Fréttablaðið - 30.11.2012, Side 30
30. nóvember 2012 FÖSTUDAGUR| SKOÐUN | 30
JÓLATRÉ
SÉRVALIN
OPNUNARTÍMI
UM HELGINA
Timburverslun Breidd Grandi Selfoss
Laugardagur 1. des. 10-14 10-18 10-18
Sunnudagur 2. des. Lokað 11-17 12-16
Sjá nánar
á byko.is
Í BYKO velur þú draumajólatréð
við kjör aðstæður inni, þannig
að þú getur gefið þér góðan
tíma og vandað valið. Valið á
jóla trénu ætti þó ekki að taka
langan tíma því BYKO býður
eingöngu upp á hágæða sér-
valin jólatré úr Normannsþin,
íslenskri furu og blágreni.
Hluti söluandvirðis af hverju
jólatré fer til Hjúkrunarheimilis
Sunnuhlíðar í Kópavogi.
BYKO BÝÐUR EINGÖNGU UPP
Á HÁGÆÐA SÉRVALIN JÓLATRÉ
Vnr. 41140101 ................... 100-125 cm
Vnr. 41140102 ................... 125-150 cm
Vnr. 41140104 ................... 150-175 cm
Vnr. 41140106 ................... 175-200 cm
Vnr. 41140107 ................... 200-250 cm
Vnr. 41140108 ................... 100-125 cm
Vnr. 41140110 .................. 125-150 cm
Vnr. 41140112 ................... 150-175 cm
Vnr. 41140114 ................... 175-200 cm
Vnr. 41140116.................... 200-225 cm
Vnr. 41140131 ................... 100-125 cm
Vnr. 41140132 .................. 125-150 cm
Vnr. 41140134 ................... 150-175 cm
Vnr. 41140136 ................... 175-200 cm
Vnr. 41140138 ................... 200-250 cm
Íslensk fura
Normannsþinur
Blágreni
LIFANDI JÓLATRÉ
Fæst í Timburverslun
Breidd, Selfossi og Granda.
Verðvernd BYKO tryggir þér lægra verð. Sjá nánari upplýsingar og skilmála á www.byko.is.
Síðsumars hóf Starf –
vinnumiðlun og ráðgjöf
(STARF), að þjóna um
fjórðungi atvinnuleitenda
á atvinnuleysisskrá, ein-
staklingum sem fram
til þess tíma höfðu verið
skjólstæðingar Vinnu-
málastofnunar. Um er
að ræða þriggja ára til-
raunaverkefni Alþýðu-
sambands Íslands (ASÍ)
og Samtaka atvinnulífs-
ins (SA) um aukna þjón-
ustu við atvinnuleitendur.
Verkefnið er byggt á sam-
komulagi þessara aðila
við velferðarráðuneytið og varð
til í tengslum við gerð kjara-
samninga í maí 2011. Þessir ein-
staklingar sem færðust yfir til
STARFs í þjónustu, eru félagar í
tilgreindum stéttarfélögum sem
taka þátt í verkefninu.
Ljóst er að það hentar atvinnu-
leitendum betur að sækja þessa
þjónustu til síns stéttarfélags,
sem þegar er að veita félögum
sínum umtalsverða þjónustu á
öðrum sviðum. Þjónusta STARFs
fer fram í félagslegu umhverfi
atvinnuleitandans og er veitt af
atvinnuráðgjöfum sem þekkja
starfsumhverfi viðkomandi fag-
félags. Þeir hafa því betri sýn
á bakgrunn og starfsreynslu
atvinnuleitandans.
Tilgangurinn er að þjónust-
an verði markvissari og er það
sannfæring þeirra sem að verk-
efninu standa að aðkoma SA að
því tryggi nánari tengingu við
atvinnulífið en náðst hefur fram
til þessa. Þessi samvinna heild-
arsamtaka stéttarfélaga (ASÍ)
og heildarsamtaka atvinnulífsins
(SA) í aðgerðum gegn atvinnu-
leysi, er sennilega einstök á
alþjóðavísu.
Samsvarandi úrræði
Markmið tilraunaverkefnisins
er að auka þjónustu við atvinnu-
leitendur. Eftir sem áður stend-
ur atvinnuleitendum innan verk-
efnisins til boða samsvarandi
vinnumarkaðsúrræði og Vinnu-
málastofnun hefur boðið upp á og
lögboðin eru. Námsúrræðin eiga
að auka hæfni einstaklingsins
svo hann eigi meiri möguleika á
að finna starf við hæfi.
Jafnframt verða í boði samn-
ingar við fyrirtæki um reynslu-
ráðningar eða tímabundin störf
atvinnuleitenda, þar sem við-
komandi fyrirtæki fær til sín
atvinnuleysisbætur einstak-
lingsins meðan á samningstím-
anum stendur, en þarf að greiða
viðkomandi kjarasamningsbund-
in laun á meðan. Aðaláhersla
STARFs mun liggja í vinnumiðl-
uninni sjálfri, með það megin-
markmið að koma atvinnuleit-
endum aftur til starfa.
