Fréttablaðið - 17.11.2012, Side 56
| ATVINNA |
Síðumúla 5
108 Reykjavík
Sími 511 1225
www.intellecta.is
ráðgjöf ráðningar rannsóknir
Java forritarar .NET forritarar
Við óskum eftir að komast í samband við Java og .NET forritara.
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Sjá nánari upplýsingar á www.intellecta.is
Tölvunarfræðingur – forritari
Námsgagnastofnun óskar eftir að ráða tölvunar-
fræðing, eða einstakling með sambærilega mennt-
un, í fullt starf nú þegar. Viðkomandi þarf að hafa
haldgóða kunnáttu og reynslu í vefsmíði og forritun.
Reynsla af kennslu í grunnskólum, námsefnisgerð
eða skólastarfi almennt er æskileg en ekki skilyrði.
Um er að ræða starf við gerð og útgáfu stafræns
námsefnis á vef Námsgagnastofnunar í samstarfi og
samráði við ritstjórn stofnunarinnar.
Námsgagnastofnun er leiðandi á sviði námsefnis-
útgáfu á Íslandi og leggur metnað sinn í að gefa
út fjölbreytt og vandað námsefni fyrir grunnskóla.
Útgáfa námsefnis á stafrænu formi er vaxandi þáttur
í starfsemi stofnunarinnar.
Boðið er upp á góða vinnuaðstöðu. Laun eru sam-
kvæmt kjarasamningum og stofnanasamningi.
Allar nánari upplýsingar um starfið veita
Eiríkur Grímsson starfsmannastjóri og Hafdís
Finnbogadóttir útgáfustjóri í síma 535 0400 eða í
tölvupósti eirikur@nams.is og hafdis@nams.is
Umsóknum ásamt öllum nauðsynlegum upplýsing-
um skal koma til Námsgagnastofnunar, Víkurhvarfi
3, 203 Kópavogi fyrir 3. desember nk. Með allar
upplýsingar verður farið sem trúnaðarmál og öllum
umsóknum verður svarað.
Hjá Teledyne Gavia ehf. fer fram hönnun og framleiðsla Gavia djúpfarsins
sem notað er við pípueftirlit, sjávarbotnsrannsóknir, sjávarrannsóknir og fleira.
Djúpfarið Gavia er rannsóknartæki í fremstu röð og er markaðsett víðsvegar
um heim. Félagið er í eigu bandaríska félagsins Teledyne Technologies.
Nánari upplýsingar er að finna á www.gavia.is
Teledyne Gavia ehf. óskar eftir að ráða rafeindavirkja/tæknimann
Áhugasamir senda ferilskrá á netfangið: sgislason@teledyne.com fyrir 2. desember.
Starfssvið:
• Samsetning, prófanir og þjónusta á flóknum rafbúnaði
og vélbúnaði.
• Samskipti við viðskiptavini á ensku.
• Samvinna með Þróunardeild og smíði á frumgerðum.
• Getur krafist ferða erlendis.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Rafeindavirki eða sambærilegt.
• 5+ ára starfsreynsla.
• Sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
• Reynslu af að leiða hóp í lausn verkefna.
• Reynsla af hugbúnaði, Linux, kostur.
ÍAV óskar eftir að ráða samhenta smiðahópa
til starfa vegna verkefna á höfuðborgar-
svæðinu og nágrenni.
Nánari upplýsingar í síma 530 4200. Umsóknar-
eyðublöð má finna á heimasíðu www.iav.is
17. nóvember 2012 LAUGARDAGUR4