Fréttablaðið - 30.11.2012, Side 34
30. nóvember 2012 FÖSTUDAGUR| TÍMAMÓT | 34TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
„Ég man þegar ég afgreiddi á mínum
fyrsta basar að mér þótti svo merki-
legt hvernig allir flykktust beint að
kökuborðinu. Svo var farið í handa-
vinnuna. Það virðist vera sama hversu
mikið matarkyns er í boði á hverju ári,
alltaf selst það upp,“ segir Helga Frið-
riksdóttir, sem hefur verið í undirbún-
ingsnefnd fyrir basar KFUK í 50 ár.
Hún tekur þátt í sínum 51. basar fyrir
félagið á morgun að Holtavegi 28.
Helga var átján ára þegar hún tók
þátt í sínum fyrsta basar og segist hafa
verið vel undir meðalaldri þá. „Það er
ein sem var í hópnum þá og er enn að í
dag, orðin 91 árs gömul, og hún er enn
þá að sauma. Annars hefur hópurinn
endurnýjast smám saman í gegnum
árin,“ segir Helga. Tólf konur skipa
undirbúningshópinn núna og hittast
þær vikulega frá því snemma hausts
á hverju ári til að vinna við undirbún-
inginn. „Ég er alltaf með svo áhuga-
samar konur í kringum mig og þær
eru frábær hvatning. Ég er oft tilbú-
in með verkefni sem ég deili út og svo
koma þær líka með eigin hugmyndir.
Það er alveg frábært hvað þær eru hug-
myndaríkar. Ein úr hópnum ætlar til
að mynda að búa til kjúklingalifrar-
paté fyrir basarinn í ár. Við fengum
að smakka það á síðasta fundi og það
var alveg ótrúlega gott,“ segir hún. Þar
fyrir utan kemur fjöldi fólks með varn-
ing sem það hefur búið til og vill gefa
á basarinn.
Spurð hvað hafi hvatt hana til að gefa
vinnu sína í basarinn öll þessi ár segir
hún samfélagið við konurnar í hópnum
vera ómetanlegt. „Svo er yndislegt að
geta látið gott af sér leiða í félagi sem
maður hefur sjálfur notið svo mikillar
blessunar af,“ segir hún.
Að mati Helgu hefur ekki mikið
breyst við basarinn á þessum 50 árum
þó að hlutirnir sem þær föndri og búi
til breytist að sjálfsögðu ár frá ári. „Í
kjarnann er þetta alltaf eins; kökurnar
eru til dæmis alltaf vinsælastar,“ segir
hún. „Síðustu þrjátíu árin höfum við
hjónin tekið að okkur að baka loftkök-
ur. Það eru kökur sem mörgum finnst
góðar en fáir nenna að baka og það er
alveg sama hvað við gerum margar
uppskriftir, allar rjúka þær út,“ segir
hún. Þetta árið bökuðu þau meira en
nokkru sinni fyrr, um 3.000 kökur. Hún
segir þau vera komin með hálfgerðan
áskrifendahóp sem mæti árlega til að
kaupa kökurnar. „Það er fyndið að fyrir
hver jól er bakað langmest af loftkök-
um á þessu heimili en samt er enginn
hér sem vill borða þær,“ segir Helga
og hlær.
Hún segir síðustu vikuna fyrir basar-
inn alltaf vera mjög annasama. „Lang-
mest af kökunum er gert í þeirri viku
því við viljum auðvitað ekki selja gaml-
ar kökur,“ segir hún og hlær. „Þetta er
mikil vinna og þó að basarinn sé auð-
vitað misfallegur á milli ára erum við
yfirleitt mjög ánægðar með hvernig
hann lukkast. Oftar en ekki er algjör
unaður að horfa yfir hann,“ segir Helga
að lokum. tinnaros@frettabladid.is
Bakar yfi r 3.000 loft kökur
Helga Friðriksdóttir hefur verið í undirbúningshóp fyrir basar KFUK í 50 ár. Hún segir
fátt hafa breyst á þeim tíma og að kökurnar séu vinsælasti varningurinn ár hvert. Það sé
alveg sama hversu mikið sé bakað, alltaf seljast þær upp. Handavinnan er þó vinsæl líka.
ÓMETANLEGT SAMFÉLAG Spurð hvað hvetji hana til að gefa vinnu sína í basarinn á hverju ári segir Helga samfélagið við hinar konurnar í
hópnum vera ómetanlegt. Þar fyrir utan sé yndislegt að geta látið gott af sér leiða í félagi sem hafi veitt henni svo mikla blessun í gegnum
árin. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
10 ára afmæli
ANIKA RUT ELFAR
Afmæliskveðja
Til haming ju með daginn –
Ástarkveðja frá pabba og okkur öllum
– þú ert frábær
Bróðir okkar og frændi,
BJÖRN BREIÐFJÖRÐ
FINNBOGASON
bifreiðastjóri,
Þvergötu 4, Ísafirði,
lést á Sjúkrahúsinu á Ísafirði föstudaginn
23. nóvember. Jarðsett verður frá Ísafjarðar-
kirkju laugardaginn 1. desember kl. 14.00.
Kristján Finnbogason
Arndís Finnbogadóttir
Árni Þór Einarsson og fjölskylda
aðrir aðstandendur.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarþel við
andlát ástkærs föður okkar, afa, langafa og
langalangafa,
EINARS PÉTURSSONAR
húsasmíðameistara,
áður til heimilis að Árskógum 8, Reykjavík.
Pétur Einarsson Svanfríður Ingvadóttir
Sigríður Björg Einarsdóttir Skúli Jónsson
Þórhalli Einarsson Guðný Tómasdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SESSELJA ÓSKARSDÓTTIR
Höfða, Akranesi,
áður til heimilis að Suðurgötu 50,
lést á Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimili,
25. nóvember. Útförin fer fram frá
Akraneskirkju þriðjudaginn 4. desember kl. 14.
Blóm og kransar vinsamlega afþökkað. Þeim sem vilja minnast
hinnar látnu er bent á Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimili.
Ruth Alfreðsdóttir Kristinn Sigurðsson
Bryndís Alfreðsdóttir Ingimundur Ingimundarson
Karl Óskar Alfreðsson Halldóra Elsa Þórisdóttir
Helga Klara Alfreðsdóttir Einar Davíðsson
Guðrún Birgitta Alfreðsdóttir Karl Sigurjónsson
og ömmubörn.
Dansverkið Inanna og Ereskigal verður frumflutt í Rým-
inu á Akureyri af fjöllistakonunni Önnu Richards og
dansaranum Ernesto Camilo Aldazabal Valdes í kvöld og
leikurinn síðan endurtekinn annað kvöld.
Verkið er byggt á fjögur- til fimmþúsund ára göml-
um ljóðum frá Mesópótamíu hinni fornu. Í ljóðunum fer
gyðjan Inanna í undirheimaferð til að hitta bróður sinn í
undirheimum. Inanna er sjálf gyðja jarðarinnar og frjó-
seminnar. Til að ná fram réttu stemningunni hefur Anna
gert kjól úr hráu kjöti sem hún dansar í og viðurkennir að
það sé ekki alveg það auðveldasta sem hún hefur gert. „Ég
dansaði í honum á æfingu í gærkvöldi, en ég verð að gera
nýjan fyrir fyrir frumsýninguna. Þú getur ekki ímyndað
þér lyktina af honum,“ segir hún.
Anna og Camilo vinna verkið á mjög persónulegu plani
í bland við upprunalegu söguna. Verkið er samið af þeim
tveimur, en er hluti af stærra verki sem er enn í vinnslu.
Eftir sýningarnar verða umræður um verkið.
Verkið hlaut styrk hjá Menningarráði Eyþings og er
sýningin unnin í samstarfi við Leikfélag Akureyrar. Sýn-
ingar hefjast klukkan 20.30 bæði kvöldin.
Dansverk byggt á ævafornum ljóðum
Anna Richards og Ernesto Camilo Aldazabal Valdes dansa nýstárlegan dans sem byggir á
fornum ljóðum frá Mesópótamíu í Rýminu á Akureyri í kvöld og annað kvöld.
KJÖTKJÓLL Kjóllinn sem Anna dansar í er gerður úr hráu kjöti. „Þú
getur ekki ímyndað þér lyktina,“ segir hún.
MERKISATBURÐIR
1872 Fyrsti landsliðsleikurinn í fótbolta er háður. Leikurinn
var á milli Skotlands og Englands og átti sér stað á Hamilton
Crescent í Glasgow.
1874 Sir Winston Churchill
fæðist. Hann varð síðar
forsætisráðherra Bretlands
og skipaði stóran sess í
sögu 20. aldar.
1900 Írska skáldið Oscar
Wilde andast, 46 ára að
aldri.
1937 Bandaríski leikstjórnn
Ridley Scott fæðist.
1960 Ungmennafélagið
Stjarnan er stofnað í Garða-
bæ.
1966 Barbados fær sjálf-
stæði frá Bretlandi.
1982 Plata Michaels Jack-
son, Thriller, kemur út en hún er mest selda plata allra tíma.
2005 John Sentamu verður fyrstur svartra til að vígjast sem
erkibiskup innan Ensku biskupakirkjunnar.
2007 Kárahnjúkavirkjun er gangsett við formlega athöfn.