Fjórar þjónustumiðstöðvar
Til að tryggja gæði og samræm-
ingu á þjónustunni stofnuðu ASÍ
og SA sameiginlega fyrirtæk-
ið Starf – vinnumiðlun og ráðn-
ing og annast það framkvæmd
verkefnisins. Vel menntaðir og
reyndir atvinnuráðgjafar voru
ráðnir til starfa og er þjónustan
nú veitt á fjórum þjónustumið-
stöðvum stéttarfélaga.
Stærst er þjónustumið-
stöðin hjá VR í Kringl-
unni og þjónar hún
félagsmönnum VR á höfuðborg-
arsvæðinu (félagsmenn VR eru
fjölmennastir innan tilrauna-
verkefnisins). Önnur þjónustu-
miðstöð er hjá iðnfélögum í
Borgartúni fyrir þeirra félaga
á höfuðborgarsvæðinu. Á Suður-
nesjum sameinast fimm stéttar-
félög um þjónustumiðstöð sem
er rekin á skrifstofu Verkalýðs-
og sjómannafélags Keflavíkur.
Fjórða þjónustumiðstöðin er svo
á Austurlandi, á skrifstofu Afls
– Starfsgreinafélags á Egils-
stöðum og þjónar félögum allra
stéttarfélaga innan ASÍ á Aust-
urlandi.
Þjónustan markvissari
Vinnuveitendur ættu að sjá sér
hag í að leita starfskrafta til
þjónustumiðstöðva STARFs,
þar sem hver þjónustumiðstöð
er með atvinnulausa félaga skil-
greindra stéttarfélaga á ákveðn-
um starfssvæðum. Þá þekkja
atvinnuráðgjafar STARFs gjarn-
an þarfir fyrirtækjanna sem
nýta starfskrafta félaga í þeirra
stéttarfélögum.
Í gagnagrunni hvers atvinnu-
ráðgjafa er skilgreindur hópur
atvinnuleitenda, en ekki allir
atvinnuleitendur landsins. Þjón-
ustan er því markvissari en
verið hefur þar sem þekking
er til staðar á „faginu“ og mun
dýpri skilningur á þörfum, fag-
þekkingu og á starfsreynslu við-
komandi hóps atvinnuleitenda.
Einnig eru sér þjálfaðir atvinnu-
ráðgjafar STARFs með beina
tengingu inn í þau stéttarfélög
sem þeir starfa með. Þeir eru
því meðvitaðir um aðra þjónustu
stéttarfélaganna sem og starfs-
umhverfi þeirra og þjónustan öll
sótt á einn stað.
Rekstur STARFs er fjármagn-
aður af Atvinnuleysistrygging-
arsjóði. Yfirbyggingu og rekstr-
arkostnaði er haldið í algjöru
lágmarki, öll áhersla er á kjarna-
starfssemina, ráðgjafahlutann.
STARF hefur opnað vefsíðu þar
sem fyrirtæki geta skráð laus
störf á þeirra vegum. Þar er
einnig að finna greinargóðar
upplýsingar fyrir atvinnuleit-
endur og atvinnurekendur (www.
starfid.is).
Það er von og trú þeirra öflugu
samtaka sem standa að rekstri
STARFs – vinnumiðlunar og
ráðgjafar að tilkoma þess verði
atvinnuleitendum til framdráttar
og er leitað eftir góðu samstarfi
við atvinnuleitendur og atvinnu-
rekendur við framkvæmd verk-
efnisins.
➜ Ljóst er að það
hentar atvinnu-
leitendum betur að
sækja þessa þjónustu
til síns stéttarfélags,
sem þegar veitir
félögum sínum
umtals verða þjónustu
á öðrum sviðum.
Samráð Samfó-style
Þeir sem trúa því enn þá að Samfylkingin meini eitthvað með loforðum
sínum, hljóta að gera ráð fyrir því að þegar ríflega 800 íbúar taka sig til
og senda inn bréf til að mótmæla „lykilákvörðun“ í skipulagsmálum, þá
muni flokkurinn „viðurkenna rétt einstaklinganna til þátttöku við að móta
nánasta umhverfi sitt“.
Það er síðan áhugavert innlegg inn í þetta lýðræðislega ferli að hags-
munaaðilinn í málinu sendir bækling inn í hvert hús í morgun, þar sem
einhliða áróður er rekinn fyrir því að þetta umdeilda skipulag verði sam-
þykkt.
http://eyjan.pressan.is
Gísli Marteinn Baldursson
AF NETINU
Atvinnuleitendur
eru ekki allir eins
ATVINNUMÁL
Þorsteinn Fr.
Sigurðsson
rekstrarhagfræð-
ingur –
framkvæmda stjóri
STARFs