Fréttablaðið - 17.11.2012, Page 120
FIMM
SPURNINGAR
Mest lesið
Eru ekki komnar nógu margar
hönnunarbúðir á Laugaveginn?
Það er aldrei nóg af fallegum
hönnunarbúðum hér í mið-
bænum. Ég held ég geti fullyrt
að við séum stærsta tísku- og
hönnunarhús á Íslandi, með 60
hönnuði undir einu þaki. Það
hlýtur að vera einsdæmi hér á
landi.
Eru ekki allar vörurnar rán-
dýrar?
Nei, ekki allar. Verðbilið er
mjög breitt, allt frá 250 krónum
upp í rúmlega þrjár milljónir.
Það er því ekki hægt að segja
annað en verðið hjá okkur sé
fjölbreytt.
Er þetta bara fyrir útlendinga?
ATMO er fyrir alla, konur jafnt
og karla og börn með skalla.
Er ekki miðbærinn dauður á
veturna?
Miðbærinn er í blússandi gír,
sérstaklega á köldum vetrar-
dögum. Hvað er betra en að
koma og skoða fallega íslenska
hönnun og gæða sér á rjúkandi
heitu tei frá Gló?
Hefði ekki verið sniðugra að
nýta húsnæðið undir Hennes &
Mauritz?
Alls ekki, ATMO er það snið-
ugasta sem ég veit um. Með
opnun miðstöðvarinnar erum
við að styrkja íslenska hönnun
og framleiðslu ásamt því að
halda peningunum inni í land-
inu.
Thelma Björk Jónsdóttir
Verslunarstjóri ATMO
30 ára fatahönnuður
Börn: Skorri Ísleifur Friðriksson
„Fremstur
norrænna
sakamála-
höfunda.“
THE TIMES
1 Íslenska lýsið stóðst prófi ð
2 Heppnasti lottó-spilari á Íslandi? -
hefur unnið stóra pottinn þrisvar á
stuttum tíma
3 Djúpið ein víðförlasta íslenska
kvikmynd allra tíma
4 Sigurður á svig við ótal reglur
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VÍSIR
RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja