með
græskulausu gamni,“ segir Svanhildur sem
hrekkir stundum með Loga. „Þá hlæjum við
okkur máttlaus enda er mjög oft gaman hjá
okkur. Það er máltæki á okkar heimili að maður
verði að vera léttur.“
■ thordis@365.is
HLÚA AÐ HJÓNALÍFI
Svanhildur og Logi hitt-
ast gjarnan í hádeginu
til að rekast ekki bara
á hvort annað yfir upp-
vaskinu heima enda
bæði önnum kafin.
MYND/ANTON
■ FRAMHALD AF FORSÍÐU
GÓÐIR
GRANNAR
Svanhildur og Logi
búa í sama húsi
og Sigurður Kári
Kristjánsson, sjálf-
stæðismaður og
lögfræðingur, og
kona hans Birna
Bragadóttir.
„Það er gaman
að búa undir
sama þaki og vinir
manns. Við erum
með börn á sama
aldri og mikill
samgangur á milli
hæða. Það er mikið
öryggisnet að
húsið sé eiginlega
aldrei tómt. Við
brúum því oft bilið
hvert fyrir annað í
amstri dagsins.“25 ár á Íslandi
20% afsláttur af öllum vörum alla helgina
• Happdrætti
• Blöðrur
• Gjafir
Laugardag kl 13-16 er boðið upp á:
• Djús/drykkir fyrir börn og fullorðna
• Nammipokar
Fæst í apótekum, heilsubúðum
og stórmörkuðum
www.gengurvel.is
BELLAVISTA náttúruelgt
efni fyrir augun, ríkt af
lúteini og bláberjum
NÁTTBLINDA
HELGIN
Hópur stórsöngvara kemur fram á sérstökum samstöðu- og styrktartónleikum í Hofi, menningarhúsinu á Akureyri á morgun kl. 16. Allur ágóði tónleikanna rennur í styrktar-
söfnun sem staðið hefur yfir undanfarnar vikur. Söfnunin er fyrir þá
bændur sem urðu fyrir áföllum í óveðrinu er gekk yfir Norðurland í
september síðastliðnum. Tónleikarnir verða
hátíðlegir en sérstakir heiðursgestir verða
forsetahjónin, Ólafur Ragnar Grímsson, sem
mun flytja ávarp, og Dorrit Moussaieff.
Á tónleikunum koma fram þau Kristján Jó-
hannsson, Sigrún Hjálmtýsdóttir, Valgerður
Guðrún Guðnadóttir, Gissur Páll Gissurarson,
Jón Svavar Jósefsson, Unnur Helga Möller,
Hörn Hrafnsdóttir, Rósalind Gísladóttir, Guð-
rún Dalía Salómonsdóttir og Anna Guðný Guð-
mundsdóttir. Allir listamenn gefa vinnu sína til
stuðnings verkefninu.
Mikið tjón varð hjá bændum á Norðurlandi í
óveðrinu, 9.-11. september síðastliðinn. Áætlað er að 224 jarðir hafið
orðið fyrir tjóni. Á þessum bæjum týndust 6.318 lömb og 3.105 ær,
þ.e. fjárfjöldi alls 9.423. Þá hafa 50 nautgripir farist og 132 kílómetrar
af girðingum eru skemmdir, illa farnir eða ónýtir.
Þeim sem vilja leggja bændum lið er bent á söfnunarreikning nr.
0161-15-380370, kt. 630885-1409, í Landsbankanum á Sauðárkróki.
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473 | Sverrir Birgir
Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 | Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427
STÓRSÖNGVARAR
SAFNA FYRIR BÆNDUR