Fréttablaðið - 17.11.2012, Blaðsíða 107
LAUGARDAGUR 17. nóvember 2012 | MENNING | 75
„Hversdagurinn er minn inn-
blástur,“ segir Trine Andersen,
grafískur hönnuður og einn
stofnenda danska hönnunar-
merkisins Ferm Living. Vin-
sældir merkisins hafa nú teygt
anga sína til Íslands en merkið
býður upp á húsbúnaðar- og
heimilisvöru fyrir öll herbergi
heimilisins þar sem nytsemi
skiptir höfuðmáli. Klassískar
vörur með nútímanlegum blæ
sem flikka upp á heimilið.
GRAFÍSKUR HÖNNUÐUR LEITAR AFTUR TIL FORTÍÐAR
TEXTÍLL Efni,
dúkar, koddar
og sængur-
ver í alls
kyns litum
og munstrum.
DANSKT Innblástur allra vara
Ferm Living er sprottinn frá
heimalandinu, Danmörku.
KERAMÍK
Vasar, skálar,
kertastjakar
og bakkar eru
meðal þess
sem er í boði
frá merkinu
en marg-
lita grafíska
munstrið er
kennileiti
merkisins.
MIKIÐ VÖRUÚRVAL Húsahillurnar frá
merkinu eru vinsælar en þær eru einnig til
stærri og þá eins konar smádótahirsla.
Leikarinn Channing Tatum var
valinn kynþokkafyllsti karlmaður
ársins 2012 af tímaritinu People.
Hann segir titilinn hafa komið sér
í opna skjöldu.
„Mín fyrsta hugsun var: „Þeir
eru að grína í mér“. Ég sagði Jennu
frá þessu eftir að við höfðum þveg-
ið hundana okkar af því þeir höfðu
lent í skunki. Hún varð mjög hissa
líka,“ segir leikarinn. Hann lék
síðast í kvikmyndinni Magic Mike,
en Tatum skrifaði einnig handritið
að myndinni.
Tatum segir eiginkonu sína,
Jennu Dewan-Tatum, gera óspart
grín að honum eftir að hann hlaut
titilinn. „Hún kallar mig „Kyn-
þokkafyllsta manninn“ núna.“
Valinn kynþokka-
fyllsti maður ársins
KYNÞOKKAFYLLSTUR Channing
Tatum var valinn kynþokkafyllsti maður
ársins. NORDICPHOTOS/GETTY