Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.12.2012, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 18.12.2012, Qupperneq 24
18. desember 2012 ÞRIÐJUDAGUR| SKOÐUN | 24 fæst á www.kronan.is GJAF A KORT JÓLA SÆLGÆT I 3986kr.pk. Mackintosh, 2 kg 598kr.pk. Celebration, 200 g 680kr.pk. Freyju hátíðarsælgæti, 425 g 349kr.pk. Nóa Kropp m/appelsínubragði, 200 g 1998kr.pk. Anton Berg konfekt, 400 g 548kr.pk. After Eight, 300 g 2196 kr.pk. Lindu konfekt, 1 kg 2686kr.pk. Nóa konfekt, 1 kg 279kr.pk. Toblerone mjólkursúkkulaði, 100 g 598kr.pk. M&M súkkulaði, 3 teg. 2198kr.pk. Cadbury Roses, 850 g Rjúpnaveiðitímabili þessa árs er lokið og full ástæða til að fjalla um þá afleitu stöðu sem komin er upp varðandi rjúpnaveiðar eftir að umhverfisráð- herra setti á nýja reglu- gerð fyrir tveimur árum. Við gerð hennar virðist algjörlega hafa gleymst að gera ráð fyrir og taka tillit til íslensks veður- fars, öryggis veiðimanna, veiðiálags og mikilvægis þeirrar upplifunar sem rjúpnaveiðar hafa fyrir veiðimenn. Lengst af mátti veiða rjúpu frá 15. október til 22. desember, eða 69 daga samtals, en eftir að rjúpnaveiði var bönnuð með öllu árin 2003 og 2004 hefur veiði dögum fækkað jafnt og þétt; 2006 voru þeir 26, 18 dagar árið 2010 og á þessu ári og síðasta voru veiðidagar einungis 9. Allir eru sammála um nauð- syn þess, ekki síst veiðimenn, að búa svo í haginn að rjúpnaveiðar verði sjálfbærar í ókominni fram- tíð. En hlutverk umhverfisráð- herra er ekki einungis að banna. Hann ber líka ábyrgð gagnvart þegnum landsins, sem eiga rétt á að njóta landsins og náttúrunnar á sem fjölbreytilegastan og ríku- leg astan hátt, en það leyfir áður- nefnd reglugerð ekki. Það er vitað að stór hluti rjúpu- unga drepst í fyrstu slagviðrum haustsins. Þeir fuglar sem ná að lifa fram á vetur eru því mikil- vægir fyrir stofninn. Í stað þess að leyfa veiðar fyrr á haustin, og að hluti þeirra fugla sem deyja af náttúrulegum orsökum nýtist þar með á jólaborð landsmanna, virðist umhverfisráðuneytinu og Umhverfisstofnun mikilvægara að refur og minkur fái að ganga í það hlaðborð þó að vitað sé að þeir stofnar lifi góðu lífi. Fáir klukkutímar nýtast Því miður virðast þeir sem sömdu umrædda reglugerð ekki heldur gera sér vel grein fyrir því að íslensk vetrarveður eru válynd, og á köflum beinlínis hættu- leg. Tíðarfar í haust var þannig að örfáir dagar af þeim níu sem stýfðir voru úr hnefa nýttust til veiða. Á þessum árstíma nýtast einnig fáir klukkutímar af dagsbirtu þá daga sem gefur til veiða. Reglugerðin skemmir því ekki einungis upplifun þeirra sem halda til veiða, heldur er beinlínis verið að gera veiðarnar hættulegri en nauðsyn ber til, og því fylgir þung ábyrgð. Íslensk náttúra og íslenskt veður far eru nógu varasöm án þess að verið sé að auka hættuna með naumt skömmtuðum reglugerðum. Þegar svo fáir dagar eru til ráð- stöfunar verður veiðiálag einnig mikið á þeim svæðum sem aðgengi- leg eru veiðimönnum hverju sinni. Svo mikið að margir þurfa frá að hverfa. Núgildandi reglugerð minnkar ekki veiðiálag eins og henni var ætlað að gera. Hún takmarkar aðgengi að rjúpnaveiði, dregur stórlega úr ánægjunni við hana og gerir hana hættulega og erfiða. Hvað veldur? Tröllasögur af magnveiði Ekki ætla ég þeim sem að þessari reglugerð standa annað en að vera vel meinandi gagnvart þeim fimm til sex þúsund Íslendingum sem stunda rjúpnaveiðar. Hins vegar er ég ekki viss um að þau þekki rjúpnaveiðar af eigin raun. Frá- sagnir af rjúpnaveiði eru oft trölla- sögur af magnveiði. En veruleikinn er annar. Hinn almenni rjúpna- veiðimaður hefur það eitt mark- mið að veiða í jólamatinn fyrir fjölskylduna. Flestir þurfa 5-20 rjúpur til að uppfylla þær þarfir, meðalveiði á hvern veiðimann er oftast um 7 rjúpur samkvæmt skráningum. Vissulega eru enn til magnveiðimenn, en með breyttum viðhorfum hefur þeim farið ört fækkandi. Með sölu banninu sem var sett á fyrir nokkrum árum var blessunarlega tekið fyrir sölu á rjúpu og þar með fyrir magn- veiðina að mestu, og var það góð ráðstöfun. Það eru tröllasögurnar sem lifa og berast manna á milli. Hinir dagarnir gleymast, ekki er sagt frá þeim skiptum þegar labbað er daglangt í erfiðu færi og leiðinda- veðri, og afraksturinn er lítill sem enginn. Það þekkja allir sem veitt hafa rjúpu að sjá fugla taka sig upp löngu áður en komið er í færi og renna sér yfir í næsta dal án þess að veiðimaðurinn eigi minnsta möguleika. Hinn almenni veiðimaður leggur mikið á sig til að ná í sínar jóla- rjúpur, tíma, fjárútlát og mikla líkamlega áreynslu. Langflestir veiðimenn sýna líka bráðinni til- hlýðilega virðingu og veiða í hófi. Það eru því tilmæli mín til Svan- dísar Svavarsdóttur umhverfis- ráðherra að endurskoða sem fyrst núgildandi reglugerð, og um leið sína afstöðu til veiði og veiðimanna. Hennar hlutverk er ekki að banna, loka og takmarka, heldur horfa á stóru myndina, hlusta á þá sem vilja fá að njóta gæða fallega lands- ins okkar og vilja að komandi kyn- slóðir geti það líka. Lengri útgáfu greinarinnar má sjá á visir.is. Ranghugmyndir um rjúpnaveiði Fjöldi Íslendinga sem lengi hafa búið í út- löndum hefur keypt sér íbúðir á Íslandi á hag- stæðum kjörum eftir hrunið. Þetta gerir fólk með íslenskum krónum sem það fær á enn lægra gengi en gengur og gerist hjá Seðlabankanum, sem með þessu trixi auðveldar erlenda fjárfestingu. Ó dý r u k r ónu r n a r kaupir fólkið fyrir pen- inga sem það fær einatt á óverð- tryggðum lánum á lágum vöxtum í erlendum bönkum. Borðleggj- andi hagnaður þar sem íbúðin borgar sig niður sjálf með leigu til annarra Íslendinga sem verða að skaffa sér þak yfir höfuðið á Íslandi hér og nú. Ég hef fylgst með úr fjarlægð og hugsað að ég væri sennilega dáldið fífl að gera þetta ekki. Þarna gæti ég fyrir- hafnarlítið skaffað mér íbúð fyrir áhyggjulaust ævikvöld á Íslandi. Eymd landa minna En ég hef líka spáð í að það sé óhuggulegt að vera að græða á eymd landa minna sem missa húsnæði sitt og ímynda mér líka að eftirspurnin (sem ég myndi þá stuðla að sjálf) eigi þátt í að halda uppi verðinu, sem er allt of hátt miðað við byggingar kostnað þar sem skynsamlega er staðið að verki. Hátt húsnæðisverðið stendur ungu fólki fyrir þrifum. Það getur ekki keypt sér neitt og hefur varla pening til að leigja. Ég hef líka velt fyrir mér að erfitt sé að standa í viðhaldi á húsnæði fyrir eiganda sem býr í útlöndum. Varla væri gott að vera ábyrgur fyrir að íbúðarhúsnæði á Íslandi lægi undir skemmdum af viðhaldsleysi eftir nokkur ár? Vangaveltur af þessu tagi hafa hindrað að ég hafi hafi haft