Fréttablaðið - 17.11.2012, Page 54
| ATVINNA |
Skjalavörður – ritari
Námsgagnastofnun óskar eftir að ráða
skjalavörð – ritara nú þegar.
Um er að ræða 50% framtíðarstarf.
Skjalavörður – ritari hefur umsjón með skjalavistun-
arkerfi Námsgagnastofnunar auk almennra skrif-
stofustarfa.
Viðkomandi þarf að vera stundvís og áreiðan-
legur, þjónustulipur og hafa haldgóða menntun og
tölvuþekkingu. Reynsla af notkun GoPro skjalavist-
unarkerfis er æskileg. Góð íslenskukunnátta áskilin.
Vinnutími er fyrir hádegi. Boðið er upp á góða
vinnuaðstöðu.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum opinberra
starfsmanna og stofnanasamningi.
Upplýsingar um starfið veitir Eiríkur Grímsson, starfs-
mannastjóri, í síma 535 0400,
netfang eirikur@nams.is.
Umsóknir sendist Námsgagnastofnun Víkurhvarfi
3, 203 Kópavogi fyrir 3. desember nk. Með allar
upplýsingar verður farið sem trúnaðarmál og öllum
umsóknum verður svarað.
Listaháskóli Íslands auglýsir eftir umsóknum
um starf aðjúnkts í vöruhönnun við hönnunar-
og arkitektúrdeild skólans. Um er að ræða
60% starfshlutfall.
Leitað er eftir einstaklingi sem er virkur
á sviði hönnunar og listsköpunar, hefur
kennslureynslu og reynslu af því að leiðbeina
nemendum á háskólastigi í hönnunarverkefnum.
Gerð er krafa um meistarapróf eða sambærilega
menntun. Starfið felur í sér kennslu og umsjón
með námi nemenda í vöruhönnun í samráði
við fagstjóra í vöruhönnun og deildarforseta
hönnunar- og arkitektúrdeildar.
Gert er ráð fyrir að ráðning taki gildi frá og með
1. janúar og sé tímabundin til 1. ágúst 2013.
Umsóknir skulu stílaðar á rektor og skal skila
þeim ásamt með fylgigögnum til Listaháskóla
Íslands, Þverholti 11, 105 Reykjavík, eigi síðar en
mánudaginn 3. desember. Nánari upplýsingar er
að finna á heimasíðu skólans www.lhi.is
STAÐA AÐJÚNKTS
Í VÖRUHÖNNUN
Nánari upplýsingar veitir:
Kristín Guðmundsdóttir
kristin@hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út á
www.hagvangur.is.
Umsóknarfrestur er til og
með 25. nóvember nk.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK
SÍMI 520 4700 www.hagvangur.is
17. nóvember 2012 LAUGARDAGUR2