mig út í svona viðskipti. En nú er Seðlabankastjóri að hvetja mig til að slá til, því það hjálpi Íslandi! Ef allir Íslendingar í útlöndum geta fengið eins mikla peninga í útlendum banka til fjárfestinga á Íslandi og ég, gæti svona lagað verið ákveðin leið til að fá inn erlent fjár- magn án þess að eignir Íslands og Íslendinga safnist bara í hendur hrunvalda og erlendra fjárfesta sem engar taugar bera til staðarins. En spurningin er hvort við viljum standa í þess háttar vafstri við hlið einhverra afla sem við vitum ekkert hvert beri Ísland. Ef það er eins rakinn gróða- vegur að fara í svona fjárfest- ingu þegar maður á ekki einu sinni pening (bara vinnu í út- löndum sem auðveldar lántöku þar) má ímynda sér hve rakið þetta er fyrir fólk sem á fé á lausu og hefur að meginmark- miði að ávaxta það. Umsvif þeirra sem braska með húsnæði innanlands hafa þó ekki þann „kostinn“ að gjaldeyrir streymi inn í landið, aðeins fjárfestarnir hagnast. Klárir á uppskriftinni Nú veit ég ekki hvort út lendingar sjá fjárfestingarmöguleika í íslenskum húsnæðismarkaði líka, en hitt veit ég að útlend- ingar keyptu fjölmargar íbúðir í Austur-Evrópu rétt eftir fall járntjaldsins, í gróðavon. Verðið var lágt (fyrir þá) og virtist bara geta hækkað. Þetta er hægt hér líka ef útlendingar eru klárir á uppskriftinni og hægt er að telja þeim trú um að húsnæðisverðið hækki eftir kaupin. Ef húsnæðisverð væri lægra væri freistingin enn meiri til fjárfestinga í geiranum fyrir ein- hverja eða alla þessa hópa, nema þetta væri hreinlega bannað. Það er eins og það sé sama hvers konar fjárfestingu er verið að kalla eftir, bara hún sé erlend. Frá sjónarmiði fjár festisins vill hann aðeins fjárfesta þar sem gróðavænlegt er. Ég fór fyrir forvitni sakir á fund í Noregi þar sem „lokka“ átti erlenda fjár- festingu til Íslands. Þarna voru norskir fjölmiðlar. Þáverandi við- skiptaráðherra Íslands (Árni Páll) talaði um hvað allt væri á uppleið og hvað allt myndi vera gert til að létta ferlið fyrir erlenda fjár- festingu á Íslandi og bankastjóri Íslandsbanka, Birna Einars dóttir, talaði um hvað bankinn væri fullur af peningum! Við hlið mér sat glaðbeittur maður sem hugði að fjárfest- ingu á Íslandi fyrir hönd fyrir- tækis síns sem framleiddi og seldi hjól. Ég sagði honum að það væri gott að fá fleiri hjól til Íslands og fólk væri svo blankt að margir væru farnir að leggja bílnum. Bjóst ég við að maður- inn yrði feginn að fyrirtæki hans myndi geta sinnt þjóðþrifaverki hjá íslenskri frændþjóð í vanda. Hið gagnstæða gerðist: Maðurinn missti allan áhuga. Hann vildi bara græða á fyrirtækinu og eftir spurn lítið efnaðra Íslend- inga hafði lítið gildi fyrir hann. Gott að losna við þessa blóðsugu hugsaði ég, en bið íslensk stjórn- völd forláts að hafa eyðilagt „tækifærið“. En því ættu Íslendingar að láta græða á sér þegar þeir hafa bara þörf fyrir að lifa mannsæmandi lífi? Fjárfestingar á Íslandi RJÚPNAVEIÐAR Dúi J. Landmark kvikmynda- gerðar maður, leiðsögumaður, náttúruunnandi og veiðimaður FJÁRFESTINGAR Arna Mathiesen arkitekt ➜ Núverandi reglugerð minnkar ekki veiðiálag eins og henni var ætlað að gera. ➜ Frá sjónarmiði fjárfestis- ins vill hann aðeins fjár festa þar sem gróðavænlegt er.